Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

9 dómar fundust

Lagagrein: 26. gr. laga nr. 94/2001 — Lög um opinber innkaup

Landsréttur birt 3. desember 2021

635/2020

Hafnarfjarðarkaupstaður (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður) gegn Hornsteinum arkitektum ehf (Guðjón Ármannsson lögmaður)

HA ehf. höfðaði mál gegn H og krafðist þess að viðurkennd yrði með dómi skaðabótaskylda H vegna missis hagnaðar sem félagið taldi sig hafa notið ef ekki hefði komið til ákvörðunar H um að ganga ekki til samninga við HA ehf. um hönnun og ráðgjöf fyrir Hamranesskóla að undangengnu lokuðu útboði í verkið. Deila málsaðila laut að því hvort tilboðum í fyrrgreint verk hefði verið hafnað og hvort H hefði verið heimilt að hætta við verkið vegna verulegs forsendubrests í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Í dómi Landsréttar voru rakin skilyrði þágildandi 1. mgr. 74. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup um það hvenær kaupandi teldist hafa hafnað tilboði. Þá kom fram að óumdeilt væri að H hefði ekki tekið neinu þeirra þriggja tilboða sem bárust í umrætt verk fyrir framlengdan skilafrest tilboða 13. janúar 2009. Gildistími tilboða hafi verið átta vikur frá skilum þeirra og því hafi tilboðin runnið út 10. mars 2009. Með því að gildistími tilboðs HA ehf. var liðinn án þess að óskað hefði verið eftir framlengingu þess yrði í samræmi við fyrrgreint ákvæði laga nr. 84/2007 litið svo á að tilboðinu hefði verið hafnað. Þá gætu samskipti HA ehf. og H eftir að tilboðsfrestur rann út ekki breytt þeirri niðurstöðu. Einnig þótti H hafa sýnt fram á að forsendur fyrir byggingu skólans hefðu brostið og hann því haft málefnalegar ástæður fyrir því að ganga ekki til samninga við HA ehf. um fyrrgreint verk. Dómurinn féllst því á það með H að hann hefði ekki verið bundinn af tilboði HA ehf. lengur en til 10. mars 2009. H var því sýknaður af kröfum HA ehf.

Landsréttur birt 26. júní 2020

585/2019

Hafnarfjarðarkaupstaður (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður) gegn Hornsteinum arkitektum ehf (Víðir Smári Petersen lögmaður)

Héraðsdómur var ómerktur og málinu vísað heim í hérað til munnlegs málflutnings og dómsálagningar á ný þar sem samning dómsins var ekki í samræmi við f-lið 1. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

Hæstiréttur birt 8. maí 2008

450/2007

Íslenska ríkið (Óskar Thorarensen hrl, Sigurður Gísli Gíslason hdl) gegn Hópbílaleigunni ehf (Jóhannes Karl Sveinsson hrl)

Ríkiskaup efndi fyrir hönd V og fleiri til útboðs um áætlunarakstur og skólaakstur á fimm þjónustusvæðum sem skiptust í nánar tilgreindar leiðir. H ehf. bauð í tvær leiðir en gengið var til samninga við Þ ehf. um aðra leiðina en K ehf. um hina. Taldi H ehf. höfnun V á að semja við það hafa verið ólögmæta þar sem það hafi átt lægsta og hagstæðasta boð í báðar leiðirnar. Krafðist H ehf. viðurkenningar á skaðabótaskyldu Í vegna tjóns sem fælist í missi hagnaðar sem félagið kunni að hafa notið hefði ekki komið til ákvarðana V um að hafna tilboðum þess. Í krafðist aðallega frávísunar málsins frá héraðsdómi en til vara sýknu. Ekki var fallist á kröfu um frávísun málsins. Talið var að ekkert hafi komið fram um að H ehf. hafi skort fjárhagslegt eða tæknilegt hæfi og hafi það því verið með hagstæðasta tilboðið þannig að V hafi verið óheimilt að hafna tilboði þess, sbr. þágildandi lög nr. 94/2001 um opinber innkaup. Þá var ekki talið að skilyrði V um að undirverktaki gengi með skuldbindandi hætti gagnvart verkkaupa inn í samning aðila hafi verið í samræmi við útboðsgögn. Var H ehf. talið hafa leitt nægar líkur að því að það hafi orðið fyrir tjóni og var því viðurkenndur réttur þess til skaðabóta úr hendi Í.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. apríl 2007

E-3903/2006

Hópbílaleigan ehf (Jóhannes Karl Sveinsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)

Í máli þessu var viðurkenndur réttur stefnanda til skaðabóta úr hendi stefnda vegna missis hagnaðar sem stefnandi hefði notið ef ekki hefði komið til ákvörðunar Vegagerðar ríkisins að hafna tilboðum stefnanda í sérleyfisakstur og skólaakstur á Suðurlandi og Suðurnesjum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. júlí 2006

E-3678/2005

Þ.G. verktakar ehf (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hdl) gegn Reykjavíkurborg (Benedikt Guðbjartsson hdl) og Orkuveitu Reykjavíkur og Símanum hf. (Andri Árnason hrl)
Lykilorð: Skaðabætur. Tilboð.

Stefnandi krafðist skaðabóta úr hendi stefndu, þar sem tilboð hans í útboði hafði verið metið ógilt með ólögmætum hætti. Fallist var á með stefndu að tilboð stefnanda hefði verið í ósamræmi við útboðslýsingu og því verið ógilt frá upphafi og voru stefndu sýknaðir af kröfum stefnanda.

Hæstiréttur birt 15. júní 2006

1/2006

Atafl hf (Þórunn Guðmundsdóttir hrl) gegn Reykjavíkurborg Orkuveitu Reykjavíkur (Jóhannes Karl Sveinsson hrl) og Símanum hf (Andri Árnason hrl)

A krafðist skaðabóta úr hendi R, O og S þar sem tilboð hans í útboði hefði verið metið ógilt með ólögmætum hætti. Í héraði var fallist á að tilboð A hefði verið í verulegum atriðum í ósamræmi við útboðslýsingu og því verið ógilt frá upphafi. Þá var talið að tilboðið hefði verið metið ógilt með formlega réttum hætti, en A byggði á því að dómnefnd R, O og S hefði ekki haft vald til þess. Fyrir Hæstarétti gerði A kröfu um ómerkingu héraðsdóms þar sem héraðsdómara hefði borið að kveðja til sérfróða meðdómendur til að meta hvort teikningar og tilboð hans hefðu verið í ósamræmi við útboðsskilmála. Þá hefði ekki verið tekin afstaða til málsástæðu hans sem laut að því að fyrirtækið Í hefði haft forskot á aðra þátttakendur í hinu umdeilda útboði. Ekki voru talin rök til að hnekkja því mati héraðsdómara að ekki hefði verið þörf á sérkunnáttu í dóminn, enda byggðist niðurstaða héraðsdóms ekki á úrlausn um efni sem sérkunnáttu var þörf um. Þar sem komist var að þeirri niðurstöðu í forsendum héraðsdóms að tilboð A hefði verið ógilt frá upphafi og ákvörðun um að hafna því verið lögmæt var ekki talin þörf á að héraðsdómari fjallaði sérstaklega um framangreinda málsástæðu, enda þegar af þeirri ástæðu ekki unnt að fallast á bótakröfu A. Að þessu athuguðu var héraðsdómur staðfestur með vísan til forsendna hans.

Hæstiréttur birt 17. nóvember 2005

182/2005

Íslenskir aðalverktakar hf og NCC International AS (Jóhannes Karl Sveinsson hrl) gegn Vegagerðinni (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Við opnun tilboða í gerð Héðinsfjarðarganga kom í ljós að Í hf. og N AS áttu lægsta tilboð í verkið, en boð þeirra var 3,2% yfir kostnaðaráætlun V. Áður en V hafði lýst afstöðu til tilboðanna var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar 1. júlí 2003 að fresta verkinu þannig að framkvæmdir gætu „hafist haustið 2006 og nýtt útboðsferli miðað við það“. Að því loknu tilkynnti V bjóðendum í verkið að öllum boðum í það væri hafnað þar sem þensluástand væri í þjóðfélaginu og að stofnunin fengi ekki nauðsynlegt fé til framkvæmdanna. Í hf. og N AS kærðu þessa ákvörðun til kærunefndar útboðsmála. Komst hún að þeirri niðurstöðu að ákvörðunin hefði verið ólögmæt og áleit að V bæri skaðabótaskyldu gagnvart félögunum, sbr. 2. mgr. 84. gr. laga nr. 94/2001, en taldi ekki tilefni til að taka afstöðu til kröfu þeirra um efndabætur. Þá var V gert að greiða félögunum kostnað við að hafa kæruna uppi. Félögin höfðuðu þá mál til viðurkenningar á rétti þeirra til skaðabóta vegna missis hagnaðar, sem rakinn yrði til ákvörðunarinnar. Í gagnsök krafðist V á hinn bóginn ógildingar á tilteknum liðum í úrskurði kærunefndarinnar. Vísað var til þess að ekki væri sýnt fram á að forsendur þær, sem útboðið hvíldi á, hefðu brostið eftir að það hófst og áður en ákveðið var að hafna öllum tilboðum, sem bárust í verkið, eða að þær ástæður, sem höfnun allra tilboða í verkið byggðist á, hefðu mátt vera bjóðendum ljósar þegar þeir buðu í verkið. Var því fallist á að óheimilt hefði verið að hafna öllum tilboðum í verkið á grundvelli þeirra atriða, sem vísað hafði verið til í bréfi V til bjóðenda. Þá var ekki talið að V hefði sýnt fram á að ekki hefði verið samið við Í hf. og N AS ef orðið hefði af verkinu. Að þessu leyti væri skilyrðum fyrir skaðabótaskyldu V við félögin samkvæmt 2. mgr. 84. gr. laga nr. 94/2001 fullnægt. Enn fremur var talið að þótt óveruleg gögn hefðu verið lögð fyrir um ætlað tjón félaganna væru þau næg til að taka mætti til greina kröfu þeirra um viðurkenningu á skaðabótaskyldu V gagnvart þeim vegna missis hagnaðar. Var því fallist á kröfu Í hf. og N AS í málinu. Varðandi kröfur V í gagnsök var talið hún hefði einungis lögvarða hagsmuni af því að leita ógildingar á ákvörðun kærunefndar um málskostnað og var öðrum atriðum, er kröfugerðin laut að, vísað frá héraðsdómi. Þá var ekki á það fallist að þeir annmarkar hefðu verið á meðferð málsins fyrir kærunefnd útboðsmála að varðað gætu ógildingu á úrskurði hennar að þessu leyti.

Hæstiréttur birt 26. febrúar 2004

347/2003

Fimmtudaginn 26. febrúar 2004 Lykilorð Útboð Verksamningur Skaðabætur Aðfinnslur Fimmtudaginn 26 Fimmtudaginn 26. febrúar 2004. Nr. 347/2003. Nýherji hf. Steinar Þór Guðgeirsson hdl.) (Tómas Jónsson hrl) gegn íslenska ríkinu Útboð. Verksamningur. Skaðabætur. Aðfinnslur. Ekki var fallist á að Í hefði bakað sér skaðabótaskyldu gagnvart N með því að velja S sem samningsaðila í kjölfar útboðs á „nýjum fjárhagskerfum fyrir ríkissjóð og stofnanir hans“. Var talið að þó að nokkrir hnökrar hefðu verið á því mati sem val á samningsaðila byggðist á hefði ekki verið sýnt fram á að Í hefði farið út fyrir það svigrúm sem verði að ætla honum til heildarmats á gæðum tilboða og skipti þá verulegu máli að samkvæmt mati Í var verð þeirrar lausnar sem N bauð 31,5% hærra en boð það sem tekið var. (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Ekki var fallist á að Í hefði bakað sér skaðabótaskyldu gagnvart N með því að velja S sem samningsaðila í kjölfar útboðs á „nýjum fjárhagskerfum fyrir ríkissjóð og stofnanir hans“. Var talið að þó að nokkrir hnökrar hefðu verið á því mati sem val á samningsaðila byggðist á hefði ekki verið sýnt fram á að Í hefði farið út fyrir það svigrúm sem verði að ætla honum til heildarmats á gæðum tilboða og skipti þá verulegu máli að samkvæmt mati Í var verð þeirrar lausnar sem N bauð 31,5% hærra en boð það sem tekið var.