Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Áfengislög
Kærumál. Hald. Upptaka. Áfengislög. Einkamál. Frávísunarúrskurður felldur úr gildi. H kærði úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem máli hans á hendur T var vísað frá dómi. Í málinu krafðist H ógildingar á haldlagningu og síðari upptöku tollstjóra á vökva sem notaður er til matargerðar, en inniheldur nokkurt áfengi. Krafðist H einnig skila á vökvanum. Talið var að H bæri réttur til þess að fá úrlausn um réttindi þau, er kröfugerð hans lyti að. Ekki var fallist á að með mál, er höfðað væri af einkaaðila til ógildingar á haldlagningu og upptöku eigna og skila á þeim, með þeim hætti sem gert væri í málinu, bæri að fara eftir lögum um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Talið var að með mál H ætti þess í stað að fara eftir reglum laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Bjartmari Vigni Þorgrímssyni (
Ragnar Aðalsteinsson hrl)
B var ákærður fyrir að hafa fimm sinnum hafið framleiðslu ólöglegs áfengis á heimili sínu. Talið sannað með játningu ákærða að hann hefði brotið gegn ákvæðum áfengislaga. Í Hæstarétti var, með vísan til 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, dæmt eftir nýjum áfengislögum nr. 75/1998, er tóku gildi 1. júlí 1998, eftir að héraðsdómur gekk. Ekki var fallist á frávísunarkröfu ákærða þar sem talið var að refsikröfur hefðu verið nægilega ákveðnar í ákærum og var málatilbúnaður ákæruvaldsins ekki talinn andstæður 1. málsl. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. samnings um verndun mannréttinda og mannfrelsis, sbr. lög 62/1994. Við ákvörðun refsingar var tekið tillit til þess að um ítrekað brot var að ræða. Dómur héraðsdóms um sakfellingu og ákvörðun viðurlaga staðfestur.