Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

9 dómar fundust

Lagagrein: 3. mgr. 12. gr. laga nr. 65/1976 — Jarðalög

Landsréttur birt 1. september 2020

382/2020

Birkir Kristjánsson (Sigurður Jónsson lögmaður) gegn Orkuveitu Reykjavíkur (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli B á hendur O og til réttargæslu þb. G og S var vísað frá dómi. Fyrir Landsrétti féll B frá aðalkröfu sinni um að viðurkennt yrði að hann ætti 50% eignarhlutdeild í landi sem áður var sameignarland tveggja tilgreindra bæja og nú væri hluti af landi O og væri afmarkað með tilgreindum hætti. Eftir stóð þá varakrafa B þess efnis að hann ætti rétt til þess að land sem afmarkað væri með tilgreindum hætti yrði skipt út úr landi O, þannig að B og O ættu hvor um sig 50% í landinu. Landsréttur staðfesti þá niðurstöðu hins kærða úrskurðar að yrði fallist á varakröfu B fælist í því fyrirvaralaus viðurkenning á skiptingu landsins og stofnunar sérstakrar fasteignar í eigu B án þess að gætt væri tilgreindra fyrirmæla jarða- og skipulagslaga. Stæði 2. gr. stjórnarskrárinnar því í vegi að unnt væri að fella efnisdóm á dómkröfur B. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Héraðsdómur Suðurlands birt 30. september 2019

E-540/2019

Fyrir er tekið málið nr. E-540/2019 Birkir Kristjánsson (Sigurður Jónsson lögmaður) gegn Orkuveitu Reykjavíkur, til réttargæslu Guðmundur A. Birgisson og Steinunn M. Tómasdóttir (Bára Jónsdóttir lögmaður)

Kröfu um viðurkenningu eignarhlutdeildar í landi sem sameinað hafði verið annarri fasteign var vísað frá dómi þar sem dómurinn taldi að með sameiningunni hafi verið stofnuð sérstök fasteign. Væri fallist á kröfur stefnanda fæli það í sér stofnun og skráningu sjálfstæðrar fasteignar sem háð væri lögbundnum skilyrðum og eftir atvikum samþykki tiltekinna stjórnvalda.

Hæstiréttur birt 26. apríl 2018

243/2017

Birkir Kristjánsson (Jóhannes Rúnar Jóhannsson lögmaður) gegn Landsbankanum hf (Guðjón Ármannsson lögmaður)

B, sem var eigandi jarðarinnar Litla-Saurbæjar II, krafðist viðurkenningar á eignarétti sínum að tiltekinni spildu úr landi Litla-Saurbæjar I í Ölfusi. Um var að ræða langa og mjóa spildu, að mestu vestan Suðurlandsvegar þar sem hann liggur niður Kamba. Var norðurendi hennar afmarkaður af útsýnisplani neðan við Kambabrún en suðurendi af þjóðvegi þeim sem liggur frá hringtorgi við Hveragerði áleiðis í Selvog. L hf., sem leiddi rétt sinn frá K sem keypt hafði hluta jarðarinnar á árinu 1986 með afsali frá níu systkinum sem höfðu eignast jörðina með afsali frá föður sínum á árinu 1975, krafðist sýknu m.a. á grundvelli aðildarskorts B. Hæstiréttur hafnaði þeirri málsástæðu með vísan til þess að fyrirvari í afsali til B frá árinu 2004 snéri fyrst og fremst að afhendingu tiltekins hluta hins afsalaða lands, en eignarrétturinn að því hefði samkvæmt afsalinu ekki verið háður skilyrðum, sbr. 21. gr. þinglýsingarlaga nr. 39/1978. Þá rakti Hæstiréttur að í afsali systkinanna níu til K frá árinu 1986 væri það skýrlega orðað að einungis væri afsalað þeim hluta jarðarinnar sem væri neðan við veginn sem lægi niður í bæjarþorpið og jafnframt skilmerkilega tekið fram að landið ofan vegarins fylgdi ekki með í kaupunum. K hefði því engin eignarréttindi öðlast til lands ofan við veginn. Þar sem hann hefði ekki getað ráðstafað víðtækari rétti en hann hefði sjálfur átt hefði hann ekki getað framselt eða afsalað neinum réttindum ofan vegar. Af orðalagi afsals K til A og G frá árinu 1987 væri nærtækt að álykta að land ofan vegar, annað en það sem þar var sérstaklega tilgreint, hefði átt að fylgja með í kaupunum. K hefði ekki verið bær til að ráðstafa því landi og hefðu því engin eignaréttindi skapast yfir því til handa A og G. Hið sama gilti um þá sem leiddu rétt sinn frá þeim. Samkvæmt því stóðu eignarréttindi L hf. yfir Litla-Saurbæ I því ekki í vegi að fallist yrði á kröfu B. Hins vegar vísaði Hæstiréttur til þess að með afsali systkinanna níu til K á árinu 1986 hefði landi jarðarinnar Litla-Saurbæjar I verið skipt. Af afsalinu mátti sjá að Jarðanefnd Árnessýslu hafði samþykkt söluna og sveitarfélagið fallið frá forkaupsrétti en að öðru leyti yrði ekki séð að gætt hefði verið ákvæða jarðalaga við landskiptin. Yrði fallist á kröfu B um viðurkenningu á eignarétti hans á spildunni fælist í því fyrirvaralaus viðurkenning á skiptingu jarðarinnar og stofnun sérstakrar fasteignar í eigu B án þess að gætt væri fyrirmæla jarðalaga um slík skipti. Stæði 2. gr. stjórnarskrárinnar því í vegi að unnt væri að fella efnisdóm á kröfuna í þessu horfi. Taldi Hæstiréttur því ekki hjá því komist að vísa málinu frá héraðsdómi.

Hæstiréttur birt 22. febrúar 2007

344/2006

Hildur Jónsdóttir (Jón Höskuldsson hrl) gegn Sigríði Hermóðsdóttur og Stefáni Skaftasyni (Skúli Bjarnason hrl)

H krafðist í máli gegn SI og ST viðurkenningar á rétti sínum til að skipta fasteigninni S á þann hátt að eignarhluti hennar, sem fólst í tveimur landspildum sem voru afmarkaðar með nánar tilgreindum hnitum, yrði sérgreindur og skráður sérstaklega. Við munnlegan flutning málsins fyrir Hæstarétti breytti H kröfugerð sinni til samræmis við loftmynd, sem sýndi mörk spildnanna, og tilgreindi hnit á hornpunktum að nokkru önnur en miðað hafði verið við fram að því. Ekki var talið að H gæti breytt kröfugerð sinni að þessu leyti þar sem samþykki SI og ST lá ekki fyrir. Hins vegar var talið að innan kröfugerðar hennar rúmaðist krafa um að viðurkenndur yrði réttur hennar til að fá fasteigninni skipt með þeim hætti að hún fengi aftur spildurnar tvær, sem hún hafði lagt til sameignarinnar, án þess að þær væru nánar afmarkaðar og var sú krafa talin nægilega ljós til að fella mætti efnisdóm á hana. Vísað var til þess að samkvæmt meginreglu eignaréttar, sem eigi stoð í ákvæðum 20. kapítula kaupabálks Jónsbókar, geti einn sameigenda krafist slita á sérstakri sameign til þess að hver þeirra fái hluta af henni í samræmi við eignarhlutfall sitt, enda sé hún skiptanleg, skiptum verði komið við án þess að það leiði til tjóns að þarflausu og það stangist hvorki á við lög né samning, sem eignina varði. Talið var að þessi skilyrði væru uppfyllt og var krafa H í fyrrgreindri mynd því tekin til greina. H krafðist jafnframt sýknu af kröfum SI og ST um viðurkenningu á rétti þeirra til lífstíðarábúðar á eignarhluta hennar í fasteigninni og forkaupsrétti að honum. Þegar af þeirri ástæðu að SI og ST höfðu ekki hnekkt staðhæfingu H, sem studd var gögnum, um að þau hefðu ekki að minnsta kosti eftir 1991 notað eignina til búrekstrar eða annars atvinnurekstrar á sviði landbúnaðar var ekki talið að þau gætu reist rétt til ábúðar á eignarhluta H á 6. gr. áðurgildandi ábúðarlaga nr. 64/1976. Voru heldur ekki skilyrði til að fallast á kröfu SI og ST um viðurkenningu á forkaupsrétti þar sem hún var eingöngu reist á því að þau nytu hans sem ábúendur samkvæmt 2. mgr. 30. gr. áðurgildandi jarðalaga nr. 65/1976.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 31. mars 2006

E-288/2005

Hildur Jónsdóttir (Jón Höskuldsson hdl) gegn Sigríði Hermóðsdóttur og Stefáni Skaftasyni (Skúli Bjarnason hrl)

Deilt um hvort sameign aðila að jörð teldist sérstök sameign eða óskipt sameign. Deild um hvort aðalstefnandi ætti einhliða rétt á skiptum jarðar. Þá var um það deilt hvort sala hefði farið fram á hluta gagnstefndu í jörðinni án þess að gætt hefði verið forkaupsréttar gagnstefnenda. Um það var einnig deilt hvort gagnstefnendur hefðu öðlast lífstíðarábúðarrétt á jörðinni vegna langrar setu hennar og þar með öðlast forkaupsrétt að eignarhluta meðeigandans, gagnstefndu.

Hæstiréttur birt 9. febrúar 2006

328/2005

Ræktunarmiðstöðin sf (Einar Gautur Steingrímsson hrl, Þórey S. Þórðardóttir hdl) gegn íslenska ríkinu og Hveragerðisbæ (Skarphéðinn Þórisson hrl, Björn Jóhannesson hdl, Guðjón Ólafur Jónsson hrl, Eyvindur G. Gunnarsson hdl)

R krafðist þess að viðurkennt yrði að hún væri eigandi að tiltekinni landspildu í Hveragerði. Óumdeilt var að 3. nóvember 1928 keypti M land úr jörðinni V og að úr þeirri landareign fékk S tvær spildur 17. maí 1929, aðra að gjöf og hina leigða á erfðafestu til 75 ára. Með útgáfu skuldabréfs 19. maí 1931 setti M landið að veði og var talið að veðið hefði tekið til eignarréttar að þeirri spildu sem seld hafði verið S á leigu. Bankinn B fékk uppboðsafsal fyrir landinu 11. júlí 1938 og var talið að þar með hefði eignarréttur að þeirri spildu sem leigð hafði verið S færst í hendur hans. B afsalaði síðan landinu til Í, en milli Í og H var deila um hvort sá síðarnefndi hefði fengið afsal fyrir landinu frá Í á árinu 1967. Þar sem að land það sem krafa R um eignarrétt laut að var úr spildunni sem S hafði fengið leigða á erfðafestu til 75 ára og með vísan til 3. mgr. 2. gr. laga nr. 46/1905 var ekki talið að þeir, sem leiddu rétt sinn frá S, gætu borið því við gegn andmælum Í og H að umráð þeirra yfir landinu á gildistíma leigusamningsins hefði veitt þeim eignarrétt að því á grundvelli hefðar.

Hæstiréttur birt 24. janúar 2006

31/2006

WVS-verkfræðiþjónusta ehf (Reinhold Kristjánsson hrl) gegn Sigríði Sveinsdóttur, Hauki Kristjánssyni, Erlingi Erni Kristjánssyni, Áslaugu Kristjánsdóttur, Vilhjálmi G. Kristjánssyni, Petru Kristjánsdóttur (Árni Pálsson hrl) og sýslumanninum á Akureyri (Skarphéðinn Þórisson hrl)

W krafðist þess í málinu að ógilt yrði með dómi skipting jarðarinnar L með stofnskjali útgefnu af SS, HK, EEK, ÁK, VGK og PK, sem þinglýst var tiltekinn dag. Þá gerði W þá kröfu á hendur S að lagt yrði fyrir hann að afmá skjalið úr þinglýsingarbókum, sem og nánar tilgreinda eignayfirlýsingu. Talið var að frestur til að bera ágreining um þinglýsingu undir þinglýsingarstjóra hafi verið liðinn þegar málið var höfðað og ekki væri heldur réttarfarsleg nauðsyn á aðild S að málinu og var kröfum W á hendur S því vísað frá dómi. Þá var talið að útgáfa og þinglýsing stofnskjalsins hafi ekki veitt útgefendum þess rýmri rétt en þeir áttu fyrir og hin umdeilda landskipting hefði í raun átt sér stað á fyrra tímamarki, að hluta til með afsali gefnu út tilgreindan dag og síðan við skipti á tilteknu dánarbúi þar sem aukið var nokkuð við stærð hinnar umdeildu landspildu. Var talið krafa W væri ekki til þess fallin að leysa úr ágreiningi málsaðila og yrði ekki séð, væri hún tekin til greina, að niðurstaðan myndi færa W nokkur efnislega réttindi. Bæri því samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála að vísa málinu í heild frá dómi.

Hæstiréttur birt 11. febrúar 1999

263/1998

Dánarbú Jakobs Jónssonar og Þorleifur Jónsson (Magnús Thoroddsen hrl) gegn Þóri Guðmundssyni, Maríu Guðmundsdóttur, Daníel Jóni Guðmundssyni, Ásdísi Guðmundsdóttur, Auði Guðmundsdóttur, Hreiðari Vilhjálmssyni og Magnúsi Jóhannessyni (Karl Axelsson hrl)

Jörðin Litli-Langidalur var frá árinu 1932 talin til tveggja matshluta í fasteignamati, Litla-Langadal fremri og Litla-Langadal ytri. Í fasteignamati árið 1970 var jörðin þó metin sem einn hluti en því mati var breytt með millimati ári síðar. Eigandi Litla-Langadals, J, afsalaði bróður sínum Þ, Litla-Langadal fremri 1984. Veiðifélag hafði verið stofnað árið 1970 í kjölfar gildistöku laga nr. 76/1970 um lax- og silungsveiði. Í veiðifélaginu reis upp ágreiningur um það hvort líta bæri á Litla-Langadal sem eitt eða tvö lögbýli og þar með hvort jörðinni bæri eitt eða tvö atkvæði í veiðifélaginu. Að virtri löggjöf um landbúnaðarmálefni þar sem hugtakið lögbýli var skilgreint var ekki talið að fasteignamat jarðar leiddi umsvifalaust til þess að litið yrði á hana sem lögbýli. Verðmat í fasteignamati væri aðeins einn þáttur þess að jörð yrði talin lögbýli í merkingu ábúðarlaga og laga um lax- og silungsveiði. Ekkert þótti fram komið um að Litli-Langidalur fremri hefði eftir 1941 fullnægt skilyrðum ábúðarlaga til þess að teljast lögbýli. A.m.k. hefðu J og Þ ekki sýnt fram á að svo hefði verið við stofnun veiðifélagsins árið 1970. Hefði Litli-Langidalur þannig verið eitt lögbýli, bæði í reynd og samkvæmt því fasteignamati, sem þá gilti. Tekið var fram að reglur um atkvæðisrétt í veiðifélagi væru ófrávíkjanlegar og engu skipti hvort félagar hefðu samþykkt aðra skipan á atkvæðisrétti. Þá þóttu málshöfðunarfrestir samkvæmt lax- og silungsveiðilögum og jarðalögum ekki koma til álita við úrlausn málsins. Var niðurstaða héraðsdóms um að jörðinni Litla-Langadal bæri aðeins eitt atkvæði staðfest.