Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 540/2011"

3 dómar fundust

Landsréttur birt 6. mars 2025

655/2023

Álftavatn ehf (Hróbjartur Jónatansson lögmaður) gegn embætti landlæknis og til vara íslenska ríkinu (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson lögmaður)
Lykilorð: Leigusamningur. Riftun. Fasteign.
Málaflokkur: Leiguréttur

Á ehf. og E gerðu með sér leigusamning árið 2011 til 15 ára um skrifstofuhúsnæði fyrir starfsemi E. Á árinu 2019 rifti E leigusamningnum. Í yfirlýsingu E um riftun kom meðal annars fram að hið leigða húsnæði hefði spillst svo á leigutímanum að það nýttist ekki lengur til fyrirhugaðra nota, auk þess að vera heilsuspillandi að mati Vinnueftirlitsins. Höfðaði Á ehf. þetta mál á hendur E til heimtu skaðabóta vegna ólögmætrar riftunar E. Í dómi Landsréttar var talið að leitt hefði verið í ljós að ástand húsnæðisins hefði versnað frá því að E tók húsnæðið á leigu þar til samningnum var rift. Rakið var að 15 starfsmenn E hefðu orðið veikir við vinnu sína í húsnæðinu og fleiri fundið fyrir einkennum veikinda. Vinnueftirlitið hefði talið að húsnæðið væri heilsuspillandi í úttektum sínum og greinargerð úttektaraðila sem tilnefndur var af kærunefnd húsamála sýnt margþætta vankanta á húsnæðinu. Ekki var fallist á þann málatilbúnað Á ehf. að skemmdir á hinu leigða húsnæði væri að rekja til E. Var því talið að E hafi verið heimilt að rifta leigusamningnum með vísan til 3. töluliðar 1. mgr. 60. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994, sökum þess að húsnæðið hefði spillst á leigutímanum, hvort heldur sem litið yrði svo á að það hefði ekki lengur nýst til fyrirhugaðra nota eða talist heilsuspillandi að mati heilbrigðisyfirvalda, auk þess sem annmarkar sem komu fram á húsnæðinu hefðu falið í sér verulega vanefnd. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sýknu E og Í því staðfest.

...46/1980 og reglugerð nr. 540/2011 um tilkynningu og skráningu atvinnusjúkdóma. Eins og komið er fram vísaði heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur erindi úttektarmannsins frá sér og taldi fyrirspurn hans heyra undir...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. júní 2023

E-3557/2021

Álftavatn ehf (Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður) gegn embætti landlæknis og íslenska ríkinu (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson lögmaður)

Stefnandi, leigusali, höfðaði mál á hendur stefnda, leigutaka, til greiðslu efndabóta þar eð hann taldi að riftun stefnda á húsaleigusamningi við stefnanda hefði ekki verið lögmæt. Dómurinn féllst á að öll skilyrði 3. töluliðar 1. mgr. 60. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 fyrir riftun leigusamnings hefðu verið uppfyllt á riftunardegi. Stefnandi var þó talinn eiga rétt til leigugreiðslna fyrir rúman mánuð sem stefndi átti ógreiddan. Þar eð stefndi var talinn eiga hærri kröfu á stefnanda og öll skilyrði skuldajöfnunar voru uppfyllt hafði leiguskuldin verið gerð upp með yfirlýsingu stefnda um skuldajöfnun. Stefndi var því sýknaður af öllum fjárkröfum stefnanda.

...46/1980 og reglugerð nr. 540/2011 um tilkynningu og skráningu atvinnusjúkdóma. Eins og komið er fram vísaði heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur erindi úttektarmannsins frá sér og taldi fyrirspurn hans heyra undir...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. janúar 2019

E-3532/2017

A (Bjarni Þór Sigurbjörnsson lögmaður) gegn Holtavegi 10 ehf og Húsasmiðjunni ehf (Smári Hilmarsson lögmaður)

Stefndu sýknaðir af skaðabótakröfu stefnanda vegna heilsutjóns af völdum myglu í starfsstöð.

...Þá verði að telja að stefndu hafi brotið gegn reglugerð nr. 540/2011 um tilkynningu og skráningu atvinnusjúkdóma, m.a. með því að halda ekki skrá yfir sjúkdóma sem þeir...