Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 6. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög

Hæstiréttur birt 10. júní 2010

501/2009

Rok ehf (Einar Gautur Steingrímsson hrl) gegn Reykjavíkurborg (Viðar Lúðvíksson hrl)

R höfðaði mál gegn Reykjavíkurborg og krafðist skaðabóta. Krafa R um bætur var í fyrsta lagi byggð á því að ólögmætt hefði verið að afgreiða fyrirspurnir um byggingarleyfi á húsnæði hans með neikvæðum hætti eins og gert hafði verið, og leitt til þess að hann hefði ekki getað nýtt húsnæðið undir rekstur vínveitingastaðar. Talið var að fyrirspurnir um afstöðu Reykjavíkurborgar til hugsanlegs erindis um byggingaleyfi og veitingu leyfis til vínveitinga yrði ekki lögð að jöfnu við formlegar leyfisumsóknir þar að lútandi. Svar Reykjavíkurborgar við slíkum fyrirspurnum gæti því ekki talist stjórnvaldsákvörðun með þeirri réttarverkan sem R taldi að henni hefði fylgt. Var því ekki fallist á kröfu R að þessu leyti. Í öðru lagi var krafa R um bætur byggð á því að ákvörðun Reykjavíkurborgar um að fresta afgreiðslu umsóknar hans um byggingaleyfi frá 3. júní 2005, sbr. 6. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997, hefði valdið honum tjóni. Fallist var á með R að hann hefði orðið fyrir tjóni vegna þessa og honum dæmdar bætur að álitum 8.000.000 krónur. Krafa R um bætur vegna tjóns sem hann kvaðst hafa orðið fyrir vegna breytinga á deiliskipulagi, sbr. 33. gr. sömu laga, var hins vegar vísað frá héraðsdómi sökum vanreifunar.

Hæstiréttur birt 22. janúar 2009

246/2008

Kópavogsbær (Þórður Clausen Þórðarson hrl, Skarphéðinn Pétursson hdl) gegn Jóhanni Björgvinssyni (Óskar Sigurðsson hrl) og Rut Kristinsdóttur (Jónas Þór Guðmundsson hdl)

Sveitarfélagið K tók eignarnámi lóðaréttindi í eigu J og R, að því marki sem nauðsynlegt þótti til samræmis við nýtt deiliskipulag sem breytti svæðinu í íbúðarhúsabyggð. Matsnefnd eignarnámsbóta mat bætur til J og R vegna skerðingarinnar. K neitaði að greiða samkvæmt úrskurði nefndarinnar en J og R kröfðust bóta samkvæmt honum. Þá kröfðust þau einnig bóta vegna lögmannskostnaðar sem þau höfðu innt af hendi vegna tafa á afgreiðslu umsóknar þeirra á endurnýjun á byggingarleyfi í tilefni af stækkun bílskúrs sem þau höfðu reist á lóðinni. Talið var að í uppdráttum sem fylgdu yfirlýsingu K, til að fá þinglýst breyttum mörkum lóðarinnar, hafi komið skýrlega fram aukin stærð lóðarinnar og hafi K með þessu bundið hendur sínar gagnvart J og R. Þau hafi því ekki getað borið fyrir sig að K hafi ekki gert við sig nýjan lóðaleigusamning, enda hafi K ítrekað lýst því yfir að hann væri reiðubúinn til þess og hafi ekkert komið fram um haldbæra ástæðu til að hafna að verða við skyldu sinni til að takmarka tjón sitt með því að ganga að því boði. Því hafi ekki verið haldið fram að verð hvers fermetra lands sem hafi verið bætt við lóðina hafi verið lægra en þess sem tekið var. Var kröfum J og R um greiðslu eignarnámsbóta því hafnað. Þá var krafa um greiðslu kostnaðar vegna lögmannsaðstoðar ekki talin í tengslum við eignarnámið og ekki eiga sér stoð í lögum. Var K því sýknað af kröfum J og R.

Héraðsdómur Reykjaness birt 4. febrúar 2008

E-1435/2006

Jóhann Björgvinsson Rut Kristinsdóttir (Óskar Sigurðsson hrl) gegn Kópavogsbæ (Geir Arnar Marelsson hdl)

Dæmt að greiða skuli bætur samkvæmt úrskurði Matsnefndar eignarnámsbóta fyrir skerðingu réttinda á grundvelli lóðarleigusamnings. Fallist á að sveitarfélagi beri að greiða hluta þess kostnaðar sem stofnaðist þegar stefnandi gætti hagsmuna sinna gagnvart undirstofnun sveitarfélagsins. Einum kröfulið vísað frá dómi.