Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Almennar reglur skaðabótaréttar

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. nóvember 2024

E-2782/2023

Sendibíla- og flutningaþjónustan ehf (Jóhann Tómas Sigurðsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Heiður Heimisdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Í málinu var annars vegar deilt um að hvort stefnandi hefði fengið kaskótjón á bifreið sinni að fullu bætt með bótagreiðslu hins stefnda tryggingafélags eða hvort tjón á henni vegna tjónsatburðarins væri meira. Hins vegar krafðist stefnandi skaðabóta utan samninga úr hendi stefnda og reisti þá kröfu á því að starfsmenn vátryggingafélagsins hefðu sýnt af sér saknæma og ólögmætra háttsemi við meðferð bótakröfu hans úr kaskótryggingunni. Stefndi var sýknaður af öllum dómkröfum stefnanda og var stefnanda gert að greiða stefnda málskostnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. apríl 2024

S-374/2024

Ákæruvaldið (Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður) (Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður bótakrefjanda)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt og dæmd skilorðsbundin refsing vegna brots gegn valdstjórninni, nytjastuldar bifreiðar og umferðarlagabrota. Einnig dæmdar skaðabætur vegna tjóns á bifreið.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. febrúar 2024

E-3542/2023

A (Hildur Helga Kristinsdóttir lögmaður) gegn Öldungi hf (Snorri Stefánsson lögmaður)

Stefnandi krafðist skaðabóta vegna líkamstjóns sem að hún varð fyrir í starfi sínu hjá stefnda. Talið var að stefndi bæri ábyrgð á greiðslu skaðabóta til stefnanda á grundvelli ákvæðis 7.1.6 í kjarasamningi Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu annars vegar vegna [...] (og fleiri fyrirtækja) og Eflingar stéttarfélags (og fleiri félaga).