Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Líkamstjón.
Stefnandi slasaðist er hún féll í stiga líkamsræktarstöðvar. Slysið varð á tíma þegar ekki naut dagsbirtu og komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að slysið hefði orðið vegna þess að í stiganum hafi ekki verið forsvaranleg lýsing og umbúnaður í stiganum þar með ekki verið nægilega öruggur. Var fallist á að rekstraraðili líkamsræktarstöðvarinnar ætti sök á tjóni stefnanda og bótaskylda tryggingafélags stöðvarinnar viðurkennd.
Íslenska ríkið sýknað af bótakröfu konu sem varð fyrir líkamstjóni við fall fyrir utan Landspítala í Fossvogi. Ekki var talið sýnt fram á saknæma háttsemi starfsmanna spítalans við hálkuvarnir fyrir utan spítalann og því talið að um óhappatilvik hefði verið að ræða.