Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

24 dómar fundust

Lagagrein: 4. mgr. 48. gr. laga nr. 93/1994 — Lyfjalög

Hæstiréttur birt 11. maí 2017

309/2016

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Jóni Ásgeiri Ríkharðssyni (Stefán Geir Þórisson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

J var gefið að sök brot gegn lyfja-, lyfsölu-, fjarskipta- og tollalögum með því að hafa, í gegnum einkahlutafélag sem hann starfaði hjá og sá um innflutning fyrir, flutt inn til landsins 1050 stykki af nikótínfilterum í rafsígarettur án leyfis og þrjár spjaldtölvur án CE merkinga. Í dómi Hæstaréttar var því hafnað að J hefði verið ókunnugt um að nikótínfilterarnir hefðu verið í sendingunni. Þá var jafnframt hafnað þeirri viðbáru J að hann hefði ekki þurft að afla leyfis til innflutnings nikótínfilteranna þar sem nikótín gæti ekki talist vera lyf í skilningi lyfjalaga, eða að sú tilhögun, að fela Lyfjastofnun að skera úr um hvað teldust lyf samkvæmt lögunum, væri andstæð þeim kröfum sem gera yrði til skýrleika refsiheimilda. Þá var ekki talið hald í þeirri viðbáru J að hann hefði talið að spjaldtölvurnar hefðu verið CE merktar, enda hefði hann innflutning að atvinnu og mætti því vera ljóst að hann þyrfti að kanna hvort þær bæru slíka merkingu. Það hefði hann hins vegar ekki gert. Var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu og refsingu ákærða því staðfest.

Hæstiréttur birt 5. maí 2015

291/2015

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Stefán Geir Þórisson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X ehf. var gert skylt að afhenda L allar upplýsingar, sem hann hafði undir höndum, um þrjú nánar tilgreind netföng sem X ehf. hýsti á tilteknu tímabili.

Hæstiréttur birt 24. janúar 2013

574/2012

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Loga Má Hermannssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

L var sakfelldur fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnabrots með því að hafa, ásamt fjórum öðrum, gert tilraun til að flytja til Íslands frá Danmörku 3.871 g af amfetamíni ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að meðferð málsins hefði dregist óhæfilega fyrir dómi án þess að L yrði um það kennt. Vegna alvarleika brotsins kom hins vegar ekki til álita að skilorðsbinda refsinguna. Með brotinu rauf L skilorð dóms frá árinu 2008. Með vísan til 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga þótti refsing L hæfilega ákveðin fangelsi í 3 ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. maí 2012

S-11/2012

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari) gegn Dröfn og Erlingsdóttur (Grímur Sigurðarson hdl), Edvin og Karli Benediktssyni (Jóhannes Árnason hdl), Geir Hlöðver Ericssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl), Kristjáni B. Kröyer Þorsteinssyni (Jóhann Karl Hermannsson hdl), Sævari Sverrissyni (Ómar Örn Bjarnþórsson hdl) og Sævari Þór Óskarssyni (Sigmundur Hannesson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir fíkniefnabrot ofl.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. febrúar 2012

S-1889/2011

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Snævari Má Jónssyni
Lykilorð: Ávana- og fíkniefni.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. maí 2011

S-593/2011

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir fulltrúi) gegn Brynjari Loga Þórissyni (Bjarni Hauksson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði dæmdur í 9 mánaða fangelsi fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, en um hegningarauka var að ræða.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. nóvember 2010

S-544/2010

Ákæruvaldið gegn Auðuni Örvari Pálssyni
Lykilorð: Ávana- og fíkniefni.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Maður sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. júní 2010

S-377/2010

Ákæruvaldið (Sigurður Freyr Sigurðsson fulltrúi) gegn Tryggva Val Tryggvasyni (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás, þjófnað, fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot. Refsing hans, sem var ákveðin sem hegningarauki við fyrri dóma, var ákveðin 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Hæstiréttur birt 3. desember 2009

509/2009

Ákæruvaldið (Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari) gegn Peter Rabe, Rúnari Þór Róbertssyni og Árna Hrafni Ásbjörnssyni (Ólafur Örn Svansson hrl, Þorsteinn Einarsson hrl, Sveinn Andri Sveinsson hrl, Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hdl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

P, R og Á var ásamt þremur öðrum mönnum gefið að sök stórfellt fíkniefnabrot með því að hafa staðið saman að innflutningi á samtals 55.116,65 g af amfetamíni, 53.889,65 g af kannabis og 9.432 MDMA töflum, en efni þessi hafi verið ætluð til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Fíkniefnin hafi verið flutt áleiðis til Íslands frá Belgíu með skútu, en slöngubát hafi verið siglt til móts við hana og bátarnir mæst á hafi úti innan við 30 sjómílur suðaustur af landinu, þar sem efnin hafi verið flutt milli báta, og hafi slöngubátnum síðan verið siglt með efnin til Djúpavogs. Þaðan hafi efnin verið flutt yfir í bifreið og henni ekið áleiðis til Selfoss, en lögregla stöðvað hana við Höfn og lagt hald á efnin. Ákærðu voru sakfelldir í héraði og voru brot þeirra talin varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. P, sem er hollenskur ríkisborgari, krafðist þess fyrir Hæstarétti að málinu yrði vísað frá héraðsdómi þar sem íslenska ríkið brysti lögsögu yfir honum eins og atvikum málsins væri háttað. Af gögnum málsins var ljóst að P var leigutaki og skipstjóri skútunnar, sem skráð var í Belgíu. Þá var óumdeilt að skútunni hefði ekki verið siglt inn í 12 mílna landhelgi Íslands. Talið var að virða yrði háttsemi þeirra sex manna, sem ákærðir voru í málinu fyrir verkskipta aðild að fíkniefnainnflutningi, sem eina heild. Í skilningi 173. gr. a. almennra hegningarlaga hefði brotið verið fullframið þegar efnin voru flutt inn í landhelgi Íslands. Ætlað brot P yrði ekki skilið frá þætti annarra ákærðu í málinu. Af þeim sökum væri það liður í háttsemi sem ætlað var að hafa afleiðingar hér á landi og næði því íslensk refsilögsaga til þess samkvæmt 7. gr. almennra hegningarlaga. Þá var talið að skilyrðum til töku skútunnar á úthafinu hefði verið fullnægt með hliðsjón af 111. gr. hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna. Þannig mætti hefja eftirför þótt skip hefði ekki komið inn í landhelgi strandríkis ef einhver af bátum þess væri staddur innan hennar. Í þessum efnum yrði að jafna til báts hins erlenda skips báti sem sendur væri til móts við það frá strandríki í því skyni að fremja brot innan landhelgi þess í samvinnu við þá sem um borð í skipinu væru. Var frávísunarkröfu P því hafnað. Með vísan til forsendna héraðsdóms var hann staðfestur og P og R gert að sæta hvor um sig fangelsi í 10 en Á í 9 ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. júlí 2009

S-766/2009

Ákæruvaldið (Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari) gegn Peter Rabe (Ólafur Örn Svansson hrl), Rúnari og Þór Róbertssyni (Þorsteinn Einarsson hrl), Árna Hrafni Ásbjörnssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hdl), Jónasi Árna Lúðvíkssyni (Brynjar Níelsson hrl), Halldóri Hlíðar Bergmundssyni (Jón Egilsson hdl) og Pétri Kúld Péturssyni (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Lykilorð: Ávana- og fíkniefni.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

6 menn sakfelldir fyrir innflutning á fíkniefnum til landsins.

Hæstiréttur birt 2. apríl 2009

377/2008

Ákæruvaldið (Kolbrún Sævarsdóttir ríkissaksóknari) gegn Annþóri Kristjáni Karlssyni og X (Brynjar Níelsson hrl, Indriði Þorkelsson hrl, Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Lykilorð: Ávana- og fíkniefni.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

A og X voru ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið saman, ásamt tveimur öðrum, að innflutningi á samtals 4.639,50 g af amfetamíni og 594,70 g af kókaíni frá Þýskalandi til Íslands, ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni, en fíkniefnin, sem voru flutt til landsins með hraðsendingarfyrirtæki, fundust við leit tollgæslu og lögreglu. Var A gefið að sök að hafa lagt á ráðin um innflutninginn, látið senda fíkniefnin frá Þýskalandi til Íslands og hafa ætlað að móttaka eða láta móttaka þau. X var gefið að sök að hafa lagt á ráðin um innflutninginn og notað sér aðstöðu sína sem starfsmaður hraðsendingarfyrirtækisins á Keflavíkurflugvelli til að miðla upplýsingum um hvernig haga skyldi sendingu og móttöku fíkniefnanna þannig að þau kæmust til móttakanda efnanna hér á landi án afskipta yfirvalda. Ákærðu neituðu báðir sök. Framburðir A og X þóttu ekki verða lagðir til grundvallar niðurstöðunni, enda ekkert í málinu sem studdi þá. Talið var sannað með framburðum tveggja meðákærðu, sem voru efnislega á sama veg um flesta þætti málsins og nutu stuðnings af gögnum málsins, að A og X hefðu gerst sekir um þá háttsemi sem þeir voru ákærðir fyrir. Við ákvörðun refsingar var m.a. litið til þess að brotið var framið í samvinnu, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, efnismagns, efnistegundar og styrks fíkniefnanna. Þá var litið til þess að A hafði áður gerst sekur um fíkniefnabrot og var refsing hans ákveðin 4 ára fangelsi en X 2½ árs fangelsi.

Héraðsdómur Suðurlands birt 26. febrúar 2008

S-25/2008

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn Kristínu Ester Vignisdóttur (Ólafur Björnsson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákært fyrir vörslur fíkniefna. Sakfellt. Skilorðsrof. Dæmd í þriggja mánaða fangelsi skilorðsbundið til þriggja ára. Upptaka á fíkniefnum og gert að greiða sakarkostnað.

Héraðsdómur Suðurlands birt 27. febrúar 2007

S-421/2006

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn Guðmundi Frey Magnússyni (Sigurður Sigurjónsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður dæmdur í sextán mánaða fangelsi, til að sæta upptöku á fíkniefnum, sviptur ökurétti ævilangt og til að greiða allan sakarkostnað fyrir skemmdarverk, vörslu, sölu og dreifingu á fíkniefnum, akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna, hótanir og vörslur á sterum. Skaðabótakröfu var vísað frá dómi.

Héraðsdómur Suðurlands birt 13. febrúar 2007

S-3/2007

Ákæruvaldið (Kristín Þórðardóttir ftr) gegn Þórði Eric Þórðarsyni (enginn)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Karlmaður dæmdur til greiðslu 50.000 króna sektar og til að sæta upptöku á 78 töflum af anaboliskum sterum.