Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

12 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 48. gr. laga nr. 93/1994 — Lyfjalög

Hæstiréttur birt 11. maí 2017

451/2016

Ákæruvaldið gegn X (Oddgeir Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Xvar sakfelldur fyrir lyfja- og vopnalagabrot með því hafa átt í sölu- og dreifingarskyni nánar tiltekið magn af Ritalin og Ritalin Uno töflum og fyrir að geyma mikið magn skotfæra í ólæstum hirslum á heimili sínu. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að J hefði ítrekað brotið gegn ákvæðum lyfjalaga nr. 93/1994, sbr. 1. mgr. 49. gr. laganna. Var refsing J ákveðin fangelsi í þrjá mánuði. Þá voru gerð upptæk 100 stykki af Ritalini sem lögregla hafði lagt hald á við rannsókn málsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. september 2016

S-392/2016

Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson fulltrúi) gegn Antoni Samúel Sigurðssyni (Þorgils Þorgilsson hdl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir vörslur á fíkniefnum og að hafa átt í sölu- og dreifingarskyni anabólíska stera, auk þess að hafa geymt miki magn skotfæra í ólæstum hirlum.

Hæstiréttur birt 6. febrúar 2014

457/2013

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn X (Oddgeir Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var ákærður fyrir lyfjalagabrot með því að hafa átt 462 stykki af Ritalin Uno, 115 stykki af Ritaline og 105 stykki af Mogadon að hluta til í sölu- og dreifingarskyni, án þess að hafa markaðsleyfi og lyfsöluleyfi Lyfjastofnunar. Einnig að hafa selt og afhent ótilgreindum fjölda einstaklingum sömu lyf án þess að hafa slík leyfi. Þá var X ákærður fyrir vopnlagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum sverð, hljóðdeyfa og riffil. Loks var X ákærður fyrir peningaþvætti með því að hafa aflað sér ávinnings með sölu og dreifingu ótiltekins magns af lyfseðilsskyldum lyfjum. Brot J voru talin sönnuð en þó var lagt til grundvallar að ávinningur hans af sölu og dreifingu lyfseðilsskyldra lyfja hefði aðeins verið hluti af því sem honum var gefið að sök í ákæru. Þá varðaði það J ekki refsingu samkvæmt þeim refsiákvæðum sem vísað var til í ákæru að afla sér hljóðdeyfa án leyfis lögreglu. Var X gert að sæta fangelsi í sex mánuði en refsingin var skilorðsbundin til fimm ára.

Hæstiréttur birt 27. september 2012

122/2012

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Brot gegn lyfjalögum og lögum um tóbaksvarnir. Peningaþvætti. Upptaka. Vitni J var sakfelldur fyrir brot gegn lyfjalögum lögum um tóbaksvarnir með því að hafa selt tiltekin lyf í verslun sinni D án þe (Björgvin Þorsteinsson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

DF ehf. krafðist þess að viðurkennt yrði með dómi að D ehf. væri óheimilt að nota heitið „DOMUS“ í atvinnustarfsemi sinni og yrði gert að afmá skráningu á heitinu „Domusnova“ hjá hlutafélagaskrá að viðlögðum dagsektum. Byggði DF ehf. á því að notkun D ehf. á orðinu „DOMUS“ fæli í sér brot á vörumerkjarétti hans. Báðir aðilar höfðu milligöngu um kaup og sölu á fasteignum. Í héraðsdómi var talið að vernd sú sem DF ehf. nyti samkvæmt lögum nr. 45/1997 um vörumerki væri bundin við orðmerki hans í heild en ekki tvo aðskilda hluti þess. Þá var ekki talið að uppfylltar væru kröfur 1. mgr. 4. gr. laganna sem lytu að sambærileika og ruglingshættu. Hæstiréttur féllst á með héraðsdómi að DF ehf. hefði ekki leitt líkur að því að hætta væri á ruglingi milli firmaheitis D ehf. og skráðs orðmerkis DF ehf. Var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sýknu D ehf.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. maí 2012

S-11/2012

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari) gegn Dröfn og Erlingsdóttur (Grímur Sigurðarson hdl), Edvin og Karli Benediktssyni (Jóhannes Árnason hdl), Geir Hlöðver Ericssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl), Kristjáni B. Kröyer Þorsteinssyni (Jóhann Karl Hermannsson hdl), Sævari Sverrissyni (Ómar Örn Bjarnþórsson hdl) og Sævari Þór Óskarssyni (Sigmundur Hannesson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir fíkniefnabrot ofl.