Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 598/1999"

3 dómar fundust

Landsréttur birt 27. október 2023

106/2023

Ákæruvaldið (Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Með dómi Landsréttar 15. júní 2018 var X sakfelldur fyrir stórfelld skattalaga- og bókhaldsbrot ásamt peningaþvætti. Ákæru á hendur X fyrir að skila efnislega röngum skattframtölum og láta undir höfuð leggjast að skila tekjuskatti og útsvari var hins vegar vísað frá héraðsdómi þar sem skattyfirvöld höfðu áður gert honum að greiða álag á vantalinn skattstofn vegna sömu brota en hin tvíþætta málsmeðferð var talin fara í bága við 4. gr. 7. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu. Með úrskurði endurupptökudóms 23. janúar 2023 var fallist á beiðni X um endurupptöku málsins fyrir Landsrétti. Við hina endurteknu málsmeðferð komst Landsréttur að sömu niðurstöðu og í hinum upphaflega dómi um að sakfella bæri X fyrir að hafa skilað efnislega röngum virðisaukaskattskýrslum og ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í starfsemi A ehf. og B ehf. Jafnframt fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskattskýrslum í starfsemi A ehf. Þá var X sakfelldur fyrir að láta undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald beggja félaga á nánar tilgreindum rekstrartímabilum. Loks var X sakfelldur fyrir peningaþvætti með því leggja fjármuni, sem voru hluti ávinnings af þeim brotum, inn á tilgreinda bankareikninga, geyma þá og ráðstafa þeim svo til persónulega útgjalda og fasteignakaupa. Þá var jafnframt komist að sömu niðurstöðu er varðaði frávísun ákæru að hluta frá héraðsdómi. Var refsing X ákveðin fangelsi í 18 mánuði, en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í 3 ár. Þá var honum gert að greiða 258.000.000 króna í sekt.

...10 Ráða má af sölureikningum þeim, sem ákærði vísar til, að þeir hafi verið prentaðir út úr rafrænu bókhaldskerfi samkvæmt þágildandi reglugerð nr. 598/1999 um rafrænt bókhald, geymslu rafrænna...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. október 2012

E-4775/2011

Geymslur ehf (Bjarni Þór Óskarsson hrl) gegn Þóri Inga Sveinssyni (sjálfur ólöglærður)

Stefndi dæmdur til greiðslu vangoldinnar leigu.

...Byggir stefndi þessa málsástæðu sína annars vegar á reglugerð nr. 598/1999 og hins vegar á reglum ríkisskattstjóra um sérstakt leyfi vegna reikninga í einriti, eins og rakið er hér...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. apríl 2008

E-5549/2007

Nexus Arkitektar ehf (Harpa Björnsdóttir hdl) gegn Andrey A Rudkov (Friðbjörn Eiríkur Garðarsson hdl)
Lykilorð: Skuldamál.

Stefnandi sem rekur arkitektastofu krafði stefnda um greiðslu reiknings vegna undirbúningsvinnu vegna teikningar íbúðarhúss á grundvelli munnlegs samnings. Stefndi krafðist sýknu á þeiim forsendum að enginn samningur hefði komist á. Var stefndi dæmdur til greiðslu hluta reikningsins.

...beri reikningurinn ekki með sér að hann sé upprunninn í rafrænu bókhaldskerfi, sbr. reglugerð nr. 598/1999 um rafrænt bókhald ofl. ásamt 8. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald...