Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 15. janúar 2007.
Mál nr. S-2038/2007:
D Ó M U R
máli nr. S-2038/2007:
Ákæruvaldið
(Hulda Elsa Björgvinsdóttir fulltrúi)
gegn
Helga Sigurgeiri Péturssyni
Ár 2007,
þriðjudaginn 15. janúar, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í
Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur
í sakamálinu nr. 2038/2007: Ákæruvaldið
Málið er höfðað með
ákæru Ríkissaksóknara, dagsettri 17. desember sl. á hendur ákærða, Helga
Sigurgeir Péturssyni, kennitala [...], Eyjabakka 22 Reykjavík, „ fyrir
kynferðisbrot:
Lykilorð
Kynferðisbrot. Skilorð. Upptaka.
Útdráttur
Karlmaður dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu og hafa reynt að afla sér barnakláms.
Ár 2007, þriðjudaginn 15. janúar, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 2038/2007: Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir) gegn Helga Sigurgeiri Péturssyni (Guðrún Sesselja Arnardóttir hdl.), sem tekið var til dóms í sama þinghaldi.
Málið er höfðað með ákæru Ríkissaksóknara, dagsettri 17. desember sl. á hendur ákærða, Helga Sigurgeir Péturssyni, kennitala [...], Eyjabakka 22 Reykjavík, „ fyrir kynferðisbrot:
- Með því að hafa haft í vörslu sinni, í neðangreindum búnaði sem haldlagður var á heimili á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Myndanna aflaði ákærði sér af netinu og vistaði á neðangreindan búnað.
a) Í silfurlitaðri turntölvu af óþekktri gerð 23.937 ljósmyndir og 750 hreyfimyndir.
b) Í turntölvu af óþekktri gerð 13 ljósmyndir.
c) Í turntölvu af óþekktri gerð 480 ljósmyndir.
2. [...].
3. [...].
- Með því að hafa 1. og 5. ágúst 2006 reynt að afla sér hreyfimyndar, sem sýnir stúlkubarn á kynferðislegan og klámfenginn hátt, af heimasíðunni www.youngvideomodels.net. Ákærði pantaði myndina með rafrænum hætti á netinu og greiddi fyrir hana með greiðslukorti en myndin komst ekki í hans vörslu.
Telst háttsemi ákærða samkvæmt 1. – 3. tölulið varða 4. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en samkvæmt 4. tölulið við 4. mgr. 210. gr hegningarlaga, sbr. 20. gr. sömu laga, sbr. 7. gr. laga nr. 39/2000, 2. gr. laga nr. 14/2002 og 2. gr. laga nr. 74/2006.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku samkvæmt 1. tl. 1. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga á þremur turntölvum af óþekktri gerð.“
Ákæruvaldið hefur með yfirlýsingu í dómi fallið frá ákæruliðum 2 og 3.
Málavextir
Ákærði hefur skýlaust játað það brot sem hann er saksóttur fyrir. Hefur hann orðið sekur um athæfi það sem lýst er í ákærunni og réttilega er þar fært til refsiákvæða. Ákærði hefur ekki áður gerst sekur um refsivert brot og hefur leitað sér sálfræðiaðstoðar til þess að vinna bug á hneigðum sínum. Þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í sex mánuði. Rétt er að fresta því að framkvæma refsingu þessa og ákveða að hún falli niður að liðnum 3 árum frá dómsuppsögu að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Dæma ber ákærða til þess að þola upptöku á þremur tölvum, eins og krafist er í ákæru og með heimild í því lagaákvæði sem þar er tilfært..
Loks ber að dæma ákærða til þess að greiða verjanda sínum 180.000 krónur í málsvarnarlaun, að meðtöldum virðisaukaskatti.
DÓMSORÐ:
Ákærði, Helgi Sigurgeir Pétursson, sæti fangelsi í 6 mánuði. Framkvæmd refsingarinnar er frestað og fellur hún niður að liðnum 3 árum haldi ákærði almennt skilorð.
Ákærði sæti upptöku á þremur turntölvum.
Ákærði greiði verjanda sínum, Guðrúnu Sesselju Arnardóttur héraðsdómslögmanni, 180.000 krónur í málsvarnarlaun.
Pétur Guðgeirsson.