Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 13. gr. laga nr. 14/1905 — Lög um fyrning skulda og annarra kröfuréttinda

Hæstiréttur birt 1. júní 2022

53/2021

Landsbankinn hf (Hannes J. Hafstein lögmaður) gegn Arana George Kuru (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)

L hf., sem hafði tekið við réttindum LÍ hf., höfðaði mál gegn A og krafðist þess að honum yrði gert að þola að fjárnám vegna skuldar Þ ehf. á grundvelli skuldabréfs frá 6. desember 2007 inn í veðrétt samkvæmt tryggingarbréfi útgefnu 21. mars 2007 áhvílandi á fasteign A. Þ ehf. hafði gefið tryggingabréfið út til LÍ hf. til tryggingar öllum skuldum sínum við bankann en þáverandi fyrirsvarsmaður Þ ehf. er tengdafaðir A. Skuldabréfið fór í vanskil frá og með 1. desember 2008. Bú Þ ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta á árinu 2010 og lauk skiptum á árinu 2013 án þess að greiðsla fengist upp í lýstar kröfur. Hæstiréttur féllst ekki á málsástæður A um að krafan hafi fallið niður í kjölfar gjaldþrotaskipta á búi Þ ehf., hefði þegar verið greidd, væri fallin niður fyrir fyrningu eða tómlæti eða víkja bæri ábyrgð samkvæmt tryggingarbréfinu til hliðar í heild eða að hluta á grundvelli 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga. Um varnir stefnda byggðar á 2. mgr. 7. gr. laga nr. 32/2009 um ábyrgðarmenn tók Hæstiréttur fram að fyrir lægi að L hf. hefði sent tvær tilkynningar um stöðu skuldar samkvæmt skuldabréfinu á veðandlagið þar sem A var áður til heimilis en lögheimili hans var þá skráð á Nýja-Sjálandi. Með hliðsjón af orðalagi 2. mgr. 7. gr. gætu eignarréttindi L hf. sem stofnast hefði til í formi veðtryggingarinnar ekki fallið niður á grunni þess lagaboðs nema A leiddi í ljós að L hf. hafi við beitingu réttinda sinna valdið honum öðrum og meiri skaða en tekið hefði verið tillit til í uppgjöri gagnvart honum. Hæstiréttur taldi að A hefði ekki sýnt fram á það þannig að telja skyldi að vanræksla L hf. væri svo veruleg í skilningi 2. mgr. 7. gr. að ábyrgð A skyldi að öllu leyti falla niður. Á hinn bóginn taldi Hæstiréttur að vanræksla L hf. hefði leitt til þess að ætla yrði að A hefði orðið fyrir tjóni af þeim sökum. Var A gert að þola fjárnám vegna fjárhæðar sem nam höfuðstól kröfunnar miðað við 1. desember 2008 en dráttarvextir yrðu þó aðeins reiknaðir frá uppsögu dóms Hæstaréttar til að tryggja skaðleysi hans.

Landsréttur birt 31. janúar 2020

250/2019

Landsbankinn hf (Ásgeir Jónsson lögmaður) gegn Hveratorgi ehf (Björgvin Þorsteinsson lögmaður, Gestur Gunnarsson lögmaður, 4. prófmál)

Fallist var á kröfu L hf. um heimild hans til að gera fjárnám inn í veðrétt sinn í fasteign í eigu H ehf. samkvæmt tryggingabréfi fyrir nánar tilgreindri skuld þriðja aðila.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. mars 2019

E-1090/2018

Landsbankinn hf (Ásgeir Jónsson lögmaður) gegn Hveratorgi ehf (Helga Björg Jónsdóttir lögmaður)

Fallist var á kröfu stefnanda um heimild hans til að gera fjárnám inn í veðrétt hans í fasteign stefnda samkvæmt tryggingarbréfi fyrir tiltekinni skuld þriðja aðila. Ekki var þó fallist á óbreytta dráttarvaxtakröfu stefnanda gagnvart veðþola.