Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn
X I
Ákærði sakfelldur fyrir hegningarlagabrot gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni og brot gegn valdstjórninni.
H var sakfelldur fyrir kynferðisbrot með því að hafa tælt A, sem þá var 15 ára, til að hafa við sig kynferðismök með því að gefa honum vilyrði fyrir bifhjóli að launum fyrir þau. Ljóst þótti að H hefði notfært sér yfirburði aldurs, reynslu og þroska í því skyni að tæla A til kynferðismakanna. Þá var H einnig sakfelldur fyrir að hafa í vörslu sinni hreyfimynd sem sýndi barn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Var háttsemi H talin varða við 3. mgr. 202. gr. og 1. mgr. 210. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Við ákvörðun refsingar var litið til alvarleika brots hans gagnvart A, en að auki að hann hefði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi, hann hefði verið ungur að aldri er brotið var framið og rannsókn málsins hefði dregist nokkuð. Var refsing H ákveðin fangelsi í sex mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var H gert að greiða A 600.000 krónur í miskabætur og sæta upptöku á fartölvu.
V var ákærður fyrir að hafa áreitt kynferðislega tvær fjórtán ára stúlkur með því að hafa án vitneskju þeirra tekið ljósmyndir af þeim nöktum á ljósabekk á sólbaðsstofu, en í tilteknum fjölda tilvika hafi kynfæri þeirra sést þar greinilega. Voru brotin í ákæru talin voru varða aðallega við 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en til vara 209. gr. sömu laga og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Hvorki var af orðalagi 2. mgr. 202. gr., sbr. 199. gr. almennra hegningarlaga né lögskýringargögnum um ákvæðin ráðið skýrlega að kynferðisleg áreitni gæti verið fólgin í háttsemi, sem sá, sem hún beindist að yrði ekki var við. Vafa um inntak 2. mgr. 202. gr. að þessu leyti yrði að meta ákærða í hag og voru brot hans því heimfærð undir 209. gr. almennra hegningarlaga og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga. V var einnig ákærður fyrir að hafa haft fyrrgreindar ljósmyndir ásamt afritum þeirra í sínum vörslum. Var V vegna þeirrar háttsemi sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 210. gr. a. almennra hegningarlaga. Refsing V var, að virtum 78. gr., 60. gr. og 77. gr., ákveðin fangelsi í fimm mánuði, en hann hafði áður gerst sekur um brot gegn 209. gr. almennra hegningarlaga og rauf skilorð eldri dóms með vörslu fyrrgreindra ljósmynda.
Karlmaður sakfelldur fyrir blygðunarsemisbrot og brot gegn barnaverndarlögum.
Ákærði dæmdur í fangelsi fyrir kynferðisbrot.
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Hjaltested aðstoðarsaksóknari)
gegn
Grétari Berg Þorlákssyni (
Brynjólfur Eyvindsson hdl)
Ákærði sakfelldur fyrir vörslu á barnaklámi.
X var ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa á tilteknu árabili haft í frammi kynferðislega háttsemi gagnvart A, bróðurdóttur sinni, og B, bróðursyni sínum, og um leið notfært sér að þau gátu ekki spornað við verknaðinum sökum andlegra annmarka. Með vísan til þess að frásagnir A og B þóttu ekki alveg eindregnar eða nákvæmar um að X hefði tvívegis haft samræði við A á tilteknu tímabili og þar sem kvenskoðun læknis eftir þann tíma gaf til kynna að A hefði fram að því ekki haft samfarir var X sýknaður í héraðsdómi af þessum ákærulið. Aftur á móti þótti sannað að X hefði haft samræði og munnmök við A, látið B vera viðstaddan á meðan brotunum stóð og í kjölfar þeirra þvingað A og B til að hafa samræði og munnmök. Vísað var til frásagna A og B um brotin en talið var að þau hefðu átt sér stað eftir framangreinda kvenskoðun. Loks var X sakfelldur fyrir vörslur á barnaklámefni. Niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu X vegna einstakra ákæruliða var staðfest með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms. Matsgerð dómkvaddra kvensjúkdómalækna sem skoðuðu A eftir að héraðsdómur féll, og lagðar voru fyrir Hæstarétt, þóttu ekki geta hnekkt áliti þess læknis sem áður hafði skoðað A.
Dæmt skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslur barnakláms.
Ákærði var dæmdur í 4 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn ungmennum, en sýknaður að hluta. Dæmdur til að greiða miskabætur og helming sakarkostnaðar.
Karlmaður sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn stúlkubarni og vörslur barnakláms.
Ákærði sakfelldur fyrir að nauðga stúlku og svipta hana frelsi, nauðga barnungri stúlku og hafa samræði við tvær stúlkur undir lögaldri. Auk þess var hann sakfelldur fyrir 7 þjófnaðarbrot, gripdeild, umferðar- og fíkniefnalagabrot. Dæmdur í 5 ára fangelsi.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn
X
Dæmd sekt fyrir vörslur barnakláms
X var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur piltum, A og B, sem hann kenndi á skellinöðru og bifreið. Sannað þótti að X hefði átt kynferðisleg samskipti við piltana og voru brot hans talin varða við 1. mgr. 201. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, enda yrði að líta svo á að piltarnir, sem voru innan 18 ára aldurs, hefðu án milligöngu forráðamanna sinna en með þeirra samþykki leitað eftir námi hjá X sem ökukennara. Þá var X ákærður fyrir kynferðisbrot og áfengislagabrot með því að hafa fengið C í fjögur til sex skipti til að afklæðast og tekið fjölda mynda af honum fáklæddum eða nöktum, en á sama tímabili keypt áfengi fyrir piltinn og afhent honum. Var X sakfelldur fyrir brot gegn 209. gr. almennra hegningarlaga en talið var sannað að hann hefði tekið myndir af piltinum í tvö til þrjú skipti. Gegn neitun X þótti ósannað að hann hefði keypt áfengi fyrir piltinn og var hann því sýknaður af ákærunni hvað það varðaði. Þá var X sakfelldur fyrir brot gegn 4. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga fyrir að hafa haft í vörslu sinni samtals 3804 ljósmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt, þar á meðal myndir sem hann tók af A, B, C og D. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brot X hefðu beinst að fjórum piltum á unglingsaldri og hefði hann misnotað freklega þá aðstöðu, sem hann komst í sem ökukennari þeirra allra. Var honum gert að sæta fangelsi í tvö ár. Þá var X gert að greiða A og B hvorum 1.000.000 krónur í miskabætur og C og D hvorum 400.000 krónur.
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Steini Helgasyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
Maður sakfelldur fyrir vörslu og dreifingu barnakláms. Brot hans taldist stórfellt og var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 12 mánuði. Þar af voru 9 mánuðir fangelsisrefsingarinnar bundnir skilorði til þriggja ára.
Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Björgvini Þórissyni Ár
Ákærði dæmdur til greiðslu sektar kynferðisbrot. Einnig var hann dæmdur til að sæta upptöku á tölvu og VHS-myndbandi.
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Hauki Helgasyni (
Helgi Jóhannesson hrl)
Fyrrum ökukennari dæmdur í 3 ára fangelsi fyrir að brjóta gegn 4 piltum.
P var sakfelldur fyrir brot gegn 4. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 fyrir að hafa haft í vörslum sínum 14.713 ljósmyndir og 207 hreyfimyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Með brotinu rauf hann skilorð dóms frá 3. desember 2004 þar sem hann hlaut sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga. Í samræmi við 60. gr. almennra hegningarlaga var sá dómur tekinn upp og bæði málin dæmd í einu lagi, sbr. 77. gr. sömu laga. Að þessu virtu var refsing P ákveðin fangelsi í 15 mánuði en ekki þóttu efni til að skilorðsbinda refsinguna að neinu leyti.
X var sakfelldur fyrir brot gegn 4. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 fyrir að hafa haft í vörslum sínum rúmlega 24.000 ljósmyndir og 750 hreyfimyndir, sem sýndu börn á ýmsum aldri á kynferðislegan og klámfenginn hátt og voru margar myndanna mjög grófar. Taldist brot hans því stórfellt. Var X gert að sæta fangelsi í tólf mánuði, en fullnustu níu mánaða af refsingunni var frestað skilorðsbundið.
Ákæruvaldið (
Daði Kristjánsson settur saksóknari)
gegn
Svanberg Rúnari Lárussyni (
Björn Jóhannesson hrl)
Ungur karlmaður sakfelldur fyrir vörslur 1 ljósmyndar og 89 hreyfimynda sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Refsing ákveðin 45 daga skilorðsbundið fangelsi.
Ákæruvaldið (
Daði Kristjánsson settur saksóknari)
gegn
Unnsteini Óskari Guðmundssyni (
Tryggvi Guðmundsson hdl)
Karlmaður sakfelldur fyrir að hafa aflað sér 26 hreyfimynda sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Refsing ákveðin 30 daga skilorðsbundið fangelsi.
Sakfelldur fyrir brot gegn 4. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga og með því rofið skilorð dóms frá 3. september 2004. Refsing í heild 13 mánuðir, þar af 10 mánuðir skilorðsbundnir með vísun í 3. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga og einnig 1. og 2. tl. greinarinnar um sérstakt skilorð.
R var sakfelldur fyrir brot gegn 4. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 fyrir að hafa haft í vörslum sínum 4.048 ljósmyndir og 7 hreyfimyndir með barnaklámi. Þegar virt var hið mikla magn af ljósmyndum og grófleika margra þeirra og hreyfimyndanna, taldist brot hans stórfellt og varða fangelsisrefsingu. R átti að baki sakaferil sem laut að samkynja brotum. Þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 10 mánuði.
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Ragnari Má Sævarssyni (
Lúðvík Emil Kaaber hdl)
Karlmaður dæmdur fyrir vörslur barnakláms. Vegna sakaferils taldist refsing hæfilega ákveðin fangelsi í 12 mánuði.
Ákæruvaldið (
Björn Þorvaldsson settur saksóknari)
gegn
X (
Bjarni Lárusson hdl)
Maður dæmdur fyrir vörslu barnakláms.
Karlmaður dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu og hafa reynt að afla sér barnakláms.