Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lykilorð: Úrelding
E keypti skip og sótti um leyfi til veiða í atvinnuskyni fyrir það. Fiskistofa og sjávarútvegsráðuneytið höfnuðu beiðninni með vísan til þess að endurnýjunarrétti og rétti skipsins til veiðileyfis hefði á sínum tíma verið afsalað til Þróunarsjóðs sjávarútvegsins af þáverandi eigendum skipsins gegn greiðslu úreldingarstyrks. E krafðist ógildingar á úrskurði sjávarútvegsráðuneytisins og bóta vegna ætlaðs tekjutaps þann tíma sem skip hans hafði ekki veiðileyfi. Hæstiréttur sýknaði Í og kvað E bundinn af þeim samningi, sem gerður var um úreldingu skipsins. Sá samningur, sem væri reistur á skýrum fyrirmælum laga, væri enn í gildi og bakaði E sömu skyldur og styrkþega á sínum tíma. Bótakrafa E þótti ekki studd nægilegum gögnum og var vísað sjálfkrafa frá héraðsdómi.
Í ákvað á árinu 1995 að auka við skipastól sinn með því að kaupa frá Hjaltlandseyjum fiskiskipið A. Fékk Í almennt veiðileyfi fyrir A samkvæmt þágildandi ákvæðum 4. og 5. gr. laga nr. 38/1990. Til að rýma fyrir A innan fiskveiðiflotans í samræmi við fyrirmæli laga og reglna afsalaði Í almennu veiðileyfi þriggja fiskibáta og keypti jafnframt veiðileyfi og endurnýjunarrétt þriggja fiskiskipa í eigu annarra aðila, til að geta afsalað þeim réttindum í sama skyni. Varð Í ekki eigandi að skipunum sjálfum, heldur samþykktu seljendur að þau yrðu tekin úr rekstri sem fiskiskip við Ísland. Kaupunum fylgdu engar veiðiheimildir skv. 7. gr. laga nr. 38/1990. Byggði Í á því að líta mætti á kaupverðið sem beint tjón, er hann hefði beðið vegna þeirrar skerðingar á atvinnufrelsi og eignarréttindum, sem falist hefði í 5. gr. laganna. Talið var að þau ákvæði reglugerðar nr. 406/1995, sem á reyndi, hefðu átt nægilega lagastoð og hefði ekki verið um ólögmætt valdframsal að ræða til sjávarútvegsráðherra. Þá var ekki á það fallist, að niðurstaða Hæstaréttar 3. desember 1998 um efnisinntak þágildandi 5. gr. laga nr. 38/1990 yrði skýrð á þann hátt, að tilkall útgerðarmanna fyrir gildistöku laga nr. 1/1999 til að mega endurnýja og stækka skipaflota sinn án takmarkana af hálfu löggjafarvaldsins gæti notið eignarréttarverndar stjórnarskrárinnar.
Skip. Veiðiheimildir. Úrelding. Kröfugerð. Frávísun frá héraðsdómi að hluta. Sératkvæði. Fiskiskipið EF, sem var í eigu félagsins E, sökk í júlí 1988. Vegna fyrirhugaðrar smíði nýs skips staðfesti sjávarútvegsráðuneytið (S) að aflaheimildir EF mundu færast yfir til hins nýja skips. Í maí 1989 sótti E um flutning aflaheimilda EF yfir á skipið H. Heimilaði S flutninginn, gegn því að E félli frá úreldingarrétti á EF. Samþykkti framkvæmdastjóri og prókúruhafi E þetta, en nokkrum dögum síðar ritaði lögmaður E bréf til S þar sem hann hélt því fram að hvorki væru í lögum né reglugerðum heimildir um skilyrði ráðuneytisins. Voru aflaheimildir EF fluttar yfir á H í september 1989. Í apríl 1991 sótti E um veiðiheimildir til S fyrir skipið V í stað tilgreindra fjögurra báta, sem strika átti út af skipaskrá. Jafnframt var óskað eftir því að H héldi veiðiréttindum sínum í sex mánuði meðan væri verið að útvega næga „úreldingu” fyrir V. S féllst á að veita V veiðileyfi gegn því að skipið H yrði þegar tekið úr rekstri og afmáð úr skipaskrá fyrir miðjan júlí sama ár. Féllst E á þessi skilyrði, en óskaði síðar eftir frekari fresti til að afskrá H og framlengja jafnframt veiðileyfi V. Hafnaði S þeirri málaleitan. Hélt E því fram að vegna afstöðu S hefði hann lent í fjárhagsörðugleikum og neyðst til að selja skipin V og S auk fjögurra smábáta, langt undir sannvirði. Höfðaði E mál á hendur íslenska ríkinu þar sem hann krafðist þess að tilteknar ákvarðanir S yrðu dæmdar ólögmætar og viðurkennt að þær sköpuðu ríkissjóði skaðabótaskyldu. Kröfu E um endurnýjunarrétt vegna EF var vísað sjálfkrafa frá dómi, þar sem félagið var, eftir gildandi lögum, ekki talið hafa lögvarða hagsmuni af því að fá réttinn viðurkenndan. Þá var kröfu E um skaðabætur vísað frá héraðsdómi vegna vanreifunar. Talið var að á grundvelli 4. gr. og 1. mgr. 14. gr. laga nr. 3/1988 um stjórn fiskveiða 1988-1990 hefðu aflaheimildir EF fallið niður og orðið aflaheimildir H eftir að E fékk samþykki S fyrir flutningi þeirra. Þá var talið að S hefði farið að ákvæðum 1. mgr. 5. gr. laga nr. 38/1990 um stjórn fiskveiða þegar þess var krafist að sambærilegt skip hyrfi úr rekstri til að veiðiheimildir fengjust til V. Einnig var talið að S hefði farið að bráðabirgðaákvæði V í lögum nr. 38/1990 þegar áskilið var samþykki veðhafa fyrir flutningi aflaheimilda frá H til V. Var því talið að skuldbindingar þær sem S setti fyrir færslu veiðiheimilda til V hefðu verið í samræmi við lög og lagaframkvæmd þess tíma og að ekki hefði verið sýnt fram á að E hefði verið mismunað á nokkurn hátt af stjórnvöldum í samanburði við aðra sem eins stóð á um. Var íslenska ríkið því sýknað af kröfum E.