Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lagagrein: 20. gr. laga nr. 96/2002 — Lög um útlendinga
Stefndi sýknaður af kröfu stefnenda um ógildingu úrskurðar kærunefndar útlendingamála frá 11. febrúar 2016 í máli nr. 46/2016, um að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar frá 7. ágúst 2015, um brottvísun A, ríkisborgara Nígeríu, frá Íslandi og bann við endurkomu hans til landsins í tvö ár. Stefndi jafnframt sýknaður af kröfu um að ógiltur yrði úrskurður kærunefndar útlendingamála frá 10. maí 2016 í máli nr. 167/2016 og að frestað verði réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála frá 11. febrúar 2016 í máli nr. 46/2016.
Íslenska ríkið var sýknað af kröfu stefnanda um ógildingu úrskurðar innanríkisráðuneytisins þar sem staðfest var ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann stefnanda.
Útlendingar. Stjórnsýsla. Fyrirsvar. Lögvarðir hagsmunir. Frávísun máls frá Hæstarétti að hluta. Frávísun máls frá héraðsdómi að hluta. Gjafsókn. B sótti um dvalarleyfi fyrir stúlkuna A hjá útlendingastofnun í maí 2006, en í umsókn sinni kvaðst hún vera móðir barnsins. B er fædd á Filippseyjum, en flutti hingað til lands, gekk í hjúskap 1995 og öðlaðist íslenskan ríkisborgararétt. Útlendingastofnun veitti barninu tímabundið dvalarleyfi á íslandi frá 30. október 2006 til 1. september 2007. Í skýrslugjöf hjá lögreglu 6. mars 2007 viðurkenndi B að hún væri ekki móðir A. Í kjölfar þess var dvalarleyfi barnsins afturkallað með ákvörðun útlendingastofnunar í ágúst 2007, sem í janúar 2009 var staðfest af dómsmálaráðherra. B, persónulega og fyrir hönd A, höfðaði mál gegn íslenska ríkinu og krafðist þess að ógiltur yrði úrskurður ráðuneytisins. Í héraðsdómi var íslenska ríkið sýknað af kröfu hennar. Í dómi Hæstaréttar er vísað til þess að í maí 2009 hafi fjölskyldunefnd Y ákveðið að taka forsjá A í sínar hendur og í júní sama ár hafi barninu verið komið á fósturheimili. Í byrjun ágúst 2010 hafi útlendingastofnun veitt stúlkunni dvalarleyfi til eins árs á grundvelli 3. mgr. 11. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Ekki lægi fyrir annað en að forsjá A væri enn í höndum nefndarinnar, en gögn málsins bæru ekki með sér að barninu hafi verið skipaður lögráðamaður samkvæmt 32. gr. barnaverndarlaga. Fram kemur að samkvæmt áfrýjunarstefnu hafi það ekki verið fjölskyldunefnd Y sem hafi tekið ákvörðun um að áfrýja héraðsdómi í þágu barnsins og við munnlegan flutning málsins fyrir Hæstarétti hafi verið staðfest að svo hafi ekki verið. Taldi Hæstiréttur því að heimild skorti til áfrýjunar fyrir hönd áfrýjandans A og var málinu þegar af þeim sökum vísað af sjálfsdáðum frá Hæstarétti að því er hana varðaði. Hvað varðaði áfrýjandann B segir í dóminum að samkvæmt þeim gögnum sem lögð hafi verið fyrir réttinn hafi verið staðreynt með greiningu lífssýna að tiltekin kona á Filippseyjum væri kynmóðir A. Á engan hátt hafi verið sýnt fram á að B hafi ættleitt A og hafi heldur ekki verið leitast við að skýra á hvaða lagalega grunni B gæti hafa farið með málefni barnsins. Í málinu hafi B því ekki sjálf lögvarinna hagsmuna að gæta af því að afla úrlausnar dómstóla um gildi þeirra stjórnsýsluákvarðana sem hún krafðist endurskoðunar á. Þegar af þeirri ástæðu var málinu vísað frá héraðsdómi af sjálfsdáðum að því er B varðaði.
Stefnendur kröfðust ógildingar á úrskurði dómsmálaráðherra og ákvörðun Útlendingastofnunar um afturköllun á dvalarleyfi ungrar filippseyskrar telpu. Ekki var fallist á kröfu stefnenda.
Stefnandi krafðist þess að úrskurður dómsmálaráðuneytisins frá 15. apríl 2005 um að honum skyldi vísað úr landi og bönnuð endurkoma til Íslands næstu tíu árin yrði felldur úr gildi. Stefnandi byggði kröfuna á því að ekki hefði verið staðið rétt að ákvörðun Útlendingaeftirlitsins sem staðfest var með framangreindum úrskurði og að ekki hefðu verið forsendur til að vísa stefnanda úr landi. Á það var ekki fallist og íslenska ríkið var sýknað af kröfu um ógildingu úrskurðarins.