Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 175/2008"
4 dómar fundust
Árekstur varð í ytri höfn Reykjavíkur með sæþotu og slöngubát með þeim afleiðingum að A, farþegi á sæþotunni, varð fyrir líkamstjóni. A höfðaði mál á hendur B og C, sem stýrðu sjóförunum, til viðurkenningar á bótaskyldu. Í hinum áfrýjaða dómi var viðurkennd óskipt skaðabótaskylda B og C. Áfrýjaði B dóminum fyrir sitt leyti. Í dómi Landsréttur var niðurstaða hins áfrýjaða dóms staðfest er varðar B. Litið var til alþjóðareglna um árekstra á sjó, matsgerðar dómkvaddra matsmanna og myndupptöku af atvikinu við mat á bótaskyldu. Var B ekki talinn hafa veitt slöngubátnum næga athygli, sem takmarkaði hvaða viðbrögð unnt var að grípa til þegar í óefni var komið. Jafnframt var B talinn hafa siglt of hratt miðað við aðstæður og að hann hefði ekki gætt að því hvort hætta væri á árekstri og ekki framkvæmt rétt stjórntök í tæka tíð til að forða árekstri. Var framangreint háttalag B ekki talið samræmast reglum 6, 7. 8 og 14. gr. nefndra alþjóðareglna. Var því siglingarlag B því metið honum til sakar. Hvorki var talið tilefni til að víkja frá meginreglu skaðabótaréttar um fulla og óskipta bótaábyrgð né að takmarka bótarétt A vegna eigin sakar eða áhættutöku.
...944/2020, en á þeim tíma sem slysið varð gilti reglugerð nr. 175/2008. Í báðum þessum reglugerðum komi fram að hver sá sem stjórnar skemmtibát sem er 6 metrar...
Á aðalfundi V var samþykktum A breytt og fólu breytingarnar meðal annars í sér að allir félagsmenn í V gátu eftir þær tekið þátt í kosningu um breytingar á samþykktum A en ekki aðeins vélstjóramenntaðir félagsmenn eins og áður hafði verið. Var markmiði sjóðsins breytt samhliða þessu þannig að styrkir sem veittir væru til rannsókna tækju til vinnuumhverfis og aðbúnaðar allra félagsmanna V og námsefnis og kennsluaðferða í námi þeirra en ekki aðeins vélstjóramenntaðra. H, sem var vélstjóri og félagsmaður í V, höfðaði mál á hendur V og A og krafðist þess aðallega að viðurkennt yrði að á aðalfundinum hefði engin gild breyting verið gerð á samþykktum A, en til vara að allar ákvarðanir fundarins um breytingar á samþykktum A yrðu ógiltar. Í dómi Hæstaréttar kom fram að heimild til að krefjast viðurkenningardóms væri samkvæmt 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála háð því skilyrði að stefnandi hefði sjálfur lögvarða hagsmuni af því að skorið yrði úr um tilvist eða efni viðkomandi réttinda eða réttarsambands. Til þess að sýnt væri fram á að þessu skilyrði væri fullnægt væri óhjákvæmilegt að stefnandi bæri skýrlega fyrir sig málsástæður um að lögvarðir hagsmunir væru fyrir hendi. Talið var að í stefnu til héraðsdóms hefði H ekki gert viðhlítandi grein fyrir þessu heldur kæmi þar einungis fram að hann, sem félagsmaður í V, ætti ekki að þurfa að þola að samþykktir A væru brotnar og starfsemi sjóðsins breytt með fyrrgreindum hætti. Þá var ekki talið að aðild að félagi leiddi sjálfkrafa til þess að lögvarðir hagsmunir félagsmanns væru ávallt taldir vera fyrir hendi vegna sérhverrar ákvarðanatöku á vettvangi þess. Slíkt þyrfti sem endranær að meta sjálfstætt hverju sinni á grundvelli einstaklegra, beinna og lögvarinna hagsmuna viðkomandi félagsmanns. Hefði H ekki sýnt fram á slíka lögvarða hagsmuni til að fá leyst úr aðalkröfu sinni. Af því leiddi hann hefði ekki heldur lögvarða hagsmuni að fá efnisdóm um varakröfu sína. Var málinu því vísað frá héraðsdómi.
...Í greinargerð með tillögunni kom fram að með breytingu á reglugerð nr. 175/2008 um vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum myndu vélvirkjar, sem teljist til málmtæknimanna, fá réttindi...
Viðurkennt að kosning um breytingu á samþykktum sjóðs, sem heyrði undir stéttarfélag, hefði ekki farið fram í samræmi við samþykktir sjóðsins og væri því ógild.
...Í greinargerð með tillögunni kom fram að með breytingu á reglugerð nr. 175/2008 um vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum...
Ákæruvaldið (
Kristján Óskar Ásvaldsson fulltrúi)
gegn
Hauki Vagnssyni (
Snorri Sturluson hdl)
Karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn siglingalögum, lögum um eftirlit með skipum, lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa og hótanir.
...nr. 30/2007, um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa, sbr. reglugerð nr. 175/2008, með síðari breytingum, um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum...