Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 26. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög

Hæstiréttur birt 7. febrúar 2013

443/2012

Hverfi ehf (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl) gegn Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl)

H ehf. krafði R um skaðabætur vegna tjóns sem félagið taldi sig hafa orðið fyrir vegna kostnaðar sem það greiddi vegna fyrirhugaðra framkvæmda á lóð félagsins. Byggði H ehf. m.a. á því að R hefði með óvandaðri og rangri málsmeðferð við breytingu á deiliskipulagi valdið honum tjóni, en úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála felldi úr gildi ákvörðun skipulagsráðs R um breytingu á skipulaginu. Var það mat Hæstaréttar að H ehf. hefði ekki fært sönnur á, að sú ákvörðun starfsmanna R að haga málsmeðferð vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi með tilteknum hætti, teldist saknæm og skyldi baka R skaðabótaábyrgð. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu R.

Hæstiréttur birt 22. mars 2012

522/2011

Jóhann H. Jónsson (Jóhannes Albert Sævarsson hrl) gegn Fallorku ehf (Árni Pálsson hrl)
Lykilorð: Samningur. Leiga. Vatnsréttindi.

Málsaðilar höfðu gert með sér leigusamning um lands- og vatnsréttindi á jörð J í Eyjafjarðarsveit. J taldi að óháð þeim samningi bæri F ehf. að greiða sér aukreitis fyrir töku malar úr umræddu landi vegna virkjunarframkvæmda á svæðinu. Ekki var fallist á með J að annar samningur hefði verið gerður þess efnis að hann hlyti sérstakar greiðslur vegna umrædds malarnáms. Með hliðsjón af aðdraganda og efni leigusamnings aðila var á hinn bóginn fallist á með F ehf. að túlka bæri leigusamninginn þannig að í leigugjaldi fyrir nýtingu landsins hefði einnig falist greiðsla vegna umrædds malarnáms og jarðrasks sem virkjunarframkvæmdunum óhjákvæmilega fylgdu.

Hæstiréttur birt 1. nóvember 2007

594/2006

Björn Rúnar Lúðvíksson, Rósa Karlsdóttir, Skafti Gunnarsson og Súsanna Helena Davíðsdóttir (Þorsteinn Einarsson hrl) gegn Garðabæ og Einari Páli Tamimi (Andri Árnason hrl)

Áfrýjendur kröfðust þess að felld yrði úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúa G um að veita E leyfi til framkvæmda við smíði einbýlishúss í G. Áfrýjendur báru fyrir sig að húsið uppfyllti ekki ákveðin atriði í skilyrðum byggingarskilmála og að G hefði brotið gegn fyrirmælum 10. til 14. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 við meðferð málsins, þar sem ólögmæt og ómálefnanleg sjónarmið hefðu ráðið útgáfu byggingarleyfisins. Ekki var talið að áfrýjendur hefðu sýnt fram á að byggingarleyfið hefði verið gefið út í andstöðu við byggingarskilmála eða ákvæði stjórnsýslulaga og voru G og E sýknaðir af kröfu áfrýjenda.

Héraðsdómur Reykjaness birt 31. október 2006

E-1196/2005

Björn Rúnar Lúðvíksson, Rósa Karlsdóttir, Skafti Gunnarsson og Súsanna Helen Davíðsdóttir (Þorsteinn Einarsson hrl) gegn Garðabæ Einari Páli Tamimi (Andri Árnason hrl)
Lykilorð: Byggingarleyfi. Skipulag.

G og E sýknaðir af kröfu stefnenda um niðurfellingu á samþykkt bæjarstjórnar um breytingar á skipulagsskilmálum og niðurfellingu á byggingarleyfi, málskostnaður felldur niður.

Hæstiréttur birt 27. mars 2003

367/2002

Kári Stefánsson (Othar Örn Petersen hrl) gegn Gísla Helgasyni Herdísi Hallvarðsdóttur og Guðmundi Jónssyni (Helgi Birgisson hrl)

Deilt var um gildi byggingaleyfis sem K fékk til að reisa hús með tvöfaldri bílageymslu á lóð sinni nr. 9 við Skeljatanga í Reykjavík. Höfðu G o.fl. kært veitingu leyfisins til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála sem felldi það úr gildi. K krafðist því að úrskurður nefndarinnar yrði felldur úr gildi. Tekið var fram að niðurstaða málsins færi eftir skýringu á byggingar- og skipulagsskilmálum umrædds hverfis frá 1990 og ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og reglugerðar sem sett væri með heimild í þeim lögum. Fallist var á að skilmálarnir væru torskildir og til þess fallnir að skapa óeiningu. Samkvæmt þeim væri um sum atriði vísað til mats stjórnvalda en um önnur færi eftir hlutlægri skýringu á viðkomandi ákvæðum. Fyrir lá að sótt var um að byggingin yrði einnar og hálfrar hæðar. Samkvæmt skýrum ákvæðum 3. gr. skilmálanna mætti stalla hús einungis á þeim helmingi grunnflatar þess, sem væri fjær götu, og mætti nýta slíka stöllun á tveimur hæðum. Mun meira en helmingur af gólfplötu hússins væri stallaður niður fyrir þá hæð, sem aðalgólfplatan hefði næst götu. Fyrirhugað hús K fullnægði því ekki ákvæði 3. gr. skilmálanna og yrði ekki fallist á að stöllun í merkingu skilmálanna tæki eingöngu til þess hluta hússins, sem fyrirhugað væri að yrði á tveimur hæðum. Þá yrði að skilja skilmálana svo að hæð húss sem væri stallað á þeim helmingi gólfflatar, sem væri fjær götu, mætti vera hæst 5,7 m miðað við götukóta á þessum hluta, en nær götu skyldi það vera hæst 4,4 m. Glerhýsi K eftir miðju þaksins mætti því ekki allt ná 5,7 m mænishæð. Sú mænishæð skæri sig einnig frá hæð annarra hús við Skeljatanga. Var kröfu K því hafnað.