Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lagagrein: 136. gr. laga nr. 55/1987 — Tollalög
Karlmaður sakfelldur fyrir fíkniefnabrot og brot gegn tolla- og lyfjalögum.
Ákæruvaldið (
Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari)
gegn
Ásgeiri Þór Erlendssyni (
Kristján Stefánsson hrl)
Fyrrverandi lögreglumaður á Keflavíkurflugvelli dæmdur til 7.500 króna sektargreiðslu fyrir ólöglegan innflutning á munntóbaki.
Ákæruvaldið (
Sævar Lýðsson fulltrúi)
gegn
Telst þetta varða við 1. mgr. 123. gr., sbr. 124. gr. og 135. gr. tollalaga nr. 55/1987, sbr. 20. gr. tollalaga, sbr. 9. gr. laga nr. 69/1996, sbr. 1., 2. og 10. gr. reglugerðar um tollmeðferð vara sem ferðamenn og farmenn hafa með sér við komu til landsins nr. 526/2000, sbr. reglugerð nr. 13/2002.“, Í ákæru er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og að honum verði gert að sæta upptöku á framangreindum varningi, Ákærði krefst þess aðallega sýknu af refsikröfu ákæruvalds, en til vara að honum verði einungis gerð vægasta refsing sem lög leyfa. Þá er þess krafist að upptökukröfu verði hafnað og I (
Anna Linda Bjarnadóttir hdl)
K var sakfelldur fyrir tollalagabrot, en við leit í farangri hans við komu til Keflavíkurflugvallar fundust skartgripir og annar varningur sem hann taldist ekki hafa framvísað með tilskildum hætti. Var K gert að greiða 800.000 krónur í sekt og haldlagður varningur gerður upptækur.
Kærumál. Hald. Upptaka. Áfengislög. Einkamál. Frávísunarúrskurður felldur úr gildi. H kærði úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem máli hans á hendur T var vísað frá dómi. Í málinu krafðist H ógildingar á haldlagningu og síðari upptöku tollstjóra á vökva sem notaður er til matargerðar, en inniheldur nokkurt áfengi. Krafðist H einnig skila á vökvanum. Talið var að H bæri réttur til þess að fá úrlausn um réttindi þau, er kröfugerð hans lyti að. Ekki var fallist á að með mál, er höfðað væri af einkaaðila til ógildingar á haldlagningu og upptöku eigna og skila á þeim, með þeim hætti sem gert væri í málinu, bæri að fara eftir lögum um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Talið var að með mál H ætti þess í stað að fara eftir reglum laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Völundi Helga Þorbjörnssyni (
Ólafur Sigurgeirsson hrl)
Ákærði krefst aðallega sýknu, en til vara að refsing verði milduð. Þá er krafist málsvarnarlauna í héraði ef sýknað verður, en fyrir Hæstarétti hver sem úrslit málsins verða. Í greinargerð ákærða fyrir Hæstarétti var meðal annars teflt fram þeirri málsvörn, að ekkert liggi fyrir um að í töflunum, sem greinir í II. kafla ákæru, sé karlkynshormón með svonefndri anabóliskri verkun. Af því tilefni hlutaðist ákæruvaldið til um að töflur, sem nefndur kafli ákæru tekur til, yrðu sérstaklega rannsakaðar hjá lyfjafræðistofnun Háskóla Íslands. Voru rannsökuð þrjú sýni, þar sem 30 töflur voru í hverju. Í skýrslu stofnunarinnar 21. maí 1999, sem lögð hefur verið fyrir Hæstarétt, kemur fram að í töflunum sé metandróstenólon (methandienone), 5 mg í hverri töflu. Kemur þar jafnframt fram sú skýring, að metandróstenólon sé testósterónlíkt lyf með mikla bolsteraverkun, en hið síðastnefnda sé aðal karlhormónið í líkamanum. Þessi niðurstaða er í samræmi við skýringu ákærða við rannsókn málsins fyrir lögreglu þess efnis að um sé að ræða stera, sem hann kvaðst hafa ætlað til eigin nota. Með vísan til forsendna héraðsdóms verður staðfest sakfelling ákærða fyrir öll atriði ákærunnar. Við ákvörðun refsingar vegna brota, sem getið er í III. kafla hennar, verður litið til 5. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 3. gr. laga nr. 57/1997. Að þessu gættu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin í héraðsdómi. Verður jafnframt staðfest niðurstaða héraðsdóms um eignaupptöku, sviptingu ökuréttar og sakarkostnað. Þá skal ákærði greiða allan áfrýjunarkostnað málsins, svo sem greinir í dómsorði.