Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 929/2006"
7 dómar fundust
Ákæruvaldið (
Kristín Una Pétursdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Ólafi Erni Bjarkasyni (
Páll Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir skjalabrot og umferðarlagabrot. Með brotunum rauf ákærði skilorðsdóm og var sá dómur tekinn upp og refsing dæmd í einu lagi. Refsing ákærða var ákveðin fangelsi í 60 daga en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá var ákærði sviptur ökurétti í sjö mánuði, þar af þrjá vegna uppsafnaðra punkta.
...Um þetta gildir reglugerð nr. 929/2006 um ökuferilsskrá og punktakerfi vegna umferðarlagabrota, með síðari breytingum. Ákæruvaldið byggir á því að ákvarða beri ákærða 3 punkta fyrir hvort brot samkvæmt...
Ekki var talið að ákvörðun um akstursbann hefði í raun verið tekin þrátt fyrir birtingu óundirritaðs skjals þess efnis, enda voru skilyrði akstursbanns ekki fyrir hendi.
...viðauka við reglugerð nr. 929/2006 með áorðnum breytingum. Samkvæmt 2. mgr. 8. gr., sbr. 10. gr. reglugerðarinnar og 2. mgr. 99. gr. laga nr. 77/2019, sbr. 2. mgr...
Ákæruvaldið (
Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari)
gegn
X (
Jón Egilsson hdl)
Ákærði sýknaður af ákæru um brot gegn valdstjórninni. Sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.
...132/2003, 57/1997, 44/1993 og reglugerð nr. 929/2006 um ökuferilsskrá og puntakerfi vegna umferðarlagabrota. Ákærði hefur neitað sök varðandi 1. tl. ákæru en játað brot sitt samkvæmt...
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum (enginn) gegn
Axel Jóhanni Helgasyni (
Jón Hauksson hdl)
Með 8. gr. laga nr. 69/2007 sem tók gildi 27. apríl 2007 var 106. gr. a. bætt við umferðarlög nr. 50/1987, og kveður greinin á um heimild til að beita akstursbanni gegn byrjanda sem nýtur ökuréttar á grundvelli bráðabirgðaskírteinis, en með slíku banni töldust ökuréttindi viðkomandi afturkölluð. A hafði við gildistöku nefndra laga hlotið þrjá punkta í ökuferilsskrá sína, en hlaut þann fjórða 29. ágúst 2007. Í tilefni af þessu beitti L framangreindri heimild, en A bar þá ákvörðun undir héraðsdóm. Talið var að í nefndri lagabreytingu hafi falist þynging ítrekunaráhrifa fyrri brota A og að skilyrði og áhrif ítrekunar samkvæmt nefndu lagaákvæði hafi verið skýr og efni þess bæði aðgengilegt og fyrirsjáanlegt þannig að A hefði átt að geta séð fyrir hverjar afleiðingar umferðarlagabrot hans 29. ágúst 2007 hefði að lögum fyrir hann. Var því ekki fallist á með A að með fyrrgreindri ákvörðun hefði refsiheimild verið beitt með afturvirkum hætti og var kröfu hans um að ákvörðunin yrði felld úr gildi því hafnað.
...Þegar varnaraðili braut umferðarlög og fékk fjórða punktinn samkvæmt reglugerð nr. 929/2006 höfðu ákvæði 106. gr. a. umferðarlaga tekið gildi, sbr. 8. gr. laga nr. 69/2007. Skilyrði og...
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn
X
Sakfellt fyrir þjófnaðartilraun en ekki gerð refsing. Sektað og svipt ökurétti vegna umferðarlagabrots.
...þá útrunnið. Brot samkvæmt þessum ákæruliðum varða alls 7 punktum í ökuferilsskrá sbr. reglugerð nr. 929/2006 um ökuferilsskrá og punktakerfi vegna umferðarlagabrota. Verður hún svipt ökurétti í þrjá mánuði...
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn
X (Sjálfur)
Dæmd sekt fyrir að aka gegn rauðu ljósi. Ákærði sviptur ökurétti vegna uppsafnaðra punkta.
...viðauka við reglugerð nr. 929/2006 um ökuferilsskrá og punktakerfi vegna umferðarlagabrota. Ber samkvæmt 8. gr., sbr. 10. gr. þeirrar reglugerðar, sem sett er með heimild í 2. mgr. 52...
Ákæruvaldið (Hólmsteinn Gauti Sigurðsson fulltrúi) gegn
X
X var sakfelldur fyrir að aka bifreið yfir lögleyfðum hámarkshraða. Hann var dæmdur til sektargreiðslu og sviptur ökurétti í þrjá mánuði.
...ennfremur nú reglugerð nr. 929/2006 um ökuferilsskrá og punktakerfi vegna umferðarlagabrota, verður ekki hjá því komist að svipta ákærða ökurétti í þrjá mánuði, en téð laga- og reglugerðarákvæði veita...