Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

13 dómar fundust

Lykilorð: Skaðabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. maí 2022

E-3963/2018

Lyfjablóm ehf (Jón Þór Ólason lögmaður) gegn Þórði Má Jóhannessyni (Arnar Þór Stefánsson lögmaður) og og Sólveigu Guðrúnu Pétursdóttur (Ragnar Halldór Hall lögmaður)

Stefndu sýknuð af bótakröfu stefnanda vegna stofnunar og fjármögnunar fjárfestingafélags þar sem ósannað þótti að stefnanda hefði verið valdið tjóni með saknæmum hætti auk þess sem möguleg ábyrgð stefndu á málsatvikum væri fyrnd og stefnandi að auki sýnt af sér stórfellt tómlæti við að sækja ætlaðan rétt sinn.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. mars 2022

E-4877/2021

A (Björgvin Þórðarson lögmaður) gegn TM tryggingum hf (Valgeir Pálsson lögmaður)

Stefnandi slasaðist er hún féll í stiga líkamsræktarstöðvar. Slysið varð á tíma þegar ekki naut dagsbirtu og komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að slysið hefði orðið vegna þess að í stiganum hafi ekki verið forsvaranleg lýsing og umbúnaður í stiganum þar með ekki verið nægilega öruggur. Var fallist á að rekstraraðili líkamsræktarstöðvarinnar ætti sök á tjóni stefnanda og bótaskylda tryggingafélags stöðvarinnar viðurkennd.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. mars 2022

E-905/2018

A (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen lögmaður)

Fallist var á stærstan hluta endanlegrar dómkröfu einstaklings á hendu ríkinu um skaðabætur vegna varanlegs miska, tímabundins atvinnutjóns og þjáninga sem hann varð fyrir af völdum aðgerða lögreglu í apríl 2010.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. mars 2022

E-2130/2021

A (Þormóður Skorri Steingrímsson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

Einstaklingur sem lenti í umferðarslysi krafði tryggingafélag um frekari bætur úr tryggingu ökumanns bifreiðar sem olli tjóni. Tryggingafélagið hafði þegar greitt bætur að vissu marki og taldi tjón stefnanda fullbætt. Stefnandi taldi það uppgjör hafa miðast við of lág árslaun. Ekki var talið að stefnanda hefði tekist sönnun þess að viðmiðunarlaun við bótauppgjör hefðu verið of lág. Var tryggingafélagið því sýknað af kröfum hans.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. desember 2021

E-122/2021

Hulda Rós Guðnadóttir (Auður Tinna Aðalbjarnardóttir lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Dagmar Arnardóttir lögmaður)

Stefnandi, sem var leikstjóri og einn þriggja handritshöfunda kvikmyndar, krafðist bóta úr hendi stefnda vegna myndefnis úr kvikmyndinni sem notað var á sýningu Sjóminjasafnsins í Reykjavík. Fallist var á hluta af kröfu stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. maí 2021

E-7775/2020

A (Ingibjörg Pálmadóttir lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)
Lykilorð: Laun.. Skaðabætur.. Sönnun..

Einstaklingur lenti í umferðarslysi. Málið varðaði ágreining hans við tryggingafélag um uppgjör vegna tjónsins, en tryggingafélagið vildi skerða bætur til mannsins vegna fyrri slysa frá árinu 2004. Fallist var á kröfu tjónþola um óskertar bætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. apríl 2021

E-4334/2018

A (Erling Daði Emilsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Sigurður Ágústsson lögmaður)

Fyrrum starfsmanni járnblendiverksmiðju voru dæmdar skaðabætur úr tryggingu vinnuveitanda vegna atvinnusjúkdóms sem rakinn var til starfs mannsins. Manninum voru einnig dæmdar miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. desember 2020

E-5178/2019

A (Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason lögmaður)

Íslenska ríkið var sýknað af bótakröfu einstaklings vegna tjóns af völdum bólusetningar gegn svokallaðri svínaflensu, en einstaklingurinn hafði áður fengið greiddar bætur samkvæmt lögum um sjúklingatryggingu.