Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lykilorð: Endurgjald
Kveðinn var upp útivistardómur þar sem fallist var á að stefnda bæri að greiða reikninga vegna vinnu við byggingarstjórn, efniskaup og akstur. Ekki lá fyrir sönnun um að endurgjald skv. reikningunum teldist ósanngjarnt né að stefnandi hefði valdið stefnda tjóni við verkið.
Stefnandi krafðist endurgjalds úr hendi stefnda aðallega á grundvelli útgefins reiknings, til vara á grundvelli kostnaðaráætlunar og til þrautavara krafðist hann þess að stefnda yrði gert að greiða honum aðra lægri fjárhæð að mati dómsins. Stefnandi var ekki talinn eiga frekari kröfur á hendur stefnda en stefndi hafði þegar innt af hendi á grundvelli matsgerðar um sanngjarnt endurgjald fyrir verkið. Var stefndi því sýknaður.
Aðila greindi á um hvað væri sanngjarnt endurgjald vegna verks sem stefndi vann fyrir stefnanda. Talið var að miða bæri endurgjald við niðurstöður matsgerðar, sem stefnandi hafði aflað undir rekstri málsins, enda hefði matsgerðinni ekki verið hnekkt. Þá var fallist á að stefndi ætti gagnkröfu vegna galla á verkinu sem koma skyldi til skuldajafnaðar við kröfu stefnanda. Stefnda var gert að greiða stefnanda 216.977 krónur með dráttarvöxtum frá þeim degi sem málið var höfðað.
Ráðstöfun M á 6.000.000 krónum til þriggja barna sinna á árinu 1998 var ekki talin leiða til verulegrar skerðingar á fjárhlut K við opinber skipti til fjárslita milli hennar og M vegna hjónaskilnaðar, en samtals komu um það bil 42.000.000 króna til skipta. Var kröfu K um að hún fengi 3.000.000 krónur af búshluta M því hafnað, sbr. 2. mgr. 107. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993.
X var ákærður fyrir tilraun til þjófnaðar. Var honum gefið að sök að hafa í fjögur skipti reynt að brjótast inn í fyrirtæki í auðgunarskyni. Var hann sakfelldur fyrir að hafa reynt það í þrígang en í einu tilviki þótti það ekki fyllilega sannað. Með hliðsjón af löngum brotaferli X var honum gert að sæta fangelsi í 12 mánuði.