Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-944/2007:

S-944/2007:

Ákæruvaldið

(Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)

gegn

Ragnari Má Sævarssyni

Mál

þetta, sem þingfest var í dag og dómtekið, er höfðað með ákæru útgefinni af

lögreglustjóranum í Reykjavík 25. júní sl., á hendur ákærða, Ragnari Má

Sævarssyni, kt. [...], Burknavöllum 9, Hafnarfirði, fyrir kynferðisbrot með því

að hafa haft í vörslum sínum, í neðangreindum búnaði sem haldlagður var á

heimili ákærða 9. október 2006, ljósmyndir og hreyfimyndir sem sýna börn á

kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Myndanna aflaði ákærði sér af netinu og

vistaði á neðangreindan búnað á tímabilinu frá nóvember 2005 fram í september

2006:

1)

Í Toshiba fartölvu, sjö

hreyfimyndir.

2)

Í Sony Walkman ferðaspilara, 3814

ljósmyndir.

3)

Í ACE special edition turntölvu,

234 ljósmyndir.

Telst

þetta varða við 4. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 7.

gr. laga nr. 39/2000, 2. gr. laga nr. 14/2002 og 2. gr. laga nr. 74/2006.

Þess

er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku samkvæmt

(Lúðvík Emil Kaaber hdl)

Kynferðisbrot.

Karlmaður dæmdur fyrir vörslur barnakláms. Vegna sakaferils taldist refsing hæfilega ákveðin fangelsi í 12 mánuði.

Mál þetta, sem þingfest var í dag og dómtekið, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum í Reykjavík 25. júní sl., á hendur ákærða, Ragnari Má Sævarssyni, kt. [...], Burknavöllum 9, Hafnarfirði, fyrir kynferðisbrot með því að hafa haft í vörslum sínum, í neðangreindum búnaði sem haldlagður var á heimili ákærða 9. október 2006, ljósmyndir og hreyfimyndir sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Myndanna aflaði ákærði sér af netinu og vistaði á neðangreindan búnað á tímabilinu frá nóvember 2005 fram í september 2006:

1)     Í Toshiba fartölvu, sjö hreyfimyndir.

2)     Í Sony Walkman ferðaspilara, 3814 ljósmyndir.

3)     Í ACE special edition turntölvu, 234 ljósmyndir.

Telst þetta varða við 4. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 7. gr. laga nr. 39/2000, 2. gr. laga nr. 14/2002 og 2. gr. laga nr. 74/2006.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku samkvæmt 1. tl., 1. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga, á Toshiba fartölvu, Sony Walkman ferðaspilara og ACE special edition turntölvu.

Málavextir

Ákærði hefur skýlaust játað það brot sem hann er saksóttur fyrir.  Hefur hann orðið sekur um athæfi það sem lýst er í ákærunni og réttilega er þar fært til refsiákvæðis.  Ákærði hlaut sektarrefsingu árið 1998 fyrir sams konar brot og nú er ákært fyrir og árið 2001 hlaut hann 12 mánaða fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot gegn ungum drengjum.  Loks var hann dæmdur í 4 mánaða fangelsi árið 2003 fyrir sams konar brot og nú er ákært fyrir. Vegna þessa sakaferils telst refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 12 mánuði.

Dæma ber ákærða til þess að greiða 150.000 krónur í málsvarnarlaun til Lúðvíks Kaaber hdl., að meðtöldum virðisaukaskatti.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Ragnar Már Sævarsson, sæti fangelsi í 12 mánuði.

Ákærði sæti upptöku á fartölvu, ferðaspilara og turntölvu.

Ákærði greiði verjanda sínum, Lúðvík Kaaber hdl., 150.000 krónur í málsvarnarlaun.

Pétur Guðgeirsson