Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

7 dómar fundust

Lagagrein: 71. gr. laga nr. 60/1998 — Lög um loftferðir

Hæstiréttur birt 6. maí 2024

34/2023

Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður) gegn ALC A321 7237, LLC, íslenska ríkinu, ALC A321 7237 (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður) og LLC (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

I ohf. höfðaði skaðabótamál á hendur A og Í vegna innsetningar í loftfar sem fór fram á grundvelli dómsúrskurðar. I ohf. hafði á grundvelli 1. mgr. 136 gr. þágildandi laga nr. 60/1998 um loftferðir aftrað för farþegaþotu A frá Keflavíkurflugvelli vegna gjaldfallinna krafna á hendur flugfélaginu W hf. sem var leigutaki þotunnar en bú þess hafði verið tekið til gjaldþrotaskipta. A krafðist innsetningar í þotuna sem héraðsdómur heimilaði og féllst ekki á frestun réttaráhrifa úrskurðar þar um. Var þotunni í framhaldinu flogið af landi brott. Bótakröfu sína á hendur A reisti I ohf. einkum á hlutlægri bótareglu 1. mgr. 96. gr. laga nr. 90/1989 en gagnvart Í byggði hann á sakarreglunni. A höfðaði gagnsök gegn I ohf. og byggði á því að sú framganga I ohf. að hindra brottför þotunnar frá Keflavíkurflugvelli á grundvelli fjárkrafna sem hann hefði ekki borið ábyrgð á hefði verið ólögmæt og saknæm og valdið sér tjóni. Hæstiréttur féllst ekki á það með I ohf. að A hefði undir rekstri aðfararmálsins ráðstafað sakarefni málsins með bindandi hætti enda yrði úrskurði í slíku máli ekki jafnað til dóms í einkamáli. Við mat á því hvort umdeild aðfarargerð fengi staðist taldi rétturinn að ríkar kröfur yrðu jafnan gerðar til lagaheimildar sem fæli í sér greiðsluþvingun, sérstaklega við aðstæður þar sem kröfur beindust að eiganda loftfars sem ekki hefði átt í kröfuréttarsambandi við rekstraraðila flugvallar. Lagareglan hefði verið ónákvæm og ókleift fyrir I ohf. að fullnusta í þotu A þá fjárkröfu sem W hf. hafði stofnað til gagnvart I ohf. enda hefði hann hvorki notið haldsréttar, handveðs eða annarra tryggingarréttinda í þotunni. Þá kæmu lögveðsréttindi sem bætt var í lög undir rekstri aðfararmálsins ekki til álita þegar af þeirri ástæðu að ekki hefði verið byggt á þeim af hálfu I ohf. Fallist var á að beiting stöðvunarheimildar á grundvelli 1. mgr. 136. gr. laga nr. 60/1998 hefði þó verið lögmæt vegna þeirra gjalda sem stofnað hafði verið til sérstaklega vegna umrædds loftfars en eftir að A hafði innt þau af hendi 6. maí 2019 hefði I ohf. ekki getað sótt frekari heimild í greinina til að aftra áfram för þotunnar enda fengi slíkt ekki samræmst vernd eignarréttar A, sbr. 72. gr. stjórnarskrárinnar. Kæmi því hvorki til álita í málinu bótaábyrgð I ohf. á hendur A á grundvelli 1. mgr. 96. gr. laga nr. 90/1989 né Í á grundvelli sakarreglunnar og voru þau sýknuð af kröfum í aðalsök. Af niðurstöðum í aðalsök leiddi að stöðvunarheimild umræddrar 136. gr. laga nr. 60/1998 náði aðeins til þeirra gjalda sem stofnað hafði verið sérstaklega til vegna viðkomandi loftfars. I ohf. var auk þess virt til sakar að gera samkomulag við W hf. um tilhögun greiðslu og tryggingu allra gjaldfallinna krafna vegna allra loftfara á vegum flugfélagsins. Á tjóni sem af því leiddi bæri I ohf. ábyrgð og væri bótaskyldur gagnvart A vegna tjóns sem hann varð fyrir á tímabilinu frá 6. maí til 18. júlí 2019. Hins vegar var I ohf., í samræmi við niðurstöðu í aðalsök, sýknaður af kröfu um skaðabætur vegna þeirrar greiðslu sem hann innti af hendi 6. maí 2019. Að öðru leyti þótti skaðabótakrafa hans svo vanreifuð að henni var af sjálfsdáðum vísað frá héraðsdómi.

Hæstiréttur birt 23. september 2019

43/2019

Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður) gegn ALC A321 7237 LLC (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður)

ALC krafðist þess að sér yrði heimilað að fá loftfar tekið með beinni aðfarargerð úr vörslum I ohf. og afhent sér. Með úrskurði héraðsdóms var krafa ALC tekin til greina og kveðið á um að málskot frestaði ekki aðfarargerðinni. Í úrskurði Landsréttar, sem staðfestur var í Hæstarétti með vísan til forsendna hans, kom fram að ALC hefði þegar fengið umráð loftfarsins. Var því talið að I ohf. hefði ekki lengur lögvarða hagsmuni af því að fá hnekkt niðurstöðu héraðsdóms og málinu því vísað frá Landsrétti.

Landsréttur birt 3. júlí 2019

321/2019

Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður) gegn ALC A321 7237, LLC (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu ALC um að því yrði heimilað að fá tilgreinda farþegaþotu tekna með beinni aðfarargerð úr vörslum I ohf. og afhenta sér. Í úrskurði Landsréttar var ekki fallist á aðalkröfu ALC um frávísun málsins frá Landsrétti með vísan til forsendna í dómi Hæstaréttar í máli nr. 29/2019 og þar sem að þeir hagsmunir sem innsetningarbeiðnin varðaði svöruðu til lágmarks áfrýjunarfjárhæðar samkvæmt 1. mgr., sbr. 3. mgr. 152. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og 3. málslið 4. mgr. 84. gr. laga nr. 90/1989 um aðför. Þegar af þeirri ástæðu að fyrir Landsrétti krafðist ALC til vara staðfestingar á úrskurði héraðsdóms, sem fæli í sér samþykki á þeim þætti dómkröfu I ohf., sem laut að staðfestingu á niðurstöðu héraðsdóms um að synja ALC um heimild til aðfarargerðar, var niðurstaða hins kærða úrskurðar staðfest um annað en málskostnað. Í úrskurði Landsréttar kom fram að ekki væri með því tekin afstaða til þess hvort forsendur hins kærða úrskurðar um önnur atriði en lytu að niðurstöðu úrskurðarins stæðust.

Hæstiréttur birt 27. júní 2019

29/2019

ALC A321 7237 LLC (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður) gegn Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður)

Kærður var úrskurður Landsréttar en með honum var staðfestur úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu ALC um að því yrði heimilað að fá tilgreint loftfar tekið með beinni aðfarargerð úr vörslum I ohf. og afhent sér. I ohf. hafði fyrir Landsrétti krafist þess að úrskurður héraðsdóms yrði staðfestur um annað en málskostnað en ALC hafði aðallega krafist þess að málinu yrði vísað þaðan frá dómi og til vara staðfestingar úrskurðarins. Í hinum kærða úrskurði hafnaði Landsréttur aðalkröfu ALC en tók að því búnu til endurskoðunar forsendur úrskurðar héraðsdóms sem var svo staðfestur að niðurstöðu til. Í dómi Hæstaréttar kom fram að ef ALC hefði jafnframt kært úrskurð héraðsdóms fyrir sitt leyti til Landsréttar og krafist þess að breytt yrði niðurstöðu hans hefði orðið að taka úrlausn héraðsdóms um einstakar málsástæður aðilanna til endurskoðunar eftir þeirri meginreglu sem fælist í 1. mgr. 98. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála að samþykki málsaðili dómkröfur sem gagnaðili beinir að honum verði ekki í dómsúrlausn tekin afstaða til málsástæðna að baki viðkomandi kröfu eða hluta hennar heldur verði niðurstaða reist á samþykki einu og sér. Í skilningi fyrrefnds ákvæðis fólst í varakröfu ALC fyrir Landsrétti samþykki á þeim þætti í dómkröfum I ohf. sem laut að staðfestingu úrskurðar héraðsdóms um að synja ALC um heimild til aðfaragerðar. Hefði því Landsrétti borið að verða við kröfu I ohf. og staðfesta niðurstöðu úrskurðarins um þetta atriði án þess að taka á nokkurn hátt afstöðu til röksemda fyrir henni og leysa einvörðungu úr ágreiningi aðilanna um málskostnað. Var því talið að með hinum kærða úrskurði hefði í verulegum atriðum verið vikið frá réttri meðferð málsins og því óhjákvæmilegt án kröfu að ómerkja úrskurðinn og vísa málinu á ný til Landsréttar til löglegrar meðferðar.

Hæstiréttur birt 24. maí 2012

536/2011

Flugþjónustan ehf (Ólafur Eiríksson hrl) gegn Isavia ohf (Stefán A. Svensson hrl)

A varð fyrir líkamstjóni er hann stökk yfir steinvegg við Fylkisheimilið og niður á steinsteypta stétt. Í viðurkenndi bótaskyldu og hafði greitt A skaðabætur sem námu ¾ hlutum af tjóni hans en taldi að A ætti sjálfur að bera ¼ hluta tjónsins vegna eigin sakar. Ljóst þótti að A hefði umrætt sinn verið undir áhrifum áfengis. Taldi Hæstiréttur að A hefði sýnt af sér verulegt gáleysi er hann tók þá hvatvísu ákvörðun að hlaupa í áttina að húsinu og stökkva yfir vegginn án þess að aðgæta hvernig aðstæður væru handan veggjarins. Þótti rétt að hann yrði látinn bera fjórðung tjóns síns sjálfur. Ekki voru talin efni til að beita lækkunarheimild í 24. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Var Í því sýknað af kröfu A.