Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-25/2008:

Ákæruvaldið

(Gunnar Örn Jónsson ftr)

gegn

Kristínu Ester Vignisdóttur

svofelldur

d ó m u r :

(Ólafur Björnsson hrl)

Fangelsi. Skilorð. Skilorðsrof. Ávana- og fíkniefni.

Ákært fyrir vörslur fíkniefna. Sakfellt. Skilorðsrof. Dæmd í þriggja mánaða fangelsi skilorðsbundið til þriggja ára. Upptaka á fíkniefnum og gert að greiða sakarkostnað.

Mál þetta, sem þingfest var þann 21. febrúar sl. og dómtekið sama dag, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 4. febrúar 2008, á hendur Kristínu Ester Vignisdóttur, kt. 000000-0000, Bláhömrum 15, Reykjavík, „fyrir fíkniefnabrot og brot á lögum um fullnustu refsinga með því að hafa, síðdegis sunnudaginn 23. desember 2007 haft í vörslu sinni og reynt að smygla inn í fangelsið að Litla-Hrauni, Eyrarbakka, 43,66 g af hassi, 1,70 g af amfetamíni og 40 óþekktar lyfjatöflur, sem ákærða kom fyrir í pakkningu í leggöngum sínum, en fundust við líkamsleit á ákærðu eftir að fíkniefnahundur hafði „merkt“ á ákærðu í fangelsinu.

Telst brot ákærðu varða við 81. gr. laga um fullnustu refsingar nr. 49/2005 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, 75/1982, 13/1985, 68/2001 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum (efnaskrá nr. 13016), en lagt var hald á greind fíkniefni samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Einnig er þess krafist að framangreindar töflur, sem haldlagðar voru ofangreint sinn, verði gerðar upptækar skv. 4. mgr. 48. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 og 2. mgr. 68. gr. lyfsölulaga nr. 30/1963 og 1. mgr. 181. gr. tollalaga nr. 88/2005.“

Ákærða kom fyrir dóminn við þingfestingu málsins og játaði brot sitt greiðlega. Játning ákærðu er í samræmi við önnur gögn málsins og verður hún sakfelld fyrir brot sín en þau eru í ákæru rétt færð til refsiákvæða. Ákærða hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er verjanda ákærðu og sækjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Samkvæmt sakavottorði sem liggur frammi í málinu var ákærða dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur í þrjátíu daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, þann 25. október 2007 fyrir brot gegn 244. gr., sbr. 1. mgr. 22. gr. og 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og þann 16. mars 2007 var ákærða dæmd til greiðslu 70.000 króna sektar fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.

Ákærða, sem er fædd í desember 1987, var orðin nítján ára þegar hún var dæmd síðast fyrir fíkniefnabrot. Hefur sá dómur ítrekunaráhrif við ákvörðun refsingar nú. Þá hefur ákærða rofið skilorð dóms Héraðsdóms Reykjavíkur og ber því að ákvarða henni refsingu samkvæmt 77. gr., samanber 60. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærða kveðst vera í fíkniefnameðferð að Hlaðgerðarkoti og ætlar sér í framhaldsmeðferð að þeirri dvöl lokinni. Hjá því verður þó ekki litið að um talsvert magn fíkniefna er að ræða og ákærða hefur ekki bara gerst sek um vörslur fíkniefnanna heldur einnig að hafa ætlað að smygla þeim inn í fangelsi. Þó verður að líta til ungs aldurs ákærðu, þess að hún kveðst vilja og ætla að snúa lífi sínu til betri vegar og skýlausrar játningar hennar fyrir lögreglu og dómi við ákvörðun refsingar.

Refsing ákærðu þykir nú hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá mánuði. Hefur þá dómur frá 25. október 2007 verið dæmdur upp. Með vísan til þess sem að ofan segir þykir rétt að skilorðsbinda refsinguna og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá birtingu dóms að telja, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Upptæk skulu gerð 43,66 grömm af hassi, 1,70 grömm af amfetamíni og 40 óþekktar lyfjatöflur, allt samkvæmt efnaskrá lögreglu númer 13016.

Með vísan til 165. gr. laga um meðferð opinberra mála skal ákærðu gert að greiða allan sakarkostnað sem er vegna þóknunar skipaðs verjanda ákærðu, Ólafs Björnssonar hæstaréttarlögmanns, 62.250 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum.

Gunnar Örn Jónsson fulltrúi flutti mál þetta af hálfu ákæruvaldsins.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærða, Kristín Ester Vignisdóttir, sæti fangelsi í þrjá mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum þremur árum, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærða sæti upptöku á 43,66 grömmum af hassi, 1,70 grömmum af amfetamíni og 40 óþekktum lyfjatöflum.

Ákærða greiði allan sakarkostnað, sem er þóknun skipaðs verjanda hennar, Ólafs Björnssonar hæstaréttarlögmanns, 62.250 krónur að teknu tilliti til virðisaukaskatts.

Ástríður Grímsdóttir

Heimildaskrá