Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 424/2008"

11 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. febrúar 2019

E-806/2018

Alþjóðlegar bifreiðatryggingar sf (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður) gegn Davíð Eiríki Guðjónssyni (Karl Ólafur Karlsson lögmaður)

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um að stefnda verði gert, sem ökumanni á bifreið vinnuveitanda síns, að endurgreiða tjón stefnandi hafði greitt til tjónþola.

...Á grunni þeirra ákvæða hafi verið sett reglugerð nr. 424/2008 um lögmæltar ökutækjatryggingar. Samkvæmt 18. gr., sbr. 7. mgr. 20. gr., nefndrar reglugerðar hafi stefnandi greitt eiganda tjónsbifreiðarinnar VR...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. nóvember 2017

E-311/2017

A (Ómar R. Valdimarsson hdl) gegn Alþjóðlegum bifreiðatryggingum á Íslandi og sf. (Ingvar Sveinbjörnsson hrl) og B og C (Bjarni Hólmar Einarsson hdl)

Stefndu voru sýknaðir af kröfu stefnanda um skaðabætur vegna líkamstjóns sem hann hafði hlotið sem ökumaður óvátryggðrar bifreiðar.

...taka þátt í gagnkvæmu ábyrgðarkerfi vegna tjóna af völdum óvátryggðra og óþekktra ökutækja. Reglugerð nr. 424/2008 útfæri þessa skyldu nánar. Samkvæmt 3. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar sé aðalstefnda skylt...

Hæstiréttur birt 27. október 2016

165/2016

Alþjóðlegar bifreiðatryggingar á Íslandi sf (Ingvar Sveinbjörnsson hrl) gegn A (Steingrímur Þormóðsson hrl)

A krafðist viðurkenningar á því að hann ætti rétt til skaðabóta úr hendi ABÍ vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir er ekið hafði verið á hann af óþekktu vélknúnu ökutæki með vísan til 94. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 3. mgr. 18. gr. og 20. gr. reglugerðar nr. 424/2008. Var horft til þess samræmis sem hefði verið í frásögn A af slysinu og að ekkert hefði komið fram sem veikt gæti trúverðugleika hans. Talið var að hann hefði leitt nægar líkur að því að hann hefði slasast af völdum skráningarskylds ökutækis og var því bótaskylda ABÍ viðurkennd.

...Samkvæmt þessari heimild hefur reglugerð nr. 424/2008 um lögmæltar ökutækjatryggingar verið sett. Í VI. kafla reglugerðarinnar er fjallað um tjónsuppgjörsmiðstöð sem nefnd er Alþjóðlegar bifreiðatryggingar sf. Í 3. mgr...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. desember 2015

E-334/2015

A (Þormóður Skorri Steingrímsson hdl) gegn Alþjóðlegum bifreiðatryggingum á Íslandi sf (Ingvar Sveinbjörnsson hrl)
Lykilorð: Skaðabótamál.

Talið sannað að maður á reiðhjóli hefði slasast af völdum bifreiðar, sem var óþekkt

...ábyrgðarkerfi vegna tjóns af völdum óvátryggðra og óþekktra ökutækja.  Samkvæmt þessari heimild hefur reglugerð nr. 424/2008 um lögmæltar ökutækjatryggingar verið sett.  Í VI. kafla reglugerðarinnar er fjallað um tjónsuppgjörsmiðstöð...

Hæstiréttur birt 4. desember 2014

236/2014

A (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn Alþjóðlegum bifreiðatryggingum á Íslandi sf (Ingvar Sveinbjörnsson hrl)

A krafðist þess að viðurkennd yrði skaðabótaskylda A sf. vegna líkamstjóns 1. ágúst 2008 er hann klemmdist á milli tveggja bifreiða. A byggði á því að A sf. bæri skylda til að bæta honum það tjón sem orðið hefði þar sem slysið yrði rakið til notkunar óvátryggðs ökutækis, sbr. 1. mgr. 94. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Talið var að af ákvæðinu og reglugerð nr. 424/2008 um lögmæltar ökutækjatryggingar yrði ráðið að ekki gæti komið til greiðsluskyldu A sf. nema A hafi átt rétt til bóta úr ábyrgðartryggingu óvátryggðs ökutækis ef vátryggingin hefði verið í gildi þegar slysið var. Þar sem A hefði verið ökumaður hinnar óvátryggðu bifreiðar þegar slysið varð gæti hann hvorki öðlast rétt til bóta úr hendi A sf. á grundvelli 94. gr. umferðarlaga né sérreglna 88. og 90. gr.

...Talið var að af ákvæðinu og reglugerð nr. 424/2008 um lögmæltar ökutækjatryggingar yrði ráðið að ekki gæti komið til greiðsluskyldu A sf. nema A hafi átt rétt til bóta...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. apríl 2012

E-1438/2012

A gegn B

Stefndi dæmdur til að greiða stefnanda bætur fyrir varanlega örorku.

...með vísan til tilskipunar EBE sem lögfest hafi verið hér á landi með reglugerð nr. 424/2008, sbr. dóm Hæstaréttar Íslands í málinu nr. 342/2008. Í samræmi við fyrrgreint...

Hæstiréttur birt 14. nóvember 2013

228/2013

Alþjóðlegar bifreiðatryggingar á Íslandi sf (Ingvar Sveinbjörnsson hrl) gegn A (Steingrímur Þormóðsson hrl)

A krafðist viðurkenningar á því að hann ætti rétt til skaðabóta úr hendi A sf. vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir af völdum óþekktrar bifreiðar eða annars skráningarskylds ökutækis með vísan til 94. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 18. og 2. mgr. 20. gr. reglugerðar nr. 424/2008. Engin vitni voru af slysinu. Í dómi Hæstaréttar kom m.a. fram að A hafi staðfastlega haldið því fram að hann hefði handarbrotnað í kjölfar þess að óþekkt bifreið hefði ekið utan í sig. Þá hafði A leitað til heilsugæslu eftir um klukkustund frá því að slysið varð að hans sögn og þar hafði verið skráð eftir honum að bifreið hafi strokist við sig. Af gögnum málsins mátti draga þá ályktun að hendi hans gæti hafa brotnað við það að hann hafi borið höndina fyrir sig eftir að bifreið var ekið utan í hann. Var því fallist á það með A að leggja frásögn hans af slysinu til grundvallar við úrlausn málsins og skaðabótaskylda A sf. viðurkennd.

...Með stoð í þessu lagaákvæði hefur ráðherra sett reglugerð nr. 424/2008 um lögmæltar ökutækjatryggingar. Í VI. kafla reglugerðarinnar er fjallað um tjónsuppgjörsmiðstöð sem nefnd er Alþjóðlegar bifreiðatryggingar sf. Í...

Hæstiréttur birt 6. júní 2013

62/2013

Davíð Örn Bjarnason (Jóhannes Albert Sævarsson hrl) gegn Alþjóðlegum bifreiðatryggingum á Íslandi sf (Guðjón Ármannsson hrl)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

ABÍ sf. krafði D um greiðslu bóta vegna tjóns sem hlotist hafði af notkun óvátryggðs ökutækis, þegar árekstur varð milli bifreiðar sem D ók og annarrar bifreiðar. Var krafa ABÍ sf. reist á endurkröfurétti félagsins samkvæmt reglugerð nr. 424/2008 um lögmæltar ökutækjatryggingar og 94. og 94. gr. a. umferðarlaga nr. 50/1987. Talið var sannað að D hefði verið í órétti þegar slysið varð og að hann ætti sök á árekstrinum á grundvelli sakarreglunnar. Þá var ekki talið að 2. mgr. 95. gr. laganna, um endurkröfurétt vátryggingafélags þegar tjóni hefur verið valdið af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi, ætti við, þar sem það ákvæði tæki aðeins til vátryggðra ökutækja og bóta sem vátryggingafélag hefði greitt á grundvelli 91. gr. umferðarlaga. Þá þótti ljóst að reglugerð nr. 424/2008 væri sett með stoð í umferðarlögum og endurkröfuréttur ABÍ sf., sem mælt var fyrir um í reglugerðinni, væri að auki í samræmi við almennar reglur um endurkröfu greiddra bóta, sbr. 22. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Var því talið að ABÍ sf. ætti rétt til endurkröfu á hendur D vegna þess tjóns sem hann olli í árekstrinum. Hins vegar voru bæturnar lækkaðar um helming á grundvelli 24. gr. skaðabótalaga.

...reist á endurkröfurétti félagsins samkvæmt reglugerð nr. 424/2008 um lögmæltar ökutækjatryggingar og 94. og 94. gr. a. umferðarlaga nr. 50/1987. Talið var sannað að D hefði verið í...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. febrúar 2013

E-1230/2012

Sverrir Geir Gunnlaugsson (Þormóður Skorri Steingrímsson hdl) gegn Alþjóðlegum bifreiðatryggingum á Íslandi sf (Ingvar Sveinbjörnsson hrl)
Lykilorð: Skaðabætur. Sönnun.

Fallist var á kröfu stefnanda um að viðurkennd yrði bótaskylda stefnda á tjóni sem stefnandi varð fyrir af völdum óþekktrar bifreiðar.

...Með stoð í þessu lagaákvæði hefur ráðherra sett reglugerð nr. 424/2008 um lögmæltar ökutækjatryggingar. Í VI. kafla reglugerðarinnar er fjallað um tjónsuppgjörsmiðstöð sem nefnd er Alþjóðlegar bifreiðatryggingar sf. Í...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. nóvember 2012

E-4864/2011

Alþjóðlegar bifreiðatryggingar á Íslandi sf (Björgvin Þórðarson hdl) gegn Outlet ehf og Davíð Erni Bjarnasyni (Jóhannes Albert Sævarsson hrl)
Lykilorð: Endurkrafa. Skaðabætur.

Endurkrafa vegna muna- og líkamstjóns í kjölfar áreksturs. Stefndu voru dæmd til að greiða stefnanda stefnufjárhæð.

...Á grundvelli þessara lagagreina hafi verið sett reglugerð nr. 424/2008 um lögmæltar ökutækjatryggingar. Á grundvelli 18. gr. sbr. 20. gr. reglugerðarinnar hafi stefnandi greitt eiganda bifreiðarinnar KL-814 bætur...