Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

8 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 136. gr. laga nr. 60/1998 — Lög um loftferðir

Hæstiréttur birt 6. maí 2024

34/2023

Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður) gegn ALC A321 7237, LLC, íslenska ríkinu, ALC A321 7237 (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður) og LLC (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

I ohf. höfðaði skaðabótamál á hendur A og Í vegna innsetningar í loftfar sem fór fram á grundvelli dómsúrskurðar. I ohf. hafði á grundvelli 1. mgr. 136 gr. þágildandi laga nr. 60/1998 um loftferðir aftrað för farþegaþotu A frá Keflavíkurflugvelli vegna gjaldfallinna krafna á hendur flugfélaginu W hf. sem var leigutaki þotunnar en bú þess hafði verið tekið til gjaldþrotaskipta. A krafðist innsetningar í þotuna sem héraðsdómur heimilaði og féllst ekki á frestun réttaráhrifa úrskurðar þar um. Var þotunni í framhaldinu flogið af landi brott. Bótakröfu sína á hendur A reisti I ohf. einkum á hlutlægri bótareglu 1. mgr. 96. gr. laga nr. 90/1989 en gagnvart Í byggði hann á sakarreglunni. A höfðaði gagnsök gegn I ohf. og byggði á því að sú framganga I ohf. að hindra brottför þotunnar frá Keflavíkurflugvelli á grundvelli fjárkrafna sem hann hefði ekki borið ábyrgð á hefði verið ólögmæt og saknæm og valdið sér tjóni. Hæstiréttur féllst ekki á það með I ohf. að A hefði undir rekstri aðfararmálsins ráðstafað sakarefni málsins með bindandi hætti enda yrði úrskurði í slíku máli ekki jafnað til dóms í einkamáli. Við mat á því hvort umdeild aðfarargerð fengi staðist taldi rétturinn að ríkar kröfur yrðu jafnan gerðar til lagaheimildar sem fæli í sér greiðsluþvingun, sérstaklega við aðstæður þar sem kröfur beindust að eiganda loftfars sem ekki hefði átt í kröfuréttarsambandi við rekstraraðila flugvallar. Lagareglan hefði verið ónákvæm og ókleift fyrir I ohf. að fullnusta í þotu A þá fjárkröfu sem W hf. hafði stofnað til gagnvart I ohf. enda hefði hann hvorki notið haldsréttar, handveðs eða annarra tryggingarréttinda í þotunni. Þá kæmu lögveðsréttindi sem bætt var í lög undir rekstri aðfararmálsins ekki til álita þegar af þeirri ástæðu að ekki hefði verið byggt á þeim af hálfu I ohf. Fallist var á að beiting stöðvunarheimildar á grundvelli 1. mgr. 136. gr. laga nr. 60/1998 hefði þó verið lögmæt vegna þeirra gjalda sem stofnað hafði verið til sérstaklega vegna umrædds loftfars en eftir að A hafði innt þau af hendi 6. maí 2019 hefði I ohf. ekki getað sótt frekari heimild í greinina til að aftra áfram för þotunnar enda fengi slíkt ekki samræmst vernd eignarréttar A, sbr. 72. gr. stjórnarskrárinnar. Kæmi því hvorki til álita í málinu bótaábyrgð I ohf. á hendur A á grundvelli 1. mgr. 96. gr. laga nr. 90/1989 né Í á grundvelli sakarreglunnar og voru þau sýknuð af kröfum í aðalsök. Af niðurstöðum í aðalsök leiddi að stöðvunarheimild umræddrar 136. gr. laga nr. 60/1998 náði aðeins til þeirra gjalda sem stofnað hafði verið sérstaklega til vegna viðkomandi loftfars. I ohf. var auk þess virt til sakar að gera samkomulag við W hf. um tilhögun greiðslu og tryggingu allra gjaldfallinna krafna vegna allra loftfara á vegum flugfélagsins. Á tjóni sem af því leiddi bæri I ohf. ábyrgð og væri bótaskyldur gagnvart A vegna tjóns sem hann varð fyrir á tímabilinu frá 6. maí til 18. júlí 2019. Hins vegar var I ohf., í samræmi við niðurstöðu í aðalsök, sýknaður af kröfu um skaðabætur vegna þeirrar greiðslu sem hann innti af hendi 6. maí 2019. Að öðru leyti þótti skaðabótakrafa hans svo vanreifuð að henni var af sjálfsdáðum vísað frá héraðsdómi.

Landsréttur birt 12. maí 2023

37/2022

LANDSRÉTTUR og Dómur föstudaginn 12. maí 2023. og Mál nr. 37/2022: og ALC A321 7237 og LLC (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður) og íslenska ríkið (Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir lögmaður) gegn Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður)

Með hinum áfrýjaða dómi voru ALC og Í dæmdir bótaskyldir vegna innsetningar í loftfar sem fór fram á grundvelli dómsúrskurðar þar sem héraðsdómari hefði með saknæmum hætti komist að efnislega rangri niðurstöðu í málinu. Í dómi Landsréttar var rakið að við mat á því hvort umrædd aðfarargerð næði fram að ganga reyndi efnislega á lögskýringu og túlkun heimildar 1. málsliðar 1. mgr. 136. gr. laga nr. 60/1998 um loftferðir til að aftra för loftfars af flugvelli vegna ógreiddra gjalda. Niðurstaða héraðsdómarans hefði byggt á þeim skilningi hans á ákvæðinu að heimilt væri að hamla för loftfars á meðan gjöld tengd viðkomandi loftfari væru ógreidd en ekki vegna annarra ógreiddra gjalda viðkomandi eiganda eða umráðamanns. Hefði hann því fallist á þá kröfu ALC að hann fengi farþegaþotuna afhenta með beinni aðfarargerð eftir að hann hafði greitt skuld WOW air hf. vegna hennar. Heimildin til að aftra för loftfars af flugvelli vegna ógreiddra gjalda samkvæmt 1. málslið 1. mgr. 136. gr. laga nr. 60/1998 um loftferðir fæli í sér lögheimilaða greiðsluþvingun og varðaði fyrst og fremst áfallin gjöld þess loftfars sem í hlut ætti en tæki samkvæmt orðanna hljóðan einnig til „annarrar starfsemi hlutaðeigandi eiganda eða umráðanda loftfarsins.“ Orðalag ákvæðisins væri að þessu leyti mjög opið og víðtækt og takmarkaði ekki hvaða starfsemi eða gjöld gætu legið til grundvallar en lögskýringargögn veittu engar vísbendingar þar um. Þegar litið væri til þeirrar skerðingar á nýtingarrétti eiganda loftfarsins sem af stöðvun þess leiddi og þeirra fjárhagslegu hagsmuna sem í húfi væru af þeim sökum yrði að gera kröfu til þess að almennt væri fyrirsjáanlegt hvaða gjöld stöðvun loftfarsins væri ætlað að tryggja. Ákvæðið væri verulega íþyngjandi og við túlkun þess bæri að líta til eignarréttarákvæðis stjórnarskrárinnar. Yrði því að telja að við skýringu þess bæri að beita þrengjandi lögskýringu eins og héraðsdómarinn gerði í fyrrgreindum úrskurði. Kæmi því hvorki til álita í málinu bótaábyrgð á hendur áfrýjanda ALC samkvæmt hlutlægri bótareglu 1. mgr. 96. gr. laga nr. 90/1989 né á hendur áfrýjanda, íslenska ríkinu, á grundvelli almennu sakarreglunnar. Voru þeir því sýknaðir af kröfum I ohf. í aðalsök. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu I ohf. af kröfum ALC í gagnsök. Loks var málskostnaður látinn niður falla.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2021

E-1085/2020

Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður) gegn ALC A321 7237 og LLC og gagnsök (Oddur Ástráðsson lögmaður) og og íslenska ríkinu (Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir lögmaður) og gagnsök

Stefndu dæmdir bótaskyldir vegna innsetningar í loftfar sem fór fram á grundvelli dómsúrkurðar sem var rangur og byggður á röngum forsendum vegna saknæmra mistaka dómara málsins.

Landsréttur birt 11. janúar 2021

704/2020

ALC A321 7237, LLC (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður) gegn Skúla Mogensen (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem vísað var frá dómi kröfum A, LLC gegn S í gagnsök þar sem þess var krafist að S og I ohf. yrði gert að greiða A, LLC óskipt tilteknar fjárhæðir ásamt tilgreindum vöxtum og dráttarvöxtum. Í hinum kærða úrskurði, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna, var talið að verulega skorti á að málsgrundvöllur A, LLC væri í heild sinni nægilega skýr og væru þeir annmarkar svo verulegir að kæmi niður á möguleikum S til að halda uppi vörnum í málinu.

Hæstiréttur birt 23. september 2019

43/2019

Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður) gegn ALC A321 7237 LLC (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður)

ALC krafðist þess að sér yrði heimilað að fá loftfar tekið með beinni aðfarargerð úr vörslum I ohf. og afhent sér. Með úrskurði héraðsdóms var krafa ALC tekin til greina og kveðið á um að málskot frestaði ekki aðfarargerðinni. Í úrskurði Landsréttar, sem staðfestur var í Hæstarétti með vísan til forsendna hans, kom fram að ALC hefði þegar fengið umráð loftfarsins. Var því talið að I ohf. hefði ekki lengur lögvarða hagsmuni af því að fá hnekkt niðurstöðu héraðsdóms og málinu því vísað frá Landsrétti.

Landsréttur birt 29. ágúst 2019

549/2019

Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður) gegn ALC A321 7237, LCC (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem fallist var á kröfu ALC um að því yrði heimilað að fá tilgreinda farþegaþotu tekna úr umráðum sóknaraðila með beinni aðfarargerð og kveðið á um að málskot til Landsréttar frestaði ekki aðfarargerðinni. Í úrskurði Landsréttar kom fram að varnaraðili hefði fengið umráð farþegaþotu sinnar hinn 18. júlí síðastliðinn og sóknaraðili hefði því ekki lengur lögvarða hagsmuni af því að fá hnekkt niðurstöðu hins kærða úrskurðar. Þegar af þeirri ástæðu þótti ekki tilefni til að fjalla um þá niðurstöðu héraðsdóms að málskot fresti ekki réttaráhrifum úrskurðarins. Málinu var vísað því frá Landsrétti að öðru leyti en hvað varðaði ágreining um málskostnað í héraði.

Landsréttur birt 3. júlí 2019

321/2019

Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður) gegn ALC A321 7237, LLC (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu ALC um að því yrði heimilað að fá tilgreinda farþegaþotu tekna með beinni aðfarargerð úr vörslum I ohf. og afhenta sér. Í úrskurði Landsréttar var ekki fallist á aðalkröfu ALC um frávísun málsins frá Landsrétti með vísan til forsendna í dómi Hæstaréttar í máli nr. 29/2019 og þar sem að þeir hagsmunir sem innsetningarbeiðnin varðaði svöruðu til lágmarks áfrýjunarfjárhæðar samkvæmt 1. mgr., sbr. 3. mgr. 152. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og 3. málslið 4. mgr. 84. gr. laga nr. 90/1989 um aðför. Þegar af þeirri ástæðu að fyrir Landsrétti krafðist ALC til vara staðfestingar á úrskurði héraðsdóms, sem fæli í sér samþykki á þeim þætti dómkröfu I ohf., sem laut að staðfestingu á niðurstöðu héraðsdóms um að synja ALC um heimild til aðfarargerðar, var niðurstaða hins kærða úrskurðar staðfest um annað en málskostnað. Í úrskurði Landsréttar kom fram að ekki væri með því tekin afstaða til þess hvort forsendur hins kærða úrskurðar um önnur atriði en lytu að niðurstöðu úrskurðarins stæðust.

Hæstiréttur birt 27. júní 2019

29/2019

ALC A321 7237 LLC (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður) gegn Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður)

Kærður var úrskurður Landsréttar en með honum var staðfestur úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu ALC um að því yrði heimilað að fá tilgreint loftfar tekið með beinni aðfarargerð úr vörslum I ohf. og afhent sér. I ohf. hafði fyrir Landsrétti krafist þess að úrskurður héraðsdóms yrði staðfestur um annað en málskostnað en ALC hafði aðallega krafist þess að málinu yrði vísað þaðan frá dómi og til vara staðfestingar úrskurðarins. Í hinum kærða úrskurði hafnaði Landsréttur aðalkröfu ALC en tók að því búnu til endurskoðunar forsendur úrskurðar héraðsdóms sem var svo staðfestur að niðurstöðu til. Í dómi Hæstaréttar kom fram að ef ALC hefði jafnframt kært úrskurð héraðsdóms fyrir sitt leyti til Landsréttar og krafist þess að breytt yrði niðurstöðu hans hefði orðið að taka úrlausn héraðsdóms um einstakar málsástæður aðilanna til endurskoðunar eftir þeirri meginreglu sem fælist í 1. mgr. 98. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála að samþykki málsaðili dómkröfur sem gagnaðili beinir að honum verði ekki í dómsúrlausn tekin afstaða til málsástæðna að baki viðkomandi kröfu eða hluta hennar heldur verði niðurstaða reist á samþykki einu og sér. Í skilningi fyrrefnds ákvæðis fólst í varakröfu ALC fyrir Landsrétti samþykki á þeim þætti í dómkröfum I ohf. sem laut að staðfestingu úrskurðar héraðsdóms um að synja ALC um heimild til aðfaragerðar. Hefði því Landsrétti borið að verða við kröfu I ohf. og staðfesta niðurstöðu úrskurðarins um þetta atriði án þess að taka á nokkurn hátt afstöðu til röksemda fyrir henni og leysa einvörðungu úr ágreiningi aðilanna um málskostnað. Var því talið að með hinum kærða úrskurði hefði í verulegum atriðum verið vikið frá réttri meðferð málsins og því óhjákvæmilegt án kröfu að ómerkja úrskurðinn og vísa málinu á ný til Landsréttar til löglegrar meðferðar.