Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1106/2015"
5 dómar fundust
D krafðist ógildingar á ákvörðun Á um að hafna umsókn um sölu á áfengum drykk í söluflokknum reynsluflokki. Ákvörðunin var byggð á 4. mgr. 11. gr. laga nr. 86/2011 um verslun með áfengi og tóbak, en samkvæmt ákvæðinu er Á heimilt að hafna áfengi sem inniheldur koffein og önnur örvandi efni. D byggði á því að ákvörðun Á hefði ekki verið byggð á lagaheimild sem uppfyllti lögmætisreglu íslensks réttar og laga- áskilnaðarreglu 75. gr. stjórnarskrárinnar. Þá hefði ákvörðunin verið ýmsum annmörkum háð, þar með talið hefði hún ekki verið reist á málefnalegum sjónarmiðum eða verið í samræmi við jafnræðisreglu. Með dómi Landsréttar var ekki fallist á að löggjafinn hefði veitt Á óheft ákvörðunarvald um takmörkun á atvinnufrelsi í andstöðu við 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar eða lögmætisreglu íslenskrar stjórnskipunar. Vísað var til þess að ákvörðunin hefði verið reist á matskenndum lagagrundvelli og hefði Á borið að byggja á málefnalegum sjónarmiðum sem væru til þess fallin að ná því markmiði sem stefnt væri að með heimildinni. Fyrir lægi að Á hefði heimilað sölu á ýmsum vörum sem hefðu að geyma koffein, þar með talið vörum með meira magni efnisins en hin umdeilda vara. Þá væri ágreiningslaust að örvandi áhrif koffeins væru þau sömu hvort heldur sem því væri blandað við áfengi með kaffi eða öðrum hætti. Ekki var talið að röksemd Á um að gera bæri greinarmun á vörum, sem hefðu að geyma koffein, með vísan til bragðeinkenna væri til þess fallin að ná þeim markmiðum að bæta lýðheilsu og stemma stigu við blöndun áfengis og koffeins. Væri því ekki um að ræða málefnalegt sjónarmið og hefði Á verið óheimilt að byggja ákvörðun sína á því. Þá var ekki talið að ályktun Á um að varan hefði helstu einkenni orkudrykkja fengi viðhlítandi stoð í þeim gögnum sem vísað hefði verið til í ákvörðuninni. Hefði mat Á að þessu leyti verið óforsvaranlegt, þó svo að það hefði út af fyrir sig verið málefnalegt að líta til þess hvort um áfengisblandaðan orkudrykk væri að ræða. Loks gæti fyrirkomulag flokkunar á vörusafni Á og önnur almenn sjónarmið sem vísað væri til ekki stutt ákvörðunina með viðhlítandi hætti. Var því talið að ákvörðun Á væri háð verulegum annmörkum að efni til og var hún þegar af þeirri ástæðu felld úr gildi.
...86/2011 hafi fjármálaráðherra sett reglugerð nr. 1106/2015 um vöruval, innkaup og dreifingu ÁTVR á áfengi. Samkvæmt 3. gr. reglugerðarinnar skuli ÁTVR fara með framkvæmd reglugerðarinnar og haga 26...
D höfðaði mál á hendur Á og krafðist ógildingar á ákvörðunum Á um að fella tvær bjórtegundir úr vöruvali Á og hætta innkaupum þeirra. Byggði D á að Á hefði verið óheimilt að byggja ákvarðanir sínar á framlegð vöru þar sem það viðmið ætti ekki stoð í lögum nr. 86/2011 um verslun með áfengi og tóbak. Samkvæmt 5. mgr. 11. gr. laganna setur ráðherra nánari reglur um vöruval, innkaup og dreifingu ÁTVR á áfengi. Reglurnar skuli miða að því að tryggja vöruúrval m.a. með hliðsjón af eftirspurn kaupenda, jafnframt því að tryggja framleiðendum og birgjum áfengis möguleika á að koma vörum í sölu í áfengisverslunum. Í 1. mgr. 24. gr. reglugerðar nr. 1106/2015, sem sett var á grundvelli tilvitnaðrar lagagreinar, er miðað við að framlegð skuli ráða vöruvali. Hæstiréttur taldi að þótt vera kynni í einhverjum tilvikum að vöruval á grundvelli eftirspurnar annars vegar og framlegðar hins vegar leiddi til svipaðrar niðurstöðu yrði að líta til þess að umrædd viðmið byggðust á ólíkum forsendum. Þau gætu því leitt til mismunandi niðurstaðna eins og raunin hefði verið í málinu en þær bjórtegundir D sem felldar voru úr vöruvali Á nutu meiri eftirspurnar en tilteknar aðrar vörur sem héldu stöðu sinni á grundvelli meiri framlegðar. Hæstiréttur áréttaði að lagafyrirmæli sem liggi til grundvallar skerðingu á atvinnufrelsi þurfi að vera skýr og verði ekki túlkuð með rýmri hætti, borgurunum í óhag en leitt verði af skýrri orðanna hljóðan eða afdráttarlausum vísbendingum í lögskýringargögnum væri uppi einhver vafi um túlkun. Þau skilyrði væru ekki uppfyllt í málinu og því fallist á það með D að þær ákvarðanir Á sem dómkrafa tók til hefðu verið ólögmætar þar sem þær skorti viðhlítandi stoð í lögum. Þar sem með því hefði verið brotið gegn lagaáskilnaðarkröfu 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar voru þær felldar úr gildi.
...86/2011, reglugerð nr. 1106/2015 um vöruval, innkaup og dreifingu ÁTVR á áfengi og reglur nr. 2 frá 1. mars 2022 sem settar séu með stoð í 1. mgr...
D höfðaði mál á hendur Á og krafðist ógildingar á tveimur ákvörðunum Á um að fella tvær bjórtegundir úr vöruúrvali Á og hætta innkaupum þeirra þar sem þær hefðu ekki náð ákveðnu viðmiði um framlegð. Byggði D á því að Á hefði verið óheimilt að byggja ákvörðunartöku sína á framlegð þar sem það viðmið ætti ekki stoð í lögum nr. 86/2011 um verslun með áfengi og tóbak, heldur bæri við ákvarðanir þar um að miða við eftirspurn kaupenda, sem vísað væri til í 5. mgr. 11. gr. laga nr. 86/2011, sem réðist af sölumagni hlutaðeigandi vöru. Í niðurstöðu Landsréttar var rakið að samkvæmt fyrrnefndu ákvæði skyldi ráðherra setja nánari reglur um vöruval, innkaup og dreifingu Á á áfengi, sem skyldu miða að því að tryggja vöruúrval m.a. með hliðsjón af eftirspurn kaupenda, jafnframt því að tryggja framleiðendum og birgjum áfengis möguleika á að koma vörum í sölu í áfengisverslunum. Að virtri breytingarsögu ákvæðisins varð ekki ráðið að ætlun löggjafans hefði verið að hrófla við þeirri áralöngu tilhögun að miða árangursviðmið um vöruval við framlegð. Þá var fallist á með Á að viðmið um framlegð endurspeglaði eftirspurn og væri betur til þess fallið að tryggja vöruúrval í verslunum Á og sölumöguleika birgja. Var einsýnt að mati réttarins að þau sjónarmið sem lágu til grundvallar framlegðarviðmiði teldust málefnaleg og í samræmi við markmið áfengislaga um að Á skyldi starfa með samfélagslega ábyrgð og lýðheilsu að leiðarljósi. Var því niðurstaða Landsréttar að framlegðarviðmiðið ætti sér fullnægjandi lagastoð. Þá var ekki fallist á með D að Á hefði brotið gegn andmælareglu stjórnsýsluréttar, en ljóst þótti að D var kunnugt um þau viðmið sem réðu vöruvali Á og að afstaða hans til þeirra lá fyrir. Var því óþarft að gefa honum kost á að tjá sig um efni málsins. Loks var hafnað málsástæðum D um valdþurrð þess starfsmanns Á sem tók hinar umþrættu ákvarðanir og um brot á öðrum meginreglum stjórnsýslulaga. Var Á því sýknað af kröfum D.
...2 Á grundvelli ákvæðisins hefur verið sett reglugerð nr. 1106/2015 um vöruval, innkaup og dreifingu áfrýjanda á áfengi, með síðari breytingum. Í 2. tölulið 4. gr. reglugerðarinnar er framlegð...
Stefndi synjaði umsókn stefnanda um að tiltekinn áfengur drykkur sem inniheldur koffein yrði tekinn til sölu hjá stefndu. Sú niðurstaða byggðist á heimild í 4. mgr. 11. gr. laga nr. 86/2011 um verslun með áfengi og tóbak. Stefnandi krafðist ógildingar á þeirri ákvörðun og byggði á því að umrædd lagaheimild stæðist ekki gagnvart ákvæðum 75. gr. og 72. gr. stjórnarskrárinnar, um vernd atvinnufrelsis og eignarréttinda, og ákvörðun stefnda væri einnig háð ýmsum annmörkum sem leiða ættu til ógildingar hennar. Ekki var fallist á þessi sjónarmið stefnanda og stefndi var því sýknaður af kröfum hans.
...86/2011 hafi fjármálaráðherra sett reglugerð nr. 1106/2015 um vöruval, innkaup og dreifingu ÁTVR á áfengi. Samkvæmt 3. gr. reglugerðarinnar skuli ÁTVR fara með framkvæmd reglugerðarinnar og haga framkvæmdinni...
Tvær tilgreindar ákvarðanir Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins felldar úr gildi á þeim forsendum að þær hafi brotið í bága við 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar og lögmætisreglu íslensks réttar.
...Þá sé framlegðarviðmiðið augljóslega í ósamræmi við önnur efnisákvæði um vöruval í reglugerð nr. 1106/2015, sem leggi áherslu á eftirspurn. 25 Þessu til viðbótar telur stefnandi að árangursviðmið byggt...