Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 817/2010"

3 dómar fundust

Landsréttur birt 9. október 2025

241/2025

A og B (Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður) gegn C hf og TM tryggingum hf (enginn)

A og B höfðuðu mál gegn C hf. og T hf. til heimtu miskabóta vegna andláts sonar þeirra D. Með dómi Landsréttar var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að leggja yrði til grundvallar að D hafði drukknað eftir að hafa fallið fyrir borð af netabátnum E þegar samkvæmt gögnum málsins slokknaði skyndilega á síma hans líkt og hann hefði lent í vatni. Engin vitni hafi verið af falli D í sjóinn og var því með öllu óvíst hvað olli hinum hryggilega atburði. A og B byggðu málsókn sína á 2. mgr. 26. gr. skaðabótalaga, en sönnunarbyrðina fyrir því að slys það sem olli dauða D væri að rekja til saknæmrar háttsemi, sem C hf. bæri ábyrgð á, hvíldi á A og B. Í dómi Landsréttar var rakið hvernig sú sönnun hefði ekki tekist og var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna C hf. og T af kröfum A og B.

...Á grunni þeirrar heimildar sé í gildi reglugerð nr. 817/2010 þar sem fram komi í 1. mgr. 5. gr. að óheimilt sé að ráða mann til starfa á íslenskt...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. febrúar 2025

E-2568/2024

A og B (Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður) gegn Brimi hf. og TM tryggingum hf (Stefán Björn Stefánsson lögmaður)

Stefnendur, foreldrar ungs manns, kröfðust miskabóta á hendur stefndu, útgerðarfyrirtæki og tryggingafélagi þess, í kjölfar þess að sonur þeirra hafði fallið útbyrðis af fiskveiðibáti þar sem hann var háseti og látist í sjó, sbr. 2. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Að mati dómsins þótti með öllu ósannað með hvaða hætti umrætt óhapp átti sér stað, auk þess sem ekki þótti heldur vera sýnt fram á að ætlaðir annmarkar í framgöngu skipstjóra og útgerðar í tengslum við málið væru þess eðlis að ætti eftir sem áður að leiða til þess að bótaskylda yrði felld á stefndu.

...Á grunni þeirrar heimildar sé í gildi reglugerð nr. 817/2010 þar sem fram komi í 1. mgr. 5. gr. að óheimilt sé að ráða mann til starfa á íslenskt...

Landsréttur birt 16. febrúar 2018

14/2018

Ákæruvaldið gegn Stefáni Guðmundssyni (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður), Aðalsteini Steinþórssyni (Páll Rúnar M. Kristjánsson lögmaður), Ingimar Eydal Óskarssyni (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður) og Karli Óskari Geirssyni (Bjarki Þór Sveinsson lögmaður)

S, A, I og K voru gefin að sök brot gegn lögum um eftirlit með skipum, reglugerð um leyfi til farþegaflutninga með skipum, siglingalögum, lögum um lögskráningu sjómanna, reglugerð um lögskráningu sjómanna og lögum um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, sem skipstjórar á hvalaskoðunarbátum G ehf. Með dómi Landsréttar voru þeir allir sakfelldir fyrir að hafa siglt með of marga farþega, en S jafnframt sakfelldur fyrir að bera ábyrgð á því sem fyrirsvarsmaður G. Á hinn bóginn voru S og K sýknaðir af þeim sakargiftum að hafa siglt án þess að lögskrá áhöfn áður en farið var á sjó. Auk þess var A sakfelldur fyrir að hafa siglt án skipskjala, en sýknaður af því að hafa ekki verið með vélavörð um borð. Þeim var öllum gerð sektarrefsing fyrir þá háttsemi sem þeir voru sakfelldir fyrir.

...35/2010 og reglugerð nr. 817/2010, hvorum tveggja um lögskráningu sjómanna, vegna ferðar farþegabátsins Ömmu Siggu ÞH-7790 24. júlí 2015. Þá krefst ákæruvaldið þess að refsing ákærðu sem...