Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lykilorð: Verk
Stefnda var gert að greiða stefnanda skuld samkvæmt fyrirliggjandi reikningum í málinu.
Aðila greindi á um hvað væri sanngjarnt endurgjald vegna verks sem stefndi vann fyrir stefnanda. Talið var að miða bæri endurgjald við niðurstöður matsgerðar, sem stefnandi hafði aflað undir rekstri málsins, enda hefði matsgerðinni ekki verið hnekkt. Þá var fallist á að stefndi ætti gagnkröfu vegna galla á verkinu sem koma skyldi til skuldajafnaðar við kröfu stefnanda. Stefnda var gert að greiða stefnanda 216.977 krónur með dráttarvöxtum frá þeim degi sem málið var höfðað.
Stefndu voru sýknuð af kröfu stefnanda um greiðslu fyrir verk. Talið var að fyrningarfrestur kröfunnar hefði byrjað að líða þegar verkinu var lokið, en leggja yrði til grundvallar að það hefði ekki verið síðar en um mánaðamót október og nóvember 2014. Þar sem málið var ekki höfðað fyrr en í desember 2018 var fjögurra ára fyrningarfrestur liðinn og krafa stefnanda fallin vegna fyrningar.