Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lagagrein: 34. gr. laga nr. 96/2002 — Lög um útlendinga

Hæstiréttur birt 4. desember 2014

430/2014

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Shakir Mundher Alshawkan (Ragnar Aðalsteinsson hrl)
Málaflokkur: Útlendingamál

S, íraskur ríkisborgari, krafðist þess að ógiltur yrði úrskurður innanríkisráðuneytisins og felld úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar þar sem ákveðið var að umsókn hans um hæli á Íslandi yrði ekki tekin til meðferðar hér á landi og að hann skyldi endursendur til Noregs. Var ákvörðunin reist á d. lið 1. mgr. 46. gr. a. og a. lið 1. mgr. 32. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Í málinu lá fyrir að Noregur hafði samþykkt að S yrði á grundvelli e. liðar 1. mgr. 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar fluttur aftur þangað, en S hafði áður sótt um hæli þar í landi en verið synjað. Héraðsdómur tók kröfu S til greina og felldi úrskurð ráðuneytisins úr gildi með vísan til þess að frestur samkvæmt 3. mgr. 19. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar til að senda S til Noregs væri liðinn og bæru íslensk stjórnvöld því ábyrgð á hælisumsókn S, sbr. 4. mgr. 19. gr. reglugerðarinnar. Fyrir Hæstarétti deildu aðilar einkum um það hvort liðinn væri 6 mánaða frestur til endursendingar S til Noregs samkvæmt d. lið 20. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Í hélt því fram að frestur samkvæmt ákvæðinu byrjaði ekki að líða fyrr en endanleg ákvörðun hefði verið tekin í málinu. Í niðurstöðu Hæstaréttar kom m.a. fram að ákvæði 3. mgr. 32. gr. laga nr. 96/2002, eins og því var breytt með 11. gr. laga nr. 115/2010, fæli í sér að kæmi fram beiðni um frestun réttaráhrifa, m.a. í máli þar sem synjað hefði verið um efnismeðferð umsóknar hælisleitanda, frestuðust réttaráhrif ákvörðunarinnar þar til afstaða væri tekin til þeirrar beiðni. Niðurstaða í máli S vegna umsóknar hans um frestun réttaráhrifa úrskurðar innanríkisráðuneytisins á grundvelli þágildandi 1. mgr. 33. gr. laga nr. 96/2002 hefði legið fyrir 31. mars 2014 og verið birt S 15. apríl sama ár, en ekki hafði verið tekin afstaða til fyrri óskar S um frestun réttaráhrifa á grundvelli 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Taldi Hæstiréttur að brostið hefði lagaskilyrði fyrir frestun réttaráhrifa úrskurðarins eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms sem felldi úrskurð ráðuneytisins úr gildi. Hefði 6 mánaða frestur samkvæmt d. lið 1. mgr. 20. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar því byrjað að líða við það tímamark er ákvörðun ráðuneytisins um synjun á beiðni S um frestun réttaráhrifa var birt honum. Þar sem S hefði ekki verið fluttur til Noregs á frá því tímamarki og til 15. október 2014 bæru íslensk stjórnvöld ábyrgð á hælisumsókn hans, sbr. 4. mgr. 19. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Var niðurstaða héraðsdóms því staðfest.

Hæstiréttur birt 14. október 2010

28/2010

B og A (Guðjón Ólafur Jónsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)
Málaflokkur: Útlendingamál

Útlendingar. Stjórnsýsla. Fyrirsvar. Lögvarðir hagsmunir. Frávísun máls frá Hæstarétti að hluta. Frávísun máls frá héraðsdómi að hluta. Gjafsókn. B sótti um dvalarleyfi fyrir stúlkuna A hjá útlendingastofnun í maí 2006, en í umsókn sinni kvaðst hún vera móðir barnsins. B er fædd á Filippseyjum, en flutti hingað til lands, gekk í hjúskap 1995 og öðlaðist íslenskan ríkisborgararétt. Útlendingastofnun veitti barninu tímabundið dvalarleyfi á íslandi frá 30. október 2006 til 1. september 2007. Í skýrslugjöf hjá lögreglu 6. mars 2007 viðurkenndi B að hún væri ekki móðir A. Í kjölfar þess var dvalarleyfi barnsins afturkallað með ákvörðun útlendingastofnunar í ágúst 2007, sem í janúar 2009 var staðfest af dómsmálaráðherra. B, persónulega og fyrir hönd A, höfðaði mál gegn íslenska ríkinu og krafðist þess að ógiltur yrði úrskurður ráðuneytisins. Í héraðsdómi var íslenska ríkið sýknað af kröfu hennar. Í dómi Hæstaréttar er vísað til þess að í maí 2009 hafi fjölskyldunefnd Y ákveðið að taka forsjá A í sínar hendur og í júní sama ár hafi barninu verið komið á fósturheimili. Í byrjun ágúst 2010 hafi útlendingastofnun veitt stúlkunni dvalarleyfi til eins árs á grundvelli 3. mgr. 11. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Ekki lægi fyrir annað en að forsjá A væri enn í höndum nefndarinnar, en gögn málsins bæru ekki með sér að barninu hafi verið skipaður lögráðamaður samkvæmt 32. gr. barnaverndarlaga. Fram kemur að samkvæmt áfrýjunarstefnu hafi það ekki verið fjölskyldunefnd Y sem hafi tekið ákvörðun um að áfrýja héraðsdómi í þágu barnsins og við munnlegan flutning málsins fyrir Hæstarétti hafi verið staðfest að svo hafi ekki verið. Taldi Hæstiréttur því að heimild skorti til áfrýjunar fyrir hönd áfrýjandans A og var málinu þegar af þeim sökum vísað af sjálfsdáðum frá Hæstarétti að því er hana varðaði. Hvað varðaði áfrýjandann B segir í dóminum að samkvæmt þeim gögnum sem lögð hafi verið fyrir réttinn hafi verið staðreynt með greiningu lífssýna að tiltekin kona á Filippseyjum væri kynmóðir A. Á engan hátt hafi verið sýnt fram á að B hafi ættleitt A og hafi heldur ekki verið leitast við að skýra á hvaða lagalega grunni B gæti hafa farið með málefni barnsins. Í málinu hafi B því ekki sjálf lögvarinna hagsmuna að gæta af því að afla úrlausnar dómstóla um gildi þeirra stjórnsýsluákvarðana sem hún krafðist endurskoðunar á. Þegar af þeirri ástæðu var málinu vísað frá héraðsdómi af sjálfsdáðum að því er B varðaði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. desember 2009

E-5225/2009

málinu nr. E-5225/2009, Imelda, Z. Sta. Ana, persónulega og vegna og Löru Alexie Sta. Ana (Guðjón Ólafur Jónsson hrl) gegn Útlendingastofnun og íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)

Stefnendur kröfðust ógildingar á úrskurði dómsmálaráðherra og ákvörðun Útlendingastofnunar um afturköllun á dvalarleyfi ungrar filippseyskrar telpu. Ekki var fallist á kröfu stefnenda.

Hæstiréttur birt 16. október 2008

56/2008

Kestutis Baginskas (Hilmar Magnússon hrl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)

Stjórnsýsla. Skaðabætur. Frávísun máls að hluta frá Héraðsdómi. Vanreifun. Gjafsókn. Aðfinnslur. K höfðaði skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu sökum tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna annmarka á meðferðar stjórnsýslumáls hans, en Hæstiréttur hafði í máli nr. 52/2004 ógilt úrskurð dóms- og kirkjumálaráðuneytisins þar sem staðfest var niðurstaða útlendingaeftirlitsins um að afturkalla tímabundið atvinnu- og dvalarleyfi K og vísa honum úr landi. Talið var að slíkir annmarkar hefðu verið á málsmeðferð stjórnvalda að bakað hefði íslenska ríkinu bótaskyldu vegna þess tjóns sem K kynni að hafa orðið fyrir vegna umræddrar brottvísunar, en vafa um það hvort fullnægjandi rannsókn í málinu hefði leitt til annarrar niðurstöðu um brottvísun K yrði að túlka honum í hag. Í niðurstöðu Hæstaréttar kom fram að K hefði ekki sýnt fram á réttmæti kröfuliðar er laut að ferðakostnaði hans í kjölfar þess að honum var vísað úr landi. Þá þótti kröfuliður hans vegna missis atvinnutekna svo vanreifaður að óhjákvæmilegt væri að vísa honum frá héraðsdómi. Í málinu gerði K einnig kröfu um greiðslu bóta vegna þess tjóns sem hann taldi sig hafa beðið vegna takmörkunar á ferða- og atvinnufrelsi hans. Var talið að umræddur liður félli saman við kröfulið K um missi atvinnutekna svo og kröfu hans um bætur vegna ófjárhagslegs tjóns og var sá kröfuliður því ekki tekinn til greina. Þá var kröfu K um greiðslu bóta vegna kostnaðar hans af þjónustu lögmanns við meðferð málsins hjá stjórnvöldum einnig hafnað þar sem K hafði ekki fært sönnur á því að hann hefði greitt umræddan kostnað. Hins vegar var talið að K ætti rétt á miskabótum samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og voru þær hæfilega ákveðnar 300.000 krónur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. nóvember 2007

E-2340/2005

Kestutis Baginskas (Hilmar Magnússon hrl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)
Lykilorð: Skaðabótamál.

Stefndi krafði íslenska ríkið um skaðabætur vegna þess að ákvörðun um að vísa honum brott úr landi hafði verið ógilt vegna annmarka á málsmeðferð. Íslenska ríkið var sýknað vegna þess að ekki þótt sýnt að ákvörðun hefði orðið annars efnis.