Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

10 dómar fundust

Lagagrein: 9. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög

Landsréttur birt 20. nóvember 2020

757/2019

BB byggingar ehf (Óskar Sigurðsson lögmaður) gegn Svalbarðsstrandarhreppi (Árni Pálsson lögmaður)
Lykilorð: Fasteign. Skipulag. Skaðabætur.

Í málinu var deilt um skaðabótaábyrgð S á tjóni sem B ehf. kvaðst hafa orðið fyrir vegna ósamræmis milli aðalskipulags og deiliskipulags Kotabyggðar. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að B ehf. hefði eignast leigulóðarréttindi að fjórum tilgreindum lóðum í Kotabyggð með afsölum 28. júní 2010. Óumdeilt væri að vegna ósamræmis sem um tíma gilti milli aðalskipulags og deiliskipulags hafi B ehf. ekki getað fengið útgefið byggingarleyfi á lóðunum. B ehf. hefði eignast umrædd lóðarréttindi á þeim tíma sem ósamræmið var til staðar. Ekki væri annað fram komið en að skilmálar aðalskipulags og deiliskipulags hefðu verið B ehf. aðgengilegir og honum því skylt að kynna sér þær fyrir kaupin. Þá hafi B ehf. ekki getað gengið út frá því að nýtt deiliskipulag lægi fyrir á ákveðnum tíma eða að hann gæti nýtt lóðir sínar undir frístundabyggð í trássi við gildandi aðalskipulag. Var S sýknaður af kröfum B ehf. í málinu.

Hæstiréttur birt 11. febrúar 2016

411/2015

Einar Sigurþórsson, Eyvindarmúli ehf, Guðjón Stefán Guðbergsson, Jón R. Kristinsson, Laugardælur ehf, Lögmannsstofa SS ehf, Múlakot 1 Fljótshlíð ehf, dánarbú Runólfs Runólfssonar, Sigríður Hjartar, Unnur Tómasdóttir og Þórunn Jónsdóttir (Óskar Sigurðsson hrl) gegn Ragnárþingi eystra Vegagerðinni (Andri Árnason hrl) og Landgræðslu ríkisins (Edda Björk Andradóttir hrl, 4. prófmál)

Í málinu kröfðust E o.fl. þess að ógilt yrði framkvæmdaleyfi V og L sem samþykkt var af sveitarstjórn R í september 2010 vegna enduruppbyggingar á flóðavarnargarði við Þórólfsfell í R sem varð fyrir skemmdum af völdum flóða í Markarfljóti í apríl sama ár. Fyrir lá að endurbygging varnargarðsins lauk í nóvember 2010 og var hann endurreistur í breyttri mynd frá því sem áður var. E o.fl. töldu að sú breyting hefði þau áhrif að Markarfljótið félli frekar að jörðum þeirra og ylli þar spjöllum á landi sem gróið hefði upp í tíð eldri varnargarðs. Reistu þeir kröfu sína einkum á því að ekki hefði verið gætt ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993 við undirbúning að veitingu leyfis til framkvæmdanna, auk þess sem brotið hefði verið gegn nánar tilgreindum lögum. Ekki var fallist á með R o.fl. að tilgangur varnargarðsins hefði einungis verið sá að vernda vegarstæði við fljótið en ekki jafnframt að einhverju marki að verja lönd E o.fl. fyrir ágangi þess. Var talið sannað að Markarfljótið bryti með öðrum hætti á garðinum eftir breytinguna en áður. Hefðu R o.fl. ekki leitt líkur að því að yfirvofandi hætta á frekari flóðum hefði réttlætt breytinguna og var lagt til grundvallar að tilgangur breytinga á legu garðsins hefði verið sá að breyta rennsli fljótsins frá því sem það var fyrir flóðin í apríl 2010 og einnig að spara fé við frekara viðhald á honum. Þá var ekki séð að R hefði sinnt ábendingum E o.fl. á mögulegum afleiðingum þess að endurreisa varnargarðinn í breyttri mynd, meðal annars með nauðsynlegum athugunum. Hefði R því ekki upplýst málið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga áður en hann tók ákvörðun um veitingu framkvæmdaleyfis. Var fallist á kröfu E o.fl. um ógildingu leyfisins.

Héraðsdómur Suðurlands birt 24. mars 2015

E-184/2013

Einar Sigurþórsson, Eyvindarmúli ehf, Guðjón Stefán Guðbergsson, Jón R. Kristinsson, Laugardælur ehf, Lögmannsstofa SS ehf, Múlakot 1 Fljótshlíð ehf, Runólfur Runólfsson, Sigríður Hjartar, Unnur Tómasdóttir og Þórunn Jónsdóttir (Óskar Sigurðsson hrl) gegn Rangárþingi eystra (Andri Árnason hrl), Vegagerð ríkisins (Stefán Erlendsson hdl) og Landgræðslu ríkisins (Birkir Snær Fannarsson hdl)

Framkvæmdaleyfi - stjórnsýsla.

Hæstiréttur birt 13. maí 2014

265/2014

Einar Sigurþórsson, Eyvindarmúli ehf, Guðjón Stefán, Guðbergsson, Jón R. Kristinsson, Laugardælur ehf, Lögmannsstofa SS ehf, Múlakot 1 Fljótshlíð, ehf, Runólfur Runólfsson, Sigríður Hjartar, Unnur Tómasdóttir og Þórunn Jónsdóttir (Óskar Sigurðsson hrl) gegn Rangárþingi eystra (Andri Árnason hrl, Gunnar Gunnarsson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem vísað var frá dómi máli E o.fl. á hendur R, V og L. Málsókn E o.fl., eigenda lands sem liggur að Markarfljóti í Rangárþingi eystra, átti rætur að rekja til þess að varnargarður við Markarfljót hjá Þórólfsfelli skemmdist í flóði af völdum eldgoss í Eyjafjallajökli vorið 2010. Þetta töldu E o.fl. hafa leitt til þess að Markarfljót breytti farvegi sínum sem flæmst hefði yfir land þeirra og valdið þeim skemmdum. Fyrir Hæstarétti kröfðust E o.fl. þess að hinn kærði úrskurður yrði felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar að því er varðaði einn kröfulið þeirra aðallega um að ógilt yrði með dómi framkvæmdaleyfi V og L, sem samþykkt var og útgefið af R, vegna viðgerðar og endurbyggingar á fyrrgreindum flóðavarnargarði, en til vara að viðurkennt yrði að framkvæmdir V og L við varnargarðinn frá og með tilteknu tímamarki hefðu verið ólögmætar. Talið var að krafa E o.fl. er laut að ætluðu ólögmæta framkvæmda sem fram fóru á grundvelli fyrrgreinds framkvæmdaleyfis væri einungis málsástæða fyrir kröfu um ógildingu framkvæmdaleyfisins og kæmi hún því ekki til úrlausnar í málinu. Á hinn bóginn taldi Hæstiréttur að E o.fl. hefðu lögvarða hagsmuni af að fá efnisdóm um gildi framkvæmdaleyfisins með skírskotun til þess að E o.fl. hefðu frá upphafi lagst eindregið gegn breytingu á legu varnargarðsins og að í dómaframkvæmd réttarins hefði það ekki staðið í vegi þess að skorið yrði úr um lögmæti slíks leyfis þótt framkvæmdum væri lokið eða þær langt komnar. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi að þessu leyti og lagt fyrir héraðsdóm að taka kröfu E o.fl. til löglegrar meðferðar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 26. mars 2014

E-184/2013

Einar Sigurþórsson, Eyvindarmúli, ehf, Guðjón, Stefán Guðbergsson, Jón, R. Kristinsson, Laugardælur, ehf, Lögmannsstofa, SS ehf, Múlakot, 1 Fljótshlíð ehf, Runólfur, Runólfsson, Sigríður, Hjartar, Unnur, Tómasdóttir og Þórunn Jónsdóttir (Óskar Sigurðsson hrl) gegn Rangárþingi eystra (Andri Árnason hrl), Vegagerð ríkisins (Stefán Erlendsson hdl) og Landgræðslu ríkisins (Birkir Snær Fannarsson hdl)

Frávísunarúrskurður.

Hæstiréttur birt 17. nóvember 2011

49/2011

Þórir J Einarsson ehf (Óskar Sigurðsson hrl) gegn Reykjavíkurborg (Ívar Pálsson hrl)

Þ ehf. var eigandi landskika á H sem hann hafði keypt 9. september 2005. Jarðvegslosun mun hafa hafist á svæðinu í kjölfar samþykktar borgarráðs R 3. apríl 2001. Nýtt deiliskipulag á H vegna jarðvegsfyllingar og miðlunartanka tók gildi 14. desember 2010. Felldi það úr gildi deiliskipulag fyrir miðlunartanka frá árinu 2008 og deiliskipulag vegna jarðvegsfyllingar frá árinu 2010. Í málinu krafðist Þ ehf. m.a. að fyrrnefnd samþykkt borgarráðs R um samþykki varðandi losunarstað á H yrði felld úr gildi. Hinn áfrýjaði dómur var kveðinn upp 26. október 2010. Í dómi Hæstaréttar kom fram að framkvæmdir við jarðvegslosun á H færu nú ekki lengur fram á grundvelli fyrrnefndrar samþykktar R frá 3. apríl 2001. Eftir 14. desember 2010 gæti samþykktin ekki haft verkanir að lögum sem gild skipulags- og framkvæmdaheimild. Fæli dómkrafa Þ ehf. nú eingöngu það í sér að leitað yrði álits dómstóla um lögfræðilegt efni en veitti Þ ehf. ekki úrlausn um tiltekin réttindi sem málsókn væri ætlað að tryggja. Af slíkri úrlausn hefði Þ ehf. ekki lögvarða hagsmuni og væri óhjákvæmilegt að vísa málinu frá Hæstarétti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. október 2010

E-6581/2009

Þórir J. Einarsson ehf (Guðbjarni Eggertsson hdl) gegn Reykjavíkurborg (Ingi Björn Poulsen hdl)
Lykilorð: Mengun. Skipulag. Önnur mál.

Stefnandi krafðist þess að samþykkt borgarráðs um samþykki varðandi losunarstað á Hólmsheiði fyrir jarðvegsefni yrði felld úr gildi og að stefnda verði gert skylt að stöðva jarðvegslosun á svæðinu að viðlögðum dagsektum. Var stefndi sýknaður af öllum kröfum stefnanda.

Hæstiréttur birt 23. ágúst 2010

415/2010

Þórir J. Einarsson ehf (Guðbjarni Eggertsson hdl) gegn Reykjavíkurborg (Gunnar Eydal hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli Þ ehf. gegn Reykjavíkurborg var vísað frá dómi án kröfu. Í málinu krafðist Þ ehf. þess að felld yrði úr gildi samþykkt borgarráðs um samþykki varðandi losunarstað á H fyrir jarðvegsefni og að viðurkennt yrði að jarðvegslosun á H, á grundvelli samþykkis borgarráðs, væri ólögmæt. Þá krafðist hann þess að Reykjavíkurborg yrði gert skylt að viðlögðum dagsektum að stöðva jarðvegslosun á H og að viðurkennd yrði skaðabótaskylda vegna losunarinnar. Þ ehf. byggði m.a. á því að héraðsdómari hafi hafnað kröfu um frávísun með úrskurði 15. janúar 2010. Talið var að þar sem hinn kærði úrskurður hafi einkum verið reistur á því að forsendur hafi breyst vegna breytinga á deiliskipulagi hafi héraðsdómari við þær aðstæður ekki verið bundinn af fyrri úrskurði, sbr. 3. mgr. 100. gr. laga nr. 91/1991. Fallist var á með Þ ehf. að nýtt deiliskipulag væri reist á þeirri forsendu að fyrri ákvarðanir um losunarsvæði og magn hafi verið gildar. Þ ehf. hafi því lögvarða hagsmuni af því að fá efnisúrlausn um kröfu sína um að felld verði úr gildi samþykkt borgarráðs um losunarstað fyrir jarðvegsefni á H og kröfu sína um að Reykjavíkurborg yrði að viðlögðum dagsektum skylt að stöðva jarðvegslosun á H. Krafa Þ ehf. um að viðurkennt yrði að jarðvegslosun á H væri ólögmæt væri ekki sjálfstæð krafa heldur forsenda fyrir fyrstu kröfu hans. Skorti hann því lögvarða hagsmuni af því að fá sjálfstæða úrlausn um hana. Þá var fallist á með héraðsdómi að Þ ehf. hafi ekki reifað nægilega í héraðsstefnu í hverju ætlað tjón hans felist, hver skaðabótagrundvöllurinn væri og hvers vegna og tengsl ætlaðrar bótaskyldrar háttsemi Reykjavíkurborgar og tjóns hans. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi að því er varðaði frávísun á fyrstu og þriðju kröfu Þ ehf. en staðfestur að því er snerti frávísun á annarri og fjórðu kröfu hans.