Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

7 dómar fundust

Lagagrein: 103. gr. laga nr. 84/2007 — Lög um opinber innkaup

Landsréttur birt 16. október 2020

360/2019

Annata ehf (Guðrún Bergsteinsdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður) og Rarik ohf. (Bjarni Aðalgeirsson lögmaður) og Rarik ohf. (Bjarni Aðalgeirsson lögmaður) gegn Annata ehf. (Guðrún Bergsteinsdóttir lögmaður)

Ríkiskaup buðu A ehf. og AD ehf. að taka þátt í lokuðu samningskaupaferli um gerð orkureikningakerfis fyrir R ohf. Eftir að bjóðendur skiluðu endanlegum verðtilboðum var A ehf. tilkynnt að tilboð AD ehf. hefði verið valið sem fjárhagslega hagstæðasta tilboðið samkvæmt matsforsendum. A ehf. kærði útboðið til kærunefndar útboðsmála. Nefndin hafnaði því að fella úr gildi ákvörðun Ríkiskaupa um val á tilboði AD ehf. þar sem endanlegur samningur hefði komist á við AD ehf. en komst að þeirri niðurstöðu að R ohf. og Ríkiskaup væru skaðabótaskyldir gagnvart A ehf. A ehf. höfðaði mál á hendur Í og R ohf. og krafðist viðurkenningar á rétti til skaðabóta úr hendi þeirra óskipt, aðallega vegna missis hagnaðar en til vara vegna kostnaðar sem A ehf. lagði út fyrir við þátttöku í samningskaupaferlinu. Í dómi Landsréttar kom fram að A ehf. hefði ekki tekist að sýna fram á að tilboð hans hafi í raun verið hagkvæmara en tilboð AD ehf. og rétt hefði verið að taka því. Voru Í og R ohf. því sýknaðir af aðalkröfu A ehf. Landsréttur tók næst til úrlausnar varakröfu A ehf. Rétturinn taldi að R ohf. og Ríkiskaup hefðu brotið gegn skyldu sinni um að veita A ehf. fullnægjandi rökstuðning innan lögmæltra tímamarka. Var A talinn hafa átt raunhæfa möguleika á því að vera valinn til samningsgerðar og R ohf. þótti ekki hafa sýnt nægilega fram á að möguleikar A ehf. hefðu á engan hátt skerst við það að val R ohf. og Ríkiskaupa var ekki rökstutt með viðhlítandi hætti innan lögmæltra tímafresta. Var varakrafa A ehf. tekin til greina.

Landsréttur birt 6. mars 2020

26/2019

EKO eignir ehf (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður) gegn Sveitarfélaginu Árborg (Torfi Ragnar Sigurðsson lögmaður)
Lykilorð: Skaðabætur. Útboð. Fyrning.

S stóð fyrir útboði á sorphirðu í sveitarfélaginu fyrir árin 2012 til 2016 og skiluðu tveir bjóðendur tilboði í verkið. S ákvað að hafna báðum boðunum sökum annmarka á útboðinu sem það taldi til þess fallna að raska jafnræði bjóðenda. G hf. krafði S um skaðabætur þar sem það taldi að S hefði verið skylt að gera verksamning við það í kjölfar útboðsins. Á miðju ári 2017 framseldi G hf. kröfur sínar til E ehf. og tók E ehf. við aðild G hf. að málinu. Dómkrafa E ehf. tók til ætlaðs missis hagnaðar G hf. vegna áranna 2013 til 2016 en við úrlausn málsins í héraði lágu fyrir matsgerð og yfirmatsgerð. Héraðsdómur sýknaði S á þeim grunni að krafa G hf. hefði þegar verið fyrnd við málshöfðun en fjallaði í kjölfarið jafnframt um aðrar málsálstæður S fyrir sýknu. Í dómi Landsréttar var hafnað kröfu S um ómerkingu héraðsdóms og skírskotað til þess að enda þótt jafnframt hefði verið tekin afstaða til annarra málsástæðna en fyrningar gæti umfjöllun um þær og afstaða til þeirra ekki leitt til ómerkingar dómsins, enda hefði héraðsdómur áður fjallað um málsástæður er lytu að fyrningu og komist að þeirri niðurstöðu að allar kröfur E ehf. væru fyrndar. Þá vísaði Landsréttur meðal annars til þess að í málinu lægi fyrir að S hefði 16. desember 2011 sent G hf. tilkynningu án rökstuðnings um að hafna öllum tilboðum í umrætt verk og 19. sama mánaðar sent G hf. rökstuðning fyrir þeirri ákvörðun. Fyrningarfrestur skaðabótakrafna byrjaði samkvæmt 1. mgr. 9. gr. laga nr. 150/2007 um fyrningu að líða á þeim degi þegar tjónþoli fengi nauðsynlegar upplýsingar um tjónið og þann sem ábyrgð bæri á því eða bæri að afla sér slíkra upplýsinga. Ákvæðið yrði ekki skilið þannig að upphaf fyrningarfrests miðaðist við það tímamark þegar endanlega væri unnt að meta umfang tjónsins en fyrningarfrestum væri meðal annars ætlað að gefa tjónþola hæfilegt svigrúm til þess að staðreyna umfang tjóns. Þegar G hf. hefði borist tilkynning um að S hefði hafnað tilboði félagsins og rökstuðningur fyrir þeirri ákvörðun hefði félagið þegar haft undir höndum nægar upplýsingar um þær tekjur sem ætla mátti að það færi á mis við á samningstímanum. Jafnframt yrði að ætla að félagið hefði þá einnig haft undir höndum nægilega nákvæmar upplýsingar og útreikninga á væntanlegum kostnaði við verkið og þar með hafi stjórnendur þess getað áttað sig á að félagið hefði orðið fyrir tjóni vegna tapaðrar framlegðar á samningstímanum. Ekki þætti ástæða til að miða við að fyrningarfrestur hefði ekki hafist fyrr en eftir lok fyrirhugaðs samningstíma og var því fallist á með héraðsdómi að allar kröfur G hf. á hendur S hefðu verið fallnar niður fyrir fyrningu þegar málið var höfðað 28. febrúar 2017. Þegar af þeirri ástæðu var niðurstaða héraðsdóms um sýknu staðfest.

Héraðsdómur Suðurlands birt 15. mars 2017

E-61/2017

Fyrir er tekið málið nr. E-61/2017 EKO eignir ehf (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður) gegn Sveitarfélaginu Árborg (Torfi Ragnar Sigurðsson lögmaður)

Stefnda talið hafa brotið gegn lögum um opinber innkaup við útboð á sorphirðu í sveitarfélaginu síðari hluta ársins 2011. Var krafa stefnanda talin fyrnd. Auk þess var stefnandi ekki talinn hafa fært sönnur fyrir ætluðu tjóni sínu og var stefnda sýknað af af skaðabótakröfu stefnanda.

Hæstiréttur birt 15. desember 2016

212/2016

Fíton ehf (Daníel Isebarn Ágústsson hrl) gegn Íslandsstofu (Lilja Jónasdóttir hrl) og íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir hrl)

Árið 2011 efndi Í til rammasamningsútboðs er nefndist Ísland allt árið og hafði verkefnið þann tilgang að jafna árstíðarsveiflu í komu ferðamanna til landsins. Í kjölfar sérstakrar kynningar þriggja auglýsingastofa, sem tilboð bárust frá, á hugmyndum sínum gerði Í rammasamninga við F ehf. og ÍA ehf. Öll kaup Í á þjónustu á grundvelli samninganna voru gerð við ÍA ehf. en engum viðskiptum var beint til F ehf. Í málinu krafðist F ehf. viðurkenningar á skaðabótaskyldu Í og ÍR vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna þessa. Í dómi Hæstaréttar kom fram að samkvæmt rammasamningi Í við ÍA ehf. hefði tímagjald stofunnar verið umtalsvert lægra en tímagjald F ehf. Þá hafði sú stofa fengið hærri einkunn valnefndar en F ehf. fyrir kynningu sína og í samræmi við það hefði henni verið falið að móta grunnhugmyndafræði og hönnun verkefnisins, en í útboðsskilmálum hafði verið gert ráð fyrir að gengið yrði til samninga við einn af bjóðendum um það verk. Með skírskotun til þessa hvors tveggja var talið að Í hefði sýnt nægjanlega fram á, með hliðsjón af meginreglum stjórnsýsluréttar og ákvæðum þágildandi laga nr. 84/2007 um opinber innkaup, að þær ákvarðanir hans að fela þessari sömu auglýsingastofu önnur verk, sem rammasamningarnir hefðu tekið til, hefðu verið málefnalegar og ekki falið í sér ólögmæta mismunun í garð F ehf. Voru Í og ÍR því sýknuð af kröfu F ehf.