Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

10 dómar fundust

Lykilorð: Fjármál hjóna

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. júní 2019

E-3402/2018

A (Anna Svava Þórðardóttir lögmaður) gegn B (Sverrir Sigurjónsson lögmaður)

Aðilar, sem höfðu samið um uppgjör eigna sinna og skulda við hjúskaparslit, deildu um hvoru þeirra bæri að greiða tiltekinn gjalddaga iðgjalds brunatryggingar vegna fasteignar sem kom í hlut stefnanda við búskiptin ásamt kostnaði sem féll á kröfuna áður en stefnandi greiddi hana. Stefnda var gert að greiða þann kostnað og hluta iðgjaldsins.

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. apríl 2019

Q-3/2018

Málaflokkur: Erfðaréttur

Kröfu sóknaraðila, vegna ágreinings við fjárskipti hjóna, um að fasteignir væru séreignir hennar vegna arfs sem hún hafði fengið í hjónabandi var hafnað. Þá var varakröfu hennar um að skáskiptum yrði beitt við fjárslit hjónanna hafnað. Kröfu um að lán frá LÍN yrði ekki dregið frá hjúskapareign hjóna var vísað frá dómi. Kröfu vegna viðhalds á fasteign var vísað frá dómi.

Hæstiréttur birt 20. október 2011

720/2010

Þrotabú Ís-Spóns ehf (Helgi Birgisson hrl) gegn Margréti Ármann (Björn Jóhannesson hrl)

Þrotabú Í krafði M um greiðslu á tiltekinni fjárhæð vegna skuldbindinga sem eiginmaður hennar hafði gengist undir með samningi við Í, en Í hafði unnið við grunn og uppslátt á lóð sem M var leigutaki að. Hæstiréttur vísaði til þess að M hefði ekki skuldbundið sig með samningi til að ábyrgjast greiðslu á umræddum skuldbindingum eiginmanns síns og að 69. gr. hjúskaparlaga ætti ekki við í málinu. Yrði ábyrgð hennar heldur ekki leidd af því að hún væri leigutaki lóðarinnar. Staðfesti Hæstiréttur því niðurstöðu héraðsdóms um sýknu M.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. mars 2009

E-4551/2008

Lykilorð: Fjármál hjóna.

Krafist var að felldur yrði niður samningur um fjárskipti við skilnað, auk þess sem höfð var uppi fjárkrafa til leiðréttingar á skiptum. Ekki þóttu skilyrði til að fella niður samning á grundvelli 2. mgr. 95. gr. hjúskaparlaga og var stefndi sýknaður af kröfum stefnanda.

Hæstiréttur birt 8. september 2004

323/2004

Í málinu deildu aðilar um við hvaða tímamark skyldi miða úrlausn um eignir og skuldir við opinber skipti á búi þeirra. Með vísan til skýrra ákvæða 1. mgr. 101. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993, sbr. og 1. mgr. 104. gr. laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl., var fallist á kröfu M um að miða skyldi við það tímamark er sýslumaður tók fyrst fyrir umsókn K um leyfi til skilnaðar að borði og sæng.

Hæstiréttur birt 5. febrúar 2004

295/2003

Jóhann Þórisson og Þórný Kristmannsdóttir (Hilmar Ingimundarson hrl) gegn Kristínu Árnadóttur (Þorsteinn Einarsson hrl)
Lykilorð: Fjármál hjóna. Lausafé.

J og K höfðu verið í hjúskap og leituðu skilnaðar. Ekki tókst samkomulag um fjárskipti og var úrskurður um opinber skipti til fjárslita milli þeirra kveðinn upp 10. september 2002. J var skráður eigandi bifreiðar, sem hann afsalaði Þ þann 9. ágúst 2002. K krafðist ógildingar afsalsins og hafði skiptastjóri ekki uppi athugasemdir við að hún hefði uppi kröfuna í eigin nafni. Í héraðsdómi, sem staðfestur var með vísan til forsendna hans, var talið sýnt að umrædd bifreið hefði verið ætluð til persónulegra nota K og hefði J því verið framsalið óheimilt án samþykkis hennar samkvæmt 61. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993. Taldist Þ ekki hafa verið grandlaus um þessa aðstöðu í skilningi 65. gr. sömu laga og var fallist á ógildingu afsalsins.

Hæstiréttur birt 19. maí 2000

192/2000

Ingifríður Ragna Skúladóttir (Brynjólfur Kjartansson hrl) gegn Guðmundi Gunnarssyni (Jóhannes Rúnar Jóhannesson hdl)

Við opinber skipti til fjárslita milli I og G krafðist I þess að vikið yrði frá helmingaskiptareglu 103. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993 með vísan til 2. mgr. 104. gr. sömu laga. Reisti I kröfu sína á því að frá arfi eftir K, sem hún hlaut samkvæmt erfðaskrá, þar sem mælt hafði verið fyrir um að arfurinn skyldi vera séreign hennar, hefði verið dregin skuld hennar við K að fjárhæð 8.000.000 krónur, en fyrir eignir, sem kæmu til skipta I og G, hefði verið greitt af fénu. Talið var að þótt gögn málsins styrktu staðhæfingu I um að lánsfénu frá K hefði verið varið til kaupa á fasteign á samvistartíma I og G, skorti mjög á að viðhlítandi upplýsingar lægju að öðru leyti fyrir um fjármál aðilanna meðan þau voru samvistum og núverandi efnahag þeirra, en án slíkra upplýsinga væri ófært að leggja mat á hvort skilyrði væru til að beita ákvæði 2. mgr. 104. gr. laga nr. 31/1993. Var staðfestur úrskurður héraðsdóms um að hafna kröfu I.

Hæstiréttur birt 29. apríl 1999

383/1998

Hulda Hendrikka Waage (Björgvin Þorsteinsson hrl) gegn þrotabúi Ágústs Sverrissonar (Guðjón Ármann Jónsson hrl)

Á, eiginmaður H, var eigandi að íbúðinni G þegar hún var seld. Tæpum þremur árum síðar var bú Á tekið til gjaldþrotaskipta. Eina eign búsins var innistæða á bankareikningi. Bar Á að eiginkona sín hefði átt helming íbúðarinnar G og hefði eignarhluta hennar verið varið til kaupa á íbúðinni M og að auki hafi mismunurinn verið lagður inn á bankareikning sem fyrir misskilning hefði verið í nafni beggja. Höfðaði þrotabú Á mál til riftunar á gjöf Á til H. Krafist var frávísunar málsins á grundvelli þess að kröfur væru óskýrar og í ósamræmi hvor við aðra. Var ekki fallist á frávísunarkröfuna. Talið var að greiðslur Á til H hefðu verið gjöf og að kaupmáli milli Á og H hefði ekki verið gerður um gjöf í samræmi við 30. gr. þágildandi laga nr. 20/1923. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að gjöf Á til H væri ógild.