Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

7 dómar fundust

Lagagrein: 22. gr. laga nr. 49/2005 — Lög um fullnustu refsinga

Hæstiréttur birt 12. júlí 2013

469/2013

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Karl Vilbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson hrl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stæði. Samkvæmt gögnum málsins voru ekki talin efni til að fallast á kröfu X um að mæla fyrir um dvöl hans á sjúkrahúsi í stað gæsluvarðhalds enda bæri samkvæmt 22. gr. laga nr. 49/2005 um fullnustu refsinga að veita honum viðeigandi heilbrigðisþjónustu meðan á gæsluvarðhaldinu stæði, sbr. 2. mgr. 77. gr. sömu laga.

Hæstiréttur birt 6. febrúar 2013

80/2013

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Jónas Þór Jónasson hrl)

Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, var staðfestur. Hafnað var kröfu X um að í stað gæsluvarðhalds skyldi hann vistaður á sjúkrahúsi eða viðeigandi stofnun.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. febrúar 2007

S-1948/2006

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn X (Guðrún Sesselja Arnardóttir hdl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ungur karlmaður, 16 ára að aldri, var dæmdur í 4 ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps með því að hafa stungið mann í bakið með hnífi. Þá var hann dæmdur til að greiða brotaþola 600.000 kr. í miskabætur auk vaxta.