Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 678/2009"
4 dómar fundust
E höfðaði mál gegn Í og krafðist endurgreiðslu gjalds sem lagt hafði verið á vegna innflutnings E á raftækjum á grundvelli laga nr. 146/1996 um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga og reglugerð nr. 678/2009 um raforkuvirki. Óumdeilt var að umrætt gjald teldist til skatts í skilningi 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar. Í dómi Landsréttar var rakin dómaframkvæmd Hæstaréttar um þau sjónarmið sem líta beri til þegar metið er hvort ákvæði laga hafi að geyma fullgilda heimild til skattlagningar. Með ákvæði 5. töluliðar 1. mgr. 14. gr. laga nr. 146/1996 hafi ráðherra verið framselt vald til að ákveða hlutfall þess gjalds sem um var deilt, án annarra takmarkana en fólust í hámarki þess. Með því hafi stjórnvöldum verið falin ákvörðun um eitt meginatriði skattheimtunnar, fjárhæð hennar. Svo almennt framsal stæðist ekki fyrrgreind stjórnarskrárákvæði. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um skyldu Í til að endurgreiða E það fé sem E hafði ofgreitt ásamt vöxtum og dráttarvöxtum.
...146/1996 um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga og reglugerð nr. 678/2009 um raforkuvirki. Óumdeilt var að umrætt gjald teldist til skatts í skilningi 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar...
Viðurkennd var skaðabótaskylda stefndu á tjóni sem stefnendur urðu fyrir er rafmagnsstaur í eigu stefnda, Rarik, brotnaði þannig að háspennulína féll niður með þeim afleiðingum að Bryðja, hryssa stefnenda, drapst.
...146/1996 um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga og reglugerð nr. 678/2009. 2 Samkvæmt 8. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar sé ábyrgðarmönnum virkja og raffanga skylt að sjá um að...
Fallist á að tryggingafélagi yrði gert að bæta brunatjón á fasteign og innbúi að fullu. Ekki þannig talið heimilt að skerða bætur um helming vegna vanrækslu eiganda við að sinna ábendingum eftirlitsaðila um úrbætur á raflögnum hússins og orsakatengsl á milli vanbúnaðar eða vanrækslu og eldsvoðans talin ósönnuð.
...146/1996 um öryggi raforkuvirkja, kröfum í reglugerð nr. 678/2009 og ÍST staðli 200:2006 um raflagnir byggingar sem einnig sé vitnað til í reglugerð nr. 678/2009. Samtals...
Aðila greindi á um lögmæti gjaldtöku sem fram fór á grundvelli laga nr. 146/1995 vegna innflutnings stefnanda á eftirlitsskyldum rafföngum. Talið var að löggjafinn hefði gengið lengra við framsal á valdi til að ákveða skattinn en heimilt væri samkvæmt 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar. Umrædd álagning hefði því ekki stuðst við gilda lagaheimild og væri hún ólögmæt. Fallist var á kröfu stefnanda um endurgreiðslu þeirrar fjárhæðar sem hann hafði innt af hendi.
...146/1996 og grein 9.2 í reglugerð nr. 678/2009, teljist skattur í skilningi stjórnarskrárinnar. Byggt er á því að 5. tölul. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 146...