Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 550/2018"

7 dómar fundust

Landsréttur birt 28. maí 2026 kl. 16:17

330/2025

Hreyfill svf (Geir Gestsson lögmaður, Hildur Leifsdóttir lögmaður, 1. prófmál) gegn Reykjavíkurborg (Theodór Kjartansson lögmaður)

H svf. höfðaði mál þetta og krafðist meðal annars ógildingar á ákvörðun R um að honum bæri að fjarlægja merkingar á tilgreindum bifreiðastæðum en að öðrum kosti greiða kostnað vegna þessa, sem og ógildingar á úrskurði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins þar sem hafnað var kröfu um að framangreind ákvörðun yrði felld úr gildi. Þá krafðist H svf. ógildingar á ákvörðun R um að H svf. væri skylt að deila stæðunum með „öðrum starfandi leigubílstjórum í Reykjavík“. Héraðsdómur féllst ekki á málsástæður H svf., sem byggðu meðal annars á kaupsamningi frá 1969, hefð og reglum stjórnsýsluréttar. Í dómi Landsréttar kom fram að H svf. bæri sönnunarbyrði fyrir því að hann hefði fyrir hefð áunnið sér rétt til afnota af stæðunum, sem kæmi í veg fyrir að R gæti gert honum að fjarlægja merkingar og heimilað öðrum að nota þau ásamt H svf.. Væri málatilbúnaður H svf. að þessu leyti mjög almenns eðlis og ófullnægjandi um stóran hluta þeirra stæða sem ákvarðanirnar hefðu tekið til. Þá yrði H svf. ekki talinn hafa getað vænst þess að afnot hans að stæðunum, sem R hefði átt og verið háð samþykki, leyfum og skilyrðum hans, tryggðu H svf. eignarréttindi er kæmu í veg fyrir að R gæti gert þær breytingar á fyrirkomulagi stæðanna sem um væri deilt. Þá var rakið að við mat á því hvort ákvarðanir R hefðu samrýmst reglum stjórnsýsluréttar væri til þess að líta að þær hefðu ekki falið í sér að H svf. hefði verið sviptur afnotum stæðanna. H svf. hefði enn afnot af þeim, með öðrum, og hefði að sama skapi fengið afnot af stæðum sem aðrar bifreiðastöðvar hefðu áður haft samsvarandi leyfi fyrir. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna héraðsdóms var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sýknu R af kröfum H svf.

...um lista yfir mengandi starfsemi þar sem ekki er krafist ítarlegrar starfsleyfisgerðar, sbr. reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit. Þar hafi jafnframt verið tekið fram að...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. júní 2025

E-3349/2024

Costco Wholesale Iceland ehf (Teitur Gissurarson lögmaður) gegn Olíudreifingu ehf (Bergur Hauksson lögmaður)

Stefndi var sýknaður af skaðabótakröfu stefnanda þar sem að ósannað þótti að meta bæri það starfsmanni stefnda til gáleysis, eins og á stóð, að hann hafði aftengt rakanema til þess að unnt væri að dæla díselolíu á eldsneytisstöð stefnanda. En auk þess þá taldi dómurinn jafnframt að helstu orsakir þess tjóns sem stefnandi varð síðan fyrir eftir að barki rofnaði og olía lak út væri einkum að rekja til þess að engin stöðug þjónusta var tryggð við stöðina af hálfu stefnanda.

...112/2012, reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit, reglugerð um hollustuhætti nr. 941/2002, reglugerð nr. 737/2003 um meðhöndlun úrgangs o.fl. ÍST EN 858...

Landsréttur birt 19. maí 2025

302/2025

Hreyfill svf (Geir Gestsson lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Theodór Kjartansson lögmaður)

H höfðaði mál gegn R og krafðist þess aðallega að viðurkenndur yrði með dómi afnota- og umráðaréttur félagsins að nánar tilgreindum bifreiðastæðum. Á fundi skipulags- og samgönguráðs R 25. september 2019 hafði verið samþykkt að heimila öllum sem hefðu starfsleyfi til leigubifreiðaaksturs að leggja í bifreiðastæðum sem H hafði fram að því haft til afnota, að frátöldum stæðum í einkaeign. Með hinum kærða dómi var kröfu H um viðurkenningu á afnota- og umráðarétti að bifreiðastæðunum auk varakröfum félagsins um viðurkenningu á bótaábyrgð og bótaskyldu R vísað frá dómi. Í úrskurði Landsréttar kom fram að í kröfugerð H væri ekki afmarkað á neinn hátt til hvers kyns afnota- eða umráðaréttar hún ætti að ná. Slíkt hefði þó verið óhjákvæmilegt þar sem óumdeilt væri að H myndi áfram njóta afnotaréttar af bifreiðastæðunum, að frátöldum stæðum sem voru við Laugarveg að Hlemmi. Var ekki talið að kröfugerð H væri til þess fallin að leiða ágreining málsaðila til lykta þótt á hana yrði fallist. Hvað varðaði stæðin við Laugaveg að Hlemmi tók Landsréttur fram að kröfugerð H tæki ekki mið af tilfærslu bifreiðastæða sem leiddu af breyttu deiliskipulagi sem ekki hefði verið hnekkt. Hefði framangreint óhjákvæmilega í för með sér að H hefði ekki lögvarða hagsmuni af viðurkenningardómi um þennan hluta aðalkröfu. Var niðurstaða hins kærða dóms um frávísun staðfest.

...um lista yfir mengandi starfsemi þar sem ekki er krafist ítarlegrar starfsleyfisgerðar, sbr. reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit. Þar hafi jafnframt verið tekið fram að...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. apríl 2025

E-2283/2024

Hreyfill svf (Jón Örn Árnason lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Þórður Guðmundsson lögmaður)

Vegna breytinga sem stefndi gerði á fyrirkomulagi biðstæða fyrir leigubíla í borginni á árinu 2020 var stefnanda gert að fjarlægja sérmerkingar sem hann hafði sett upp á tilteknum bifreiðastæðum. Stefnandi krafðist meðal annars ógildingar á þeirri ákvörðun í málinu, en stefndi var sýknaður af þeirri kröfu. Viðurkenningarkröfum sem stefnandi hafði jafnframt gert um viðurkenningu á afnota- og umráðarétti stæðanna og um viðurkenningu á bótaskyldu stefnda var vísað frá dómi.

...um lista yfir mengandi starfsemi þar sem ekki er krafist ítarlegrar starfsleyfisgerðar, sbr. reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit. Þar hafi jafnframt verið tekið fram að...

Landsréttur birt 21. nóvember 2024

732/2023

Bjarni Pálsson (Árni Ármann Árnason lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Þórhildur Lilja Ólafsdóttir lögmaður)

B krafðist þess að viðurkennd yrði bótaskylda R vegna breytinga á deiliskipulagi á jörð hans. Byggði B kröfu sína á 51. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem hefur að geyma hlutlæga bótareglu sem kveður á um að leiði skipulag eða breyting á skipulagi til þess að verðmæti fasteignar skerðist verulega, umfram það sem eigi við um sambærilegar eignir í næsta nágrenni, eigi sá sem geti sýnt fram á tjón af þeim sökum rétt á bótum frá viðkomandi sveitarfélagi. Í dómi Landsréttar kom fram að B beri sönnunarbyrði um að orsakatengsl séu á milli breytingarinnar og þess að verðmæti fasteigna hans skerðist verulega, umfram það sem við á um sambærilegar eignir í næsta nágrenni. Í málinu lægi fyrir matsgerð Ó og Þ. Voru niðurstöður matsgerðar- innar raktar og talið að hún fæli ekki í sér sönnun fyrir því að deiliskipulagsbreytingin hefði leitt til þess að verðmæti fasteigna B hafi orðið fyrir verulegri skerðingu, umfram það sem ætti við um sambærilegar eignir í næsta nágrenni. Þá hefði B ekki aflað yfirmats eða viðbótarmats og ekki vísað til annarra gagna sem fælu í sér sönnun á þeim bótaskilyrðum sem áskilið er að fullnægt sé svo fallist yrði á bótaskyldu. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu R af viðurkenningarkröfu B.

...Samandregin niðurstaða matsmanna var að starfsemi rekstraraðila væri undir þeim stærðarmörkum sem tilgreind væru í reglugerð nr. 550/2018. Á hinn bóginn væri tekið fram í gildandi starfsleyfi að nota...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. október 2023

E-3267/2021

Bjarni Pálsson (Árni Ármann Árnason lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Þórhildur Lilja Ólafsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Skipulag.

Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um viðurkenningu á stefndi hefði bakað sér skaðabótaskyldu gagnvart stefnanda í samræmi við 51. gr. skipulagslaga með því að breyta deiliskipulagi fyrir Brautarholt á Kjalarnesi á árinu 2016 þannig að heimilt væri að reka þar alifuglabú. Ekki var talið að verðmæti fasteignar stefnanda hefði skerst verulega með deiliskipulagsbreytingunni eins og áskilið væri í lagaákvæðinu. Úrslitum réð að sambærileg starfsemi var þegar til staðar í Brautarholti en þar hefur verið rekið svínabú um langt árabil.

...Samandregin niðurstaða matsmanna var að starfsemi rekstraraðila væri undir þeim stærðarmörkum sem tilgreind væru í reglugerð nr. 550/2018. Á hinn bóginn væri tekið fram í gildandi starfsleyfi að nota...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. maí 2022

E-2470/2021

Brimgarðar ehf (Stefán Geir Þórisson lögmaður) gegn Vegagerðinni (Reynir Karlsson lögmaður)

Kröfum stefnanda hafnað um að eignarnám á landspildum á Kjalarnesi yrði fellt úr gildi og stefnda gert að fjarlægja vegaframkvæmdir af landinu að viðlögðum dagsektum. Ekki taldist sannað að stefndi hefði brugðist skyldum sínum til að rannsaka mögulega smithættu af flutningum með dýr, sérstaklega svín á leið til slátrunar, um hringtorg sem koma á fyrir á Hringveginum á hinu eignarnumda landi.

...Í reglugerð nr. 550/2018, sem sett er með stoð í lögunum er markmið reglugerðarinnar skilgreint í samræmi við markmið laganna og þess síðan getið í 4. gr. að þessir...