Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 854/2016"

4 dómar fundust

Landsréttur birt 20. febrúar 2025

848/2023

Hilmar Hreinsson (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn Isavia ANS ehf (Stefán Geir Þórisson lögmaður)

H, sem starfað hafði sem flugumferðarstjóri hjá I ehf., krafðist þess að viðurkennt yrði að I ehf. hefði verið óheimilt að binda enda á störf H hjá I ehf. á grundvelli nánar tiltekins ákvæðis í kjarasamningi Félags íslenskra flugumferðarstjóra við Samtök atvinnulífsins. Ágreiningslaust var að starfslok H komu til af því einu að hann varð 63 ára og jafnframt að starfslok H hefðu verið reist á nánar tilgreindu kjarasamningsákvæði. Í dómi Landsréttar kom fram að ekki væri unnt að leggja þá merkingu í umþrætt kjarasamningsákvæði að starfslok skyldu verða við tiltekinn aldur. Þvert á móti mælti það fyrir um að starfslok verði við réttindamissi flugumferðarstjóra. Ekki væri fjallað um réttindi til að starfa sem flugumferðarstjóri í kjarasamningnum en reglur um þau réttindi og takmörk þeirra hefðu aftur á móti verið í lögum nr. 60/1998 og stjórnvaldsfyrirmælum sem sett höfðu verið á grundvelli þeirra. Eftir að lögum og stjórnvaldsfyrirmælunum var breytt 2017 og 2018 voru starfsréttindi flugumferðarstjóra ekki háð neinum aldurstakmörkunum. Taldi Landsréttur kjarasamningsákvæðið því ekki veita stoð fyrir því að binda enda á störf H hjá I ehf. þegar hann náði 63 ára aldri. Var viðurkenningarkrafa H því tekin til greina.

...Á grundvelli þessa ákvæðis setti ráðherra reglugerð nr. 854/2016 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferð fyrir skírteini og þjálfun flugumferðarstjóra. Í 4. gr. 9 reglugerðarinnar var aldursákvæði þar sem kveðið...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. nóvember 2023

E-1612/2022

Hilmar Hreinsson (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn Isavia ANS ehf (Stefán Geir Þórisson lögmaður)

Deilt var um lögmæti starfslokaákvæðis í kjarasamningi Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins vegna Isavia ohf. Var það niðurstaða dómsins að ákvæði kjarasamningsins um 63 ára aldursskilyrði væru ekki í andstöðu við lög.

...Á grundvelli þessa ákvæðis setti ráðherra reglugerð nr. 854/2016 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferð fyrir skírteini og þjálfun flugumferðarstjóra. Í 4. gr. reglugerðarinnar var aldursákvæði þar sem kveðið var...

Landsréttur birt 23. júní 2023

418/2023

Hilmar Hreinsson (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn Isavia ANS ehf (Stefán Geir Þórisson lögmaður)

H kærði úrskurð héraðsdóms þar sem máli H gegn A var vísað frá dómi án kröfu, á þeim grundvelli að kröfugerð H eins og hún væri sett fram, væri í andstöðu við 1. og 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Í málinu krafðist H viðurkenningar á því að I hefði verið óheimilt að binda enda á störf H hjá I á grundvelli tilgreindar greinar í kjarasamningi Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Isavia ohf. þar sem fram kemur að réttindi flugumferðarstjóra til starfa sinna falli niður í síðasta lagi við 63 ára aldur. Í úrskurði Landsréttar kom fram að H hefði lögvarða hagsmuni af úrlausn dómstóla um það hvort starfslok hans hefðu farið í bága við lög, sem aðila greindi á um, og að úrlausn um það gæti varðað miklu um réttarsamband þeirra. Var talið eins og þarna stóð á að krafa sóknaraðila um viðurkenningu á því hvort að I hafi verið óheimilt að binda enda á störf hans hjá I endurspeglaði nægilega þann ágreining sem væri á milli aðila. Var viðurkenningakrafan talin uppfylla lágmarksskilyrði 1. og 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991. Hinn kærði úrskurður var því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.

...Á grundvelli þessa ákvæðis setti ráðherra reglugerð nr. 854/2016 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferð fyrir skírteini og þjálfun flugumferðarstjóra. Í 4. gr. reglugerðarinnar var aldursákvæði þar sem kveðið var...

Landsréttur birt 15. september 2020

368/2020

A (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn B (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A um að lífeyrisréttindi B kæmu til skipta sem hjúskapareign við fjárslit þeirra. Í úrskurði Landsréttar var fallist á að hluti af séreignarsparnaði B sem heimild væri til úttektar á, í samræmi við VIII. ákvæði til bráðabirgða með lögum nr. 129/1997, sbr. lög nr. 25/2020, hefði endurkaupsvirði samkvæmt kröfu maka í samræmi við 2. tölulið. 1. mgr. 102. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993 og skyldi koma til skipta við fjárslitin. Að öðru leyti var niðurstaða héraðsdóms staðfest.

...Sama breyting hafi verið gerð á reglugerð nr. 854/2016 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferð fyrir skírteini og þjálfun flugumferðarstjóra. Í því ágreiningsmáli sem hér er til úrlausnar verður ekki...