Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Sigling

Landsréttur birt 12. desember 2024

516/2023

B (Björgvin Jónsson lögmaður) gegn A (Fjölnir Vilhjálmsson lögmaður)

Árekstur varð í ytri höfn Reykjavíkur með sæþotu og slöngubát með þeim afleiðingum að A, farþegi á sæþotunni, varð fyrir líkamstjóni. A höfðaði mál á hendur B og C, sem stýrðu sjóförunum, til viðurkenningar á bótaskyldu. Í hinum áfrýjaða dómi var viðurkennd óskipt skaðabótaskylda B og C. Áfrýjaði B dóminum fyrir sitt leyti. Í dómi Landsréttur var niðurstaða hins áfrýjaða dóms staðfest er varðar B. Litið var til alþjóðareglna um árekstra á sjó, matsgerðar dómkvaddra matsmanna og myndupptöku af atvikinu við mat á bótaskyldu. Var B ekki talinn hafa veitt slöngubátnum næga athygli, sem takmarkaði hvaða viðbrögð unnt var að grípa til þegar í óefni var komið. Jafnframt var B talinn hafa siglt of hratt miðað við aðstæður og að hann hefði ekki gætt að því hvort hætta væri á árekstri og ekki framkvæmt rétt stjórntök í tæka tíð til að forða árekstri. Var framangreint háttalag B ekki talið samræmast reglum 6, 7. 8 og 14. gr. nefndra alþjóðareglna. Var því siglingarlag B því metið honum til sakar. Hvorki var talið tilefni til að víkja frá meginreglu skaðabótaréttar um fulla og óskipta bótaábyrgð né að takmarka bótarétt A vegna eigin sakar eða áhættutöku.

Landsréttur birt 19. febrúar 2021

812/2019

Thor P/F (Eyvindur Sveinn Sólnes lögmaður) gegn Sandgerðisbæ (Unnar Steinn Bjarndal lögmaður)

T og S deildu um hvort skipið TS í eigu T hefði siglt á innsiglingarstaur í Sandgerðishöfn 30. júlí 2014 með þeim afleiðingum að staurinn brotnaði. Með framburði sjónarvotta sem fékk stað í gögnum málsins var talið sannað að skipið TS hefði siglt á innsiglingarstaurinn. Hefði skipstjóri skipsins með aðgæsluleysi sínu sýnt af sér saknæma hegðun og þar með bakað T skaðabótaskyldu vegna tjóns S. Við mat á fjárhæð bóta leit Landsréttur til þess að með viðgerð hefði innsiglingarstaurinn verið endurnýjaður frá grunni en hann hefði verið kominn til ára sinna og bentu gögn málsins til þess að undirstaða hans hefði áður orðið fyrir hnjaski. Var T dæmdur til að greiða S bætur að álitum að fjárhæð 13.000.000 króna með tilgreindum dráttarvöxtum og málskostnaði.