Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 2. gr. laga nr. 41/1999 — Lög um Háskóla Íslands

Hæstiréttur birt 25. október 2007

109/2007

Ásatrúarfélagið (Steingrímur Gautur Kristjánsson hrl, Sveinn Guðmundsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Skarphéðinn Þórisson hrl, Þórður Bogason hdl)

Áfrýjandi, sem er skráð trúfélag, reisti kröfu sína á því að þjóðkirkjan fengi að lögum meiri greiðslur úr ríkissjóði en önnur trúfélög og í því fælist ólögmæt mismunun. Vísaði áfrýjandi til framlaga úr ríkissjóði er rynnu annars vegar í jöfnunarsjóð sókna og hins vegar í kirkjumálasjóð. Áfrýjandi byggði á því að skýra bæri 62. gr. og 65. gr. stjórnarskrárinnar til samræmis, á þá leið að samkvæmt jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar væri ólögmætt að gera upp á milli trúfélaga í löggjöf um stuðning við þau. Í niðurstöðu sinni vísaði Hæstiréttur til þeirra lögbundnu verkefna sem þjóðkirkjunni væri falið meðal annars með ákvæðum laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 og þeirrar staðreyndar að starfsmenn þjóðkirkjunnar væru opinberir starfsmenn með réttindi og skyldur sem slíkir gagnvart öllum almenningi. Áfrýjandi væri hins vegar skráð trúfélag samkvæmt lögum um skráð trúfélög nr. 108/1999 og í þeim væru engin sambærileg ákvæði sem kvæðu á um starfsemi og réttindi og skyldur starfsmanna þeirra. Þegar af þeirri ástæðu að verkefni áfrýjanda og skyldur gagnvart samfélaginu yrðu ekki borin saman við lögboðin verkefni og skyldur þjóðkirkjunnar fælist ekki mismunun í því mati löggjafans að ákveða framlög til þjóðkirkjunnar úr ríkissjóði umfram önnur trúfélög og þar með ekkert brot á jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu stefnda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. nóvember 2006

E-197/2006

Ásatrúarfélagið (Steingrímur Gautur Kristjánsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Sigurður Gísli Gíslason hdl)

Íslenska ríkið var sýknað af kröfum Ásatrúarfélagsins um greiðslu sambærilegra gjalda miðað við höfðatölu félagsmanna og greidd eru í kirkjumálasjóð og Jöfnunarsjóð sókna samkvæmt 2. gr. laga um kirkjumálasjóð og 5. gr. laga um sóknargjöld o.fl.

Hæstiréttur birt 16. desember 2004

390/2004

Jón Ragnar Stefánsson (Kristinn Bjarnason hrl) gegn Háskóla Íslands (Hörður Felix Harðarson hrl)
Lykilorð: Opinberir starfsmenn.

Í tengslum við gerð nýs kjarasamnings í apríl 2001 samþykkti háskólaráð að hverfa frá því að veita háskólakennurum þá lækkun á kennsluskyldu við 55 og 60 ára aldur, sem ráðið hafði ákveðið árið 1987. Kennsluskylda J hafði minnkað í samræmi við eldri ákvörðunina í febrúar 1996 og aftur í febrúar 2001, er hann varð sextugur. Var fallist á með J að orðalag samþykktarinnar frá í apríl 2001 væri ekki svo skýrt sem skyldi að því er varðaði stöðu þeirra, sem þegar höfðu hlotið lækkun kennsluskyldu. Síðari samþykkt háskólaráðs, frá október 2001, hefði þó tekið af öll tvímæli um þetta, þar sem áréttað var að samþykktin frá 1987 væri úr gildi fallin. Var það talið innan valdmarka háskólaráðs að fella úr gildi reglurnar frá 1987 og setja nýjar reglur um skiptingu starfsskyldna háskólakennara. Í málinu hafi ekki verið byggt á því að breytingarnar hefðu haft í för með sér skerðingu á launakjörum J í skilningi 19. gr. starfsmannalaga. Breytingarnar hafi verið málefnalegar og tekið jafnt til allra, sem eins var ástatt um. Var ekki talið að með breytingunum hafi réttindi J verið skert í merkingu fyrrnefnds ákvæðis starfsmannalaga. Var H sýknaður af kröfum J í málinu.