Héraðssaksóknari (
Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Gediminas Saulys (
Elimar Hauksson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn 217. gr. almennra hegningalaga nr. 19/1940 með því að hafa slegið A þannig að hann féll í gólf, en ekki var talið sannað að ákærði hefði veitt þá áverka sem leddu til andláts A.
Ákærði sakfelldur fyrir manndráp með því að hafa veist að móður sinni og banað henni með því að stinga hana með hnífi. Ákærði var metinn sakhæfur á verknaðarstundu en hins vegar var talið að vitsmunaleg skerðing og geðsjúkdómur ákærða væri þess eðlis að ekki væri líklegt að fangelsisvist myndi bera árangur, auk þess sem fangelsi hefði ekki viðunandi möguleika á því að sinna vandamálum hans.
Ákærða voru gefin að sök alvarleg brot gegn eiginkonu sinni. Í ákærulið I var honum gefið að sök manndráp og stórfellt brot í nánu sambandi. Háttsemin sem lýst var í ákæru var talin sönnuð en ekki að hann hafi haft ásetning til manndráps. Var brotið heimfært til 2. mgr. 218. gr. og 1., sbr. 2. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga. Hann var einnig sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi sem lýst var í ákærulið II. Þrátt fyrir að ákærði hafi verið greindur með heilabilun var hann talinn sakhæfur og að ætla mætti að refsing gæti borið árangur. Hann var dæmdur til tólf ára fangelsisvistar. Þá var honum gert að greiða miskabætur og útfararkostnað.
Ákærða sakfelld fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða brotaþola. Ákærða var dæmd í fangelsi í 10 ár.
Þrír karlmenn á táningsaldri, X, Y og Z, voru sakfelldir fyrir að hafa ráðist í félagi með ofbeldi á A á bílasvæðinu við Fjarðarkaup í Hafnarfirði að kvöldi 20. apríl sl. X gekk harðast fram og stakk A að auki sex sinnum með hnífi í líkama þannig að bani hlaust af. Var X sakelldur fyrir manndráp samkvæmt 211. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur í 10 ára fangelsi. Ósannað var að ásetningur Y og Z hafi staðið til þess að A hlyti bana af atlögu þremenninganna. Voru þeir sakfelldir fyrir meiri háttar líkamsárás sem leiddi til dauða samkvæmt 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga og dæmdir í tveggja ára fangelsi. Fjórði táningurinn, Z, var sakfelld fyrir brot gegn 1. mgr. 221. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa ekki komið A til bjargar í lífsháska og hlaut hún 12 mánaða fangelsi, skilorðsbundið fimm ár. Ákærði X var einnig dæmdur til að greiða ættingjum A skaða- og miskabætur.
Ákæruvaldið (
Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari)
gegn
Vali Lýðssyni (
Ólafur Björnsson lögmaður)
Ákærði dæmdur í 7 ára fangelsi fyrir stórhættulega og vísvitandi líkamsárás sem leiddi til dauða bróður hans. Honum var einnig gert að greiða fjórum börnum hins látna miskabætur.
Ákærði sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til bana.
Tveir fangar sýknaðir af ákæru fyrir stórfellda líkamsárás með því að hafa veitt samfanga sínum áverka sem leiddi hann til dauða.
Karlmaður sem ákærður var fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða var sakfelldur og dæmdur til að sæta fangelsi í fjögur á, en til frádráttar komi gæsluvarðhald sem hann hefur sætt. Annar karlmaður og tvær konur voru ákærð fyrir brot gegn lífi og líkama með því að hafa látið fyrir farast að koma hinum látna undir læknishendur er hann hafði slasast lífshættulega vegna árásarinnar. Konurnar voru báðar sýknaðar af ákæru en karlmaðurinn sakfelldur og dæmdur til að sæta sex mánaða fangelsi, en til frádráttar komi gæsluvarðhaldsvist.
Karlmaður dæmdur í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir sviptingarakstur og fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða.