Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lykilorð: Hlutlæg ábyrgð

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. júní 2024

E-6927/2023

A (Höskuldur Þór Þórhallsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu og Skattinum (Óskar Thorarensen lögmaður)

Stefnandi hafði uppi skaðabótakröfu m.a. gegn íslenska ríkinu vegna tjóns sem hann kvaðst hafa orðið fyrir vegna haldlagningar bifreiðar í tengslum við rannsókn sakamáls sem síðar var fellt niður. Bótakrafa stefnanda greindist í tvo kröfuliði og varðaði annar kostnað vegna öflunar annarra bifreiða meðan á haldlagningunni stóð en hinn laut að lögmannskostnaði vegna aðstoðar við að fá haldinu aflétt. Fyrri kröfulið stefnanda var hafnað þar sem hann hafði ekki sannað tjón sitt en fallist var á síðari kröfuliðinn að hluta og stefnanda dæmdar bætur að álitum á grundvelli hlutlægrar bótareglu 1. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 2. mgr. ákvæðisins. Kröfum stefnanda á hendur Skattinum var vísað frá dómi án kröfu auk þess sem dráttarvaxtakröfu hans var jafnframt vísað frá dómi þar sem hún uppfyllti ekki kröfur d-liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

Héraðsdómur Vesturlands birt 8. júní 2022

E-275/2021

Blikkverk sf (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson lögmaður) gegn Akraneskaupstað (Sigurgeir Valsson lögmaður)

Sýknað af bóta- og viðurkenningarkröfu iðnfyrirtækis sem byggðist annars vegar á áhrifum skipulags á starfsemi félagsins og hins vegar meintum brotum stefnda á leigusamningi við félagið undir starfsemina.

Héraðsdómur Reykjaness birt 14. júní 2021

E-884/2020

Ingibjörg Ólafía Ólafsdóttir (Hróbjartur Jónatansson lögmaður) gegn Nauthóli ehf. (Sigurður Sigurjónsson lögmaður), Jóni Sigurði Ólafssyni (Ingólfur Vignir Guðmundsson lögmaður) og TM hf.

Stefndu sýknaðir af kröfu stefnanda um meint tjón á fasteigna hans, vegna fleygunar klappar á samliggjandi lóð. Viðurkenningarkröfu á hendur tryggingarfélagi vegna ábyrgðartryggingar byggingingarstjóra var vísað sjálfkrafa frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. mars 2021

E-578/2020

Craig Idaeho Osakapmwan (Bragi Björnsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen lögmaður)

Stefnanda dæmdar miskabætur vegna þess að hann sætti frelsisviptingu og -skerðingu sem sakborningur í aðdraganda og undir rekstri sakamáls, í mun lengri tíma heldur en sá dómur sem hann á endanum hlaut kvað á um.

Hæstiréttur birt 1. mars 2001

365/2000

Íslenska ríkið (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl) gegn Adolf Steinssyni (Gylfi Thorlacius hrl)

A krafði Í um bætur vegna fjárhagslegs og ófjárhagslegs tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir. Opinbert mál hafði verið höfðað gegn A vegna gruns um að hann hefði dregið sér fé en hann verið sýknaður. Taldi A að Í hefði bakað sér tjón með rannsóknaraðgerðum lögreglu og málsmeðferð í sakamálinu sem hefði verið höfðað án nægjanlegs tilefnis. Fallist var á að Í hefði ekki fært fram viðhlítandi rök fyrir því að nauðsyn hefði borið til að halda A í gæslu í rúmar tvær klukkustundir á rannsóknarstigi hins opinbera máls. Þá var fallist á að ekki hefði verið ástæða til að endurtaka leit á heimili A og í sameign fjöleignarhúss, sem hann bjó í. Voru honum dæmdar miskabætur vegna þessa. Þá var fallist á að A bæru skaðabætur vegna skyrtu sem lögregla hafði lagt hald á við rannsókn málsins en ekki skilað. Hins vegar var hafnað að ákvæði XXI. kafla laga nr. 19/1991 fælu í sér heimild til að dæma bætur vegna þess að A hefði verið sóttur til sakar án nægjanlegs tilefnis. Þótti ekki sýnt að skilyrði væru til slíkra bóta á grundvelli sakarreglunnar. Þá var hafnað kröfu A um bætur vegna mismunar á lögmannskostnaði samkvæmt gjaldskrá og tildæmdum málsvarnarlaunum í sakamálinu.