Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lagagrein: 1. gr. laga nr. 63/1969 — Lög um verslun með áfengi og tóbak

Landsréttur birt 29. september 2023

308/2022

ST ehf (Birgir Már Björnsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

S, sem annaðist innflutning á vindlum í þeim tilgangi að selja beint í smásölu í eigin netverslun, krafðist endurgreiðslu frá Í á gjaldi sem S innti af hendi til ÁTVR í formi heildsöluálagningar á tóbak, sbr. ákvæði laga nr. 86/2011 um verslun með áfengi og tóbak. Taldi S að ÁTVR væri óheimilt að skylda S til að greiða heildsöluálagningu sem skilyrði fyrir því að fá tóbak sitt afhent, þar sem félagið stundaði ekki heildsölu. Ekki var um það deilt að heildsöluálagning á tóbak væri skattur, en S taldi á hinn bóginn að ekki væri fyrir hendi skýr lagastoð fyrir álagningunni, en hvergi í lögum nr. 86/2011 var skilgreint hvað fælist í „heildsölu“ eða „heildsöluálagningu“. Í niðurstöðu Landsréttar var bent á að samkvæmt 1. málslið 2. mgr. 7. gr. laga nr. 86/2011 hefði ÁTVR einkaleyfi til að selja tóbak innanlands í heildsölu. Í því einkaleyfi fælist að allt tóbak sem flutt væri til landsins og selt á Íslandi þyrfti fyrst að afhenda ÁTVR og kaupa síðan af stofnuninni í heildsölu. Þá væri í 3. mgr. 9. gr. laganna mælt fyrir um að heildsöluálagning á tóbak skyldi vera 18%. Samkvæmt því væri í lögum nr. 86/2011 mælt fyrir um meginatriði þeirrar skattlagningar sem um ræddi og álagningin sem deilt var um byggð á beinum fyrirmælum löggjafans í samræmi við ákvæði stjórnarskrárinnar og markmið þeirra. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms því staðfest og Í sýknað af kröfum S.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. mars 2022

E-1989/2021

ST ehf (Birgir Már Björnsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Rakel Jensdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Stefndi var sýknaður af endurgreiðslukröfu stefnanda vegna heildsöluálagningar ÁTVR á tóbak en ekki var fallist á það með stefnanda að sýnt þætti fram á að umrædd gjaldtaka hvað hann varðaði skorti lagastoð.

Hæstiréttur birt 6. apríl 2006

462/2005

British American Tobacco Nordic OY og British American Tobacco Limited (Óttar Pálsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Stjórnarskrá. Tjáningarfrelsi. Atvinnufrelsi. Friðhelgi eignarréttar. Meðalhóf. Frávísun máls að hluta frá héraðsdómi. BAT OY og BAT Ltd. kröfðust viðurkenningar á því að þeim væri heimilt að birta í fjölmiðlum texta, sem fjallaði um breytingar á útliti umbúða á tóbaksvörum, sem fyrirtækin framleiddu, í kjölfar breytinga á reglum um heiti slíkra vara, þrátt fyrir að það væri bannað samkvæmt 3. mgr. 7. gr. laga nr. 6/2002. Ennfremur kröfðust þau viðurkenningar á því að heimilt væri að hafa tóbak eða vörumerki tóbaks frá þeim sýnilegt viðskiptavinum á útsölustöðum, þrátt fyrir ákvæði 6. mgr. 7. gr. sömu laga. Ekki var talið að ákvæði laganna, sem bönnuðu birtingu umrædds texta, stönguðust á við 73. gr. eða önnur ákvæði stjórnarskrárinnar. Hæstiréttur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að með algjöru banni 6. mgr. 7. gr. laganna við að sýna tóbak á sölustöðum hefði löggjafinn farið út fyrir þau mörk, sem 73. gr. og 75. gr. stjórnarskrár settu, enda hefði ekki verið sýnt fram á nauðsyn þess að láta bannið ná til verslana þar sem helst þeir, sem vildu kynna sér tóbak og kaupa það, ættu erindi. Kröfugerð BAT OY og BAT Ltd. miðaði að því að fá viðurkennt að heimilt væri að hafa tóbaksvörur sýnilegar viðskiptavinum, án þess að sá réttur væri nánar afmarkaður með tilliti til þess hvar eða hvernig það yrði gert. Ekki þótti unnt að fallast á hana, enda yrði að telja að löggjafanum væri heimilt að setja skorður við því að heilsuspillandi vörur á borð við tóbak væru í augsýn annarra viðskiptavina en þeirra, sem vildu kaupa þær. Í ljósi aðstæðna þótti óhjákvæmilegt að vísa þessum lið í kröfugerð BAT OY og BAT Ltd frá héraðsdómi.

Hæstiréttur birt 6. apríl 2006

220/2005

JT International S.A JT International Finland OY og Sölvi Óskarsson (Hróbjartur Jónatansson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

JT S.A., JTF OY og S kröfðust viðurkenningar á því að S væri heimilt að hafa tóbaksvörur frá JT S.A. sýnilegar viðskiptavinum verslunar sinnar þrátt fyrir bann 6. mgr. 7. gr. laga nr. 6/2002 um tóbaksvarnir. Þá var ennfremur krafist viðurkenningar á að JT S.A. væri heimilt að birta í fjölmiðlum texta, sem fjallaði um breytingar á heitum tóbaksvara fyrirtækisins í tilefni af nýjum reglum um það atriði, og að JT og JTF væri heimilt að miðla tilteknum upplýsingum um vörurnar til S, þrátt fyrir bann 3. mgr. 7. gr. sömu laga. Á það var fallist að miðlun upplýsinga um umræddar vörur til S, sem hafði leyfi til sölu á tóbaksvörum, stangaðist ekki á við ákvæði laganna, sem miðuðu fyrst og fremst að því að girða fyrir hverskonar auglýsingar á tóbaksvörum til almennings. Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um að ákvæði laganna, sem bönnuðu birtingu umrædds texta, stönguðust ekki á við 72., 73. og 75. gr. stjórnarskrárinnar eða ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Ennfremur var staðfest að bannið væri bindandi án tillits til þess hvort rétt hefði verið, í samræmi við tilskipun 98/34//EB, að tilkynna Eftirlitsstofnun EFTA um þær breytingar, sem urðu á þágildandi tóbaksvarnarlögum með lögum nr. 95/2001, og án tillits til þess hvort umrædd ákvæði kynnu að vera í andstöðu við 11. og 36. gr. EES-samningsins, sbr. lög nr. 2/1993. Hæstiréttur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að með algjöru banni 6. mgr. 7. gr. laganna við að sýna tóbak á sölustöðum hefði löggjafinn farið út fyrir þau mörk, sem 73. og 75. gr. stjórnarskrár settu, enda hefði ekki verið sýnt fram á nauðsyn þess að láta bannið ná til verslana þar sem helst þeir, sem vildu kynna sér tóbak og kaupa það, ættu erindi. Verslun S taldist sérverslun fyrir tóbaksvörur og því var fallist á kröfu um að heimilt væri að hafa tóbaksvörur frá JT S.A. sýnilegar viðskiptavinum í versluninni.

Hæstiréttur birt 29. október 2003

388/2003

British American Tobacco Nordic Oy, British American Tobacco og Limited (Jakob R. Möller hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli tveggja erlendra fyrirtækja á hendur íslenska ríkinu var vísað frá dómi. Í málinu var þess annars vegar krafist að viðurkennt yrði að öðru fyrirtækinu væri heimilt þrátt fyrir ákvæði 3. töluliðar 3. mgr. 7. gr. laga nr. 6/2002 um tóbaksvarnir að fjalla í fjölmiðlum um upplýsingar sem lytu að lýsingum á þeim tóbaksvörum sem það setti á markað og hins vegar að fyrirtækjunum væri heimilt þrátt fyrir ákvæði 6. mgr. 7. gr. laga nr. 6/2002 að hafa tóbakið eða vörumerki þess sýnilegt á sölustöðum. Í Hæstarétti var með vísan til þess að fyrri liður kröfugerðarinnar væri ekki í því horfi að dómsniðurstaða gæti orðið skýr og afgerandi um það hvernig rétti fyrirtækisins væri háttað, staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að vísa henni frá dómi. Varðandi síðari kröfuliðinn var talið fram komið að viðskiptum lyki ekki með öllu við það að varningurinn væri seldur ÁTVR. Þá mætti ganga út frá því að hömlur samkvæmt 6. mgr. 7. gr. laga nr. 6/2002 væru líklegar til að hafa áhrif á sölu til neytenda á varningi frá fyrirtækjunum, en árangur í sölustarfi smásala hefði augljós áhrif á hagsmuni þeirra. Var því fallist á að áskilnaður um lögvarða hagsmuni stæði því ekki í vegi að fyrirtækin gætu fengið dóm um þessa kröfu. Var úrskurðurinn að því er varðaði þennan kröfulið felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka hann til efnismeðferðar.