Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 288/1987"

5 dómar fundust

Landsréttur birt 17. nóvember 2023

352/2022

Vörður tryggingar hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður) gegn A, TM tryggingum hf. til réttargæslu og A (Erling Daði Emilsson lögmaður)

A höfðaði mál á hendur tryggingafélögunum V hf. og T hf. og krafðist skaðabóta vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir er hann lenti í slysi á vínveitinga- og skemmtistað árið 2016. Slysið varð með þeim hætti að A féll er hann var að ganga niður stiga og skall í kjölfarið með höfuðið á steyptu gólfi í anddyri staðarins. Deildu aðilar um hvort slysið yrði rakið til saknæmrar háttsemi eiganda fasteignarinnar og rekstraraðila staðarins þannig að A ætti rétt á bótum úr ábyrgðartryggingu þeirra. V hf. og T hf. töldu að um óhappatilvik hefði verið að ræða og að slysið mætti einnig rekja til eigin sakar A. Jafnframt deildu aðilar um einstaka liði bótakröfu A. Í málinu byggði A á því að aðbúnaður stigans hefði verið alls ófullnægjandi og að stiginn hefði meðal annars ekki uppfyllt áskilnað byggingarsamþykktar fyrir Reykjavík frá árinu 1945, sem í gildi hefði verið á byggingartíma stigans. Undir rekstri málsins í héraði var aflað matsgerðar byggingafræðings um ástand stigans. Á grundvelli mælinga matsmanns sló Landsréttur því föstu að stiginn hefði frá öndverðu farið í bága við ákvæði fyrrgreindrar byggingarsamþykktar en einnig ákvæði síðari reglugerða. Taldi Landsréttur að sá annmarki á stiganum, auk ófullnægjandi lýsingar, hefði verið megin orsök slyss A. Enn fremur var talið í ljós leitt að rekstraraðili skemmtistaðarins hefði búið yfir vitneskju um að stiginn væri varhugaverður. Eigandi fasteignarinnar og rekstraraðili staðarins voru samkvæmt framansögðu taldir bera bótaábyrgð gagnvart A og var V hf. og T hf. því gert að greiða honum bætur.

...Þegar G hafi hafið rekstur árið 2006 hafi verið í gildi reglugerð nr. 288/1987 um veitinga- og gististaði. Samkvæmt 29. gr. hennar skuli húsnæði og búnaður veitingastaða fullnægja kröfum...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. maí 2022

E-8149/2020

A (Agnar Þór Guðmundsson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður) og TM tryggingum hf (Hjörleifur Kvaran lögmaður)

Stefnanda dæmdar skaðabætur úr hendi stefnda tryggingafélags fasteignaeiganda í ljósi ábyrgðartryggingar vegna líkamstjóns og miska, þá einkum í formi varanlegra höfuðáverka og skerðinga, er stefnandi hlaut eftir að hafa fallið í stiga á vínveitingastað sem taldist ekki hafa uppfyllt kröfur í byggingasamþykkt þegar hann var reistur og það talið vera sönnuð meginorsök þess slyss sem varð. Meðstefndi tryggingafélag rekstraraðila var hins vegar sýknað þar sem ekki þótti vera nægilega sýnt fram á vanrækslu varðandi þá þætti sem sá stefndi hefði getað borið sérstaklega ábyrgð á eins og á stóð.

...Þegar H hafi hafið rekstur árið 2006 hafi verið í gildi reglugerð nr. 288/1987 um veitinga- og gististaði. Samkvæmt 29. gr. hennar skuli húsnæði og búnaður veitingastaða fullnægja kröfum...

Hæstiréttur birt 19. maí 2011

65/2010

Svanhvít Albertsdóttir (Sigmundur Hannesson hrl) gegn GSB veitingum ehf (Kristín Edwald hrl)

S krafðist þess að viðurkennt yrði að G bæri fulla skaðabótaskyldu vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir á skemmtistað G. Fallist var á með héraðsdómi að G bæri skaðabótaábyrgð á slysi S sökum þess að umbúnaður palls sem S féll af hefði ekki verið forsvaranlegur. Þá var fallist á ályktun héraðsdóms um að orsakir slyssins yrðu einnig raktar til ölvunar S, sem vissi af grindverki því sem var við brún pallsins þar sem hún féll, þannig að hún ætti sjálf nokkra sök á slysinu. Þá var við sakarmat litið til þess að pallurinn hefði upphaflega verið reistur fyrir flytjendur tónlistar á veitingastaðnum og grindverkið sett upp í þeim tilgangi að halda gestum staðarins frá tónlistarflytjendum. Á þeim tíma er slysið varð hafði pallurinn á hinn bóginn öðlast nýtt hlutverk og hann ætlaður gestum veitingastaðarins. Þegar litið var til þess og þeirrar starfsemi sem rekin var í húsinu var talið að umbúnaður þessi hefði verið meginorsök slyssins þannig að G skyldi bera ábyrgð á tjóni S að 2/3 hlutum.

...dag hafi stefnda verið með gilt vínveitingaleyfi skv. lögum nr. 67/1985, sbr. reglugerð nr. 288/1987, til reksturs veitingahúss, skemmtistaðar, dansstaðar og kaffihúss við Strandgötu 7, og hafi leyfið...

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 6. nóvember 2009

E-184/2009

Svanhvít Albertsdóttir (Auður Björg Jónsdóttir hdl) gegn GSB veitingum ehf (Ásgeir Helgi Jóhannsson hdl)

Stefnandi slasaðist er hún féll um grindverk á skemmtistað og stefndi rekstraraðila staðarins til viðurkenningar á bótaskyldu. Viðurkennt var að rekstraraðilinn bæri ábyrgð á þriðjungi tjónsins en tvo þriðju yrði stefnandi að bera vegna eigin sakar.

...dag hafi stefnda verið með gilt vínveitingaleyfi skv. lögum nr. 67/1985, sbr. reglugerð nr. 288/1987, til reksturs veitingahúss, skemmtistaðar, dansstaðar og kaffihúss við Strandgötu 7, og hafi leyfið...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. maí 2007

E-4752/2005

Margrét Linda Helgadóttir (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn Kristján Þór Jónssyni (Halldór Helgi Backman hrl) og Reykjavíkurborg (Ólafur Finnbogi Haraldsson hrl)

Stefndu voru sýknuð af kröfum stefnanda um skaðabætur vegna slyss sem stefnandi varð fyrir á veitingastað á árinu 1998, er hún féll þar í stiga. Ekki var talið sannað að stefndu, eða aðilar á þeirra vegum, ættu sök á ætluðum vanbúnaði á stiganum á þeim tíma. Allt eins var talið líklegt að stefnandi hafi orðið fótaskortur vegna vangæslu hennar sjálfrar. Litið var til þess að langt var frá því að slysið varð og þar til stefnandi krafði stefndu um bætur. Möguleikar stefndu til að leiða í ljós, hvernig aðstæður voru á staðnum þegar slysið varð, höfðu skerst til muna.

...67/1985, en hvorki væri í þeim lögum né í reglugerð nr. 288/1987, sem sett er í skjóli laganna, kveðið á um sérstaka ábyrgð vínveitingaleyfishafa á umbúnaði húsnæðis.  Byggir...