Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lykilorð: Sameignarfélög

Héraðsdómur Austurlands birt 27. apríl 2017

E-45/2015

Ice Lagoon ehf (Jón Gunnar Ásbjörnsson hdl) gegn Sveitarfélaginu Hornafirði (Auðun Helgason hdl)

Fallist var á kröfu stefnanda um ógildingu stjórnvaldsákvörðunar. Um var að ræða synjun byggingarfulltrúa sveitarfélags á beiðni stefnanda um stöðuleyfi fyrir lausafjármun (húskerru) á austurbakka Jökulsárlóns. Aðila greindi á um það hvort samþykki eiganda eða lóðarhafa lægi fyrir í skilningi 2.6.1. gr. byggingareglugerðar nr. 112/2012, túlkun þess ákvæðis og hvaða kröfur til sönnunar yrðu gerðar í þeim efnum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. júlí 2016

E-3689/2015

Reynivellir ehf (Arnar Þór Stefánsson hrl) gegn Sameigendafélagi Fells (Jón Gunnar Ásbjörnsson hdl)

Lögaðili, sem átti hlutdeild í jörð með 32 öðrum eigendum, krafðist hlutdeildar í tekjum af jörðinni. Talið var að stefnandi hefði glatað rétti til meginhluta hlutdeildar sinnar í tekjunum fyrir tómlæti og honum því einungis dæmdur réttur til ríflega 20% þeirrar fjárhæðar sem hann krafðist.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. september 2015

E-3085/2015

Rupal Patel (Einar Brynjarsson lögmaður) gegn Chandriku Gunnarsson og dánarbúi Gunnars Gunnarssonar (Ólafur Garðarsson lögmaður)

Stefndu voru vinir og viðskiptafélagar stefnanda og eiginmanns hennar. Stefnandi krafði stefndu um tiltekna fjárhæð í tengslum við uppgjör innan óskráðs sameignarfélags, sem stefnandi hélt því fram að hefði komist á með samkomulagi málsaðila samkvæmt lögum Georgíu-fylkis í Bandaríkjunum. Ósannað var talið að til slíks samkomulags hefði stofnast með málsaðilum og nægði stefnanda í þeim efnum ekki að vísa til dóms bandarísks dómstóls í Cobb-sýslu í Georgíu. Voru stefndu því sýknuð af dómkröfu stefnanda.