Ákærði var sakfelldur fyrir ölvunarakstur en ekki var talið sannað að hann hefði gerst sekur um brot í nánu sambandi eða brot gegn barnaverndarlögum.
Sýknað var af ákæru um líkamsárás og brot gegn barnaverndarlögum.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
X
Ákærða sakfelld fyrir brot gegn barnaverndarlögum.
Ákærði sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi og brot á kynferðislegri friðhelgi brotaþola með því að útbúa, án samþykkis hennar, kynferðislegt myndefni.
Kröfu stefnanda um miskabætur vegna meints aðgerðarleysis barnaverndaryfirvalda í málefnum hennar hafnað.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Jón Haukur Hauksson aðstoðarsaksóknari) gegn
Szymon Karol Landowski
Maður sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum áfengis og sviptur ökurétti.
Ákærða gefið að sök brot gegn blygðunarsemi og barnaverndarlögum. Sýkna.
Ákærða var sakfelld fyrir fjögur umferðarlagabrot. Þá var hún sakfelld fyrir brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa í eitt skipti verið með barn sitt í bifreið sem hún ók undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja. Var ákærða dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi, 650.000 króna fésekt og hún svipt ökurétti í 30 mánuði.
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Arnar Sigfússon lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás og brot á barnaverndarlögum, en sýknaður af ákæru um stórfelldar ærumeiðingar.
Stefnandi krafðist bóta úr hendi Akureyrarbæjar vegna tiltekina aðgerða Barnaverndar Eyjafjarðar gagnvart henni. Fallist var á að skilyrði neyðarvistunar barns stefnanda utan heimilis án undanfarandi málsmeðferðar samkvæmt barnaverndarlögum hafi ekki verið uppfyllt. Röskun barnaverndaryfirvalda á stjórnarskrárvarinni friðhelgi fjölskyldulífs stefnanda, sbr. 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar, hafi gengið lengra en nauðsyn bar til og farið gegn meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar, sbr. 7. mgr. 4. gr. barnaverndarlaga. Ennfremur féllst dómurinn á að stefndi hefði ekki sýnt fram á að vægari úrræði hafi verið fullreynd áður en barnaverndarnefnd tók ákvörðun um áframhaldandi vistun barnsins utan heimilis stefnanda. Að sama skapi gekk sú aðgerð Barnaverndar að sækja barnið á heimili stefnanda með fulltingi lögreglu á síðari stigum lengra en nauðsyn bar til í ljósi atvika málsins og samræmdist ekki skyldu Barnaverndar til að gæta fyllstu virðingar og nærgætni, sbr. 1. mgr. 50. gr. barnaverndarlaga. Fólu framangreindar aðgerðir barnaverndaryfirvalda í sér ólögmæta meingerð gagnvart stefnanda og voru til þess fallnar að valda henni andlegri áþján og álitshnekki. Voru stefnanda dæmdar miskabætur samkvæmt 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn
X (Enginn)
Ákærði sakfelldur fyrir brot á barnaverndarlögum og stórfelldar ærumeiðingar gegn maka, auk þess að hafa fíkniefni í vörslum sínum.Var ákærði dæmdur til 30 daga skilorðsbundins fangelsis, auk þess að sæta upptöku fíkniefna.
Ákærði játaði ofbeldisbrot gegn fyrrum sambýliskonu sinni. Kröfu ákæruvalds um að brotið yrði heimfært til 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, var hafnað en brotið talið varða við 1. mgr. 217. gr. og 233. gr. b almennra hegningarlaga og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi (
Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Snorri Sturluson lögmaður)
Sýknað af ákæru fyrir líkamsárás, hótun, vopnalagabrot o.fl.
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás samkvæmt 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur til 2 mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar og greiðslu 250 þúsund króna miskabóta til brotaþola.
Foreldrar fjögurra stúlkna voru sakfelld fyrir illa meðferð á dætrum sínum. Vörðuðu brot föður við almenn hegningarlög og var hann dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar og til greiðslu miskabóta. Brot móður vörðuðu við barnaverndarlög og var hún dæmd í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta.
Ákælrði sakfelldur fyrir tvær líkamsárásir og brot gegn barnaverndarlögum.
Sýknað af broti gegn barnaverndarlögum og broti í nánu sambandi
Sakfellt fyrir líkamsárás og brot gegn barnaverndarlögum
Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum.
Ákærðu Y var gefin að sök sérstaklega hættuleg líkamsárás og ólögmæt nauðung og ákærða X gefið að sök brot í nánu sambandi gegn fyrrum sambýliskonu sinni. Þeim var jafnframt gefið að sök að hafa með háttsemi sinni brotið gegn börnum brotaþola. Voru bæði ákærðu fundin sek um líkamsárás skv. 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga og því ekki fallist á það með ákæruvaldinu að árás þeirra yrði felld undir 1., sbr. 2. mgr., 218. gr. b í almennum hegningarlögum, í tilviki ákærða X, eða undir 2. mgr. 218. gr. í sömu lögum. Þá var brot ákærðu Y einnig talið varða við 225. gr. almennra hegningarlaga og brot þeirra beggja að auki við 1. og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn
X
Ákærði sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi og barnaverndarlagabrot. Hann játaði brot sín skýlaust.
Stefnda svipt forsjá dóttur sinnar.
Krafa barnaverndaryfirvalda um að svipta foreldri forsjá barns tekin til greina.
Krafa barnaverndaryfirvalda um að svipta foreldra forsjá barna sinna tekin til greina.
Stefnda var að kröfu barnaverndarnefndar svipt forsjá fjórtán ára dóttur sinnar.
Krafa stefnanda um að stefnda yrði svipt forsjá sonar síns var tekin til greina.
Barnaverndarnefnd Reykjavíkur krafðist þess að stefndu yrðu svipt forsjár dóttur sinnar á gundvelli a og d liða liða 29. gr. barnaverndarlaga og var fallist á þá kröfu.