Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 419/1999"
3 dómar fundust
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A um að lífeyrisréttindi B kæmu til skipta sem hjúskapareign við fjárslit þeirra. Í úrskurði Landsréttar var fallist á að hluti af séreignarsparnaði B sem heimild væri til úttektar á, í samræmi við VIII. ákvæði til bráðabirgða með lögum nr. 129/1997, sbr. lög nr. 25/2020, hefði endurkaupsvirði samkvæmt kröfu maka í samræmi við 2. tölulið. 1. mgr. 102. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993 og skyldi koma til skipta við fjárslitin. Að öðru leyti var niðurstaða héraðsdóms staðfest.
...Í fyrstu eftir setningu laganna hafi gilt reglugerð nr. 419/1999 um leyfisskírteini til starfsins en sú reglugerð hafi verið felld úr gildi með reglugerð nr. 400/2008. Reglugerðin fjalli...
A krafði Í um greiðslu á kjarasamningsbundinni skírteinistryggingu í kjölfar afturköllunar Flugmálastjórnar á skírteini hennar til starfa sem flugumferðarstjóri. Byggði A á því að hún uppfyllti skilyrði innlausnar tryggingarinnar en samkvæmt nánari ákvæðum gildandi kjarasamnings tók tryggingin m.a. að fullu til veikinda sem voru að uppruna sálræns eðlis. Í málinu lágu fyrir fjögur læknisvottorð um að A hafði glímt við slík veikindi. Talið var að A hefði ekki verið svipt réttindum sínum vegna veikinda, líkt og áskilið var í kjarasamningi aðila, heldur á grundvelli þess að hún hefði veitt rangar upplýsingar um heilsufar sitt og lyfjanotkun í umsóknum sínum um heilbrigðisvottorð á fjögurra ára tímabili. Þeirri ákvörðun Flugmálastjórnar hafði A ekki skotið til úrlausnar æðra stjórnvalds né hafði hún höfðað mál til að hnekkja henni. Þar sem skilyrði kjarasamnings til innlausnar tryggingarinnar voru ekki uppfyllt í málinu var Í sýknað af kröfu A.
...sömu greinar í eldri reglugerð nr. 419/1999, mættu umsækjendur flugumferðarstjóraskírteinis hvorki þjást af þunglyndi og kvíða né mættu slíkir sjúkdómar koma fram í sjúkrasögu viðkomandi. Umsækjendur skyldu einnig svara...
Félag íslenskra flugumferðarstjóra (F) höfðaði mál gegn íslenska ríkinu (Í) og krafðist viðurkenningar á því að H félagsmaður F hefði átt rétt á dagpeningum í samræmi við reglur og ákvarðanir ferðakostnaðarnefndar er hún dvaldi fjarri starfsstöð sinni á vegum Flugmálastjórnar Íslands vegna námskeiðs- og þjálfunarstarfa á tímabilinu frá október 1998 til maíloka 1999. Þá var krafist viðurkenningar á því að brotið hefði verið gegn grein 5.7.1 í kjarasamningi F og ríkissjóðs með því að neita að greiða H slíka dagpeninga. Í krafðist frávísunar málsins á grundvelli vanreifunar og aðildarskorts. Var niðurstaða félagsdóms staðfest með vísan til forsendna.
...núgildandi reglugerð nr. 419/1999 um sama efni. Aðstæður á hverjum stað ráða því hvaða starfsréttinda og þjálfunar er almennt krafist, en nám til starfsréttinda fer fram í Reykjavík og...