Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

15 dómar fundust

Lagagrein: 26. gr. laga nr. 53/2000 — Útvarpslög

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. desember 2017

E-3896/2017

Emma Caroline Fernandez (Ingibjörg Halldórsdóttir lögmaður) gegn Hjálmari Friðrikssyni og Útgáfufélaginu Stundinni ehf (Auður Tinna Aðalbjarnardóttir lögmaður)

Ágreiningur var um hvort tiltekin ummæli sem birtust á vefsíðu teldust ærumeiðandi. Talið var að ekki hefði verið farið út fyrir mörk leyfilegrar tjáningar samkvæmt 73. gr. stjórnarskrá.

Hæstiréttur birt 15. nóvember 2012

69/2012

Jón Ásgeir Jóhannesson (Ragnar Halldór Hall hrl) gegn Svavari Halldórssyni (Karl Axelsson hrl)

J höfðaði mál á hendur S og krafðist ómerkingar tiltekinna ummæla sem féllu í upphafi aðalfréttatíma RÚV 6. desember 2010 kl. 19 en þau voru hluti ummæla í frétt sem S flutti umrætt sinn. Taldi J að S hefði farið út fyrir mörk tjáningarfrelsis síns með því að blanda honum í frétt um fyrirtækið F sem var í eigu P og aðkomu J að lánveitingu F til fyrirtækis í Panama ásamt þeim P og H. Hæstiréttur taldi að þegar efni fréttarinnar væri metið í heild og ummæli þau sem krafist væri ómerkingar á væru virt í samhengi við önnur ummæli í fréttinni og að teknu tilliti til myndrænnar framsetningar, yrðu þau ekki skilin á annan veg en þann að með þeim væri verið að bera J á brýn háttsemi sem væri refsiverð og félli undir ákvæði almennra hegningarlaga. S hafi engin gögn lagt fram um að ummælin ættu við rök að styðjast eða að hann hafi við vinnslu fréttarinnar leitað eftir upplýsingum frá J um efni hennar. Taldi Hæstiréttur því að S gæti ekki hafa verið í góðri trú um sannleiksgildi þeirra ummæla sem í fréttinni fólust. Var fallist á kröfu J um ómerkingu ummælanna og S dæmdur til að greiða honum 300.000 krónur í miskabætur.

Hæstiréttur birt 24. nóvember 2011

179/2011

Pálmi Haraldsson (Gísli Guðni Hall hrl) gegn Svavari Halldórssyni, Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur og Páli Magnússyni Viðar (Karl Axelsson hrl)

P höfðaði mál gegn S og M og PM til vara, vegna tiltekinna ummæla sem viðhöfð voru um hann í aðalfréttatíma RÚV kl. 19 hinn 25.mars 2010. Krafðist hann m.a. ómerkingar ummælanna og að S yrði dæmdur til refsingar samkvæmt 234. og 235. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í Hæstarétti var S sýknaður af kröfum P vegna ummæla sem tilgreind voru í staflið a í dómkröfum P„Milljarðar hurfu í reyk“þar sem S hefði ekki verið flytjandi þeirra í skilningi a. liðar 26. gr. útvarpslaga nr. 53/2000 og engu breytti í þeim efnum þótt hann hefði samið ummælin. Þá taldi Hæstiréttur að fyrrgreind ummæli og ummælin sem tilgreind voru í staflið e „en þeir peningar finnast hins vegar hvergi“ sem S flutti sjálfur væru sömu merkingar. Í ljósi þessa og þeirrar ábyrgðarraðar sem mælt væri fyrir um í einstökum stafliðum 26. gr. útvarpslaga yrðu ummælin í staflið a ekki ómerkt sérstaklega og var PM þegar af þeirri ástæðu sýknaður af kröfum P. Þá taldist S ekki flytjandi ummæla í stafliðum b og c í skilningi 26. gr. útvarpslaga og var hann því einnig sýknaður vegna þeirra. Óumdeilt var að S væri höfundur ummælanna í stafliðum b, c og d og yrði því hvorki talið að M hefði í skilningi a. liðar 26. gr. útvarpslaga flutt sjálf efni þetta í eigin nafni né teldist hún flytjandi í skilningi b. liðar ákvæðisins. Taldi Hæstiréttur að þulur sem einvörðungu kynnir efni við útsendingu þess, og hefur hvorki samið efnið né á í ljósi starfsskyldna sinna nokkurn ákvörðunarrétt um flutning þess, teldist ekki flytjandi í skilningi b. liðar 26. gr. laganna. Yrði ábyrgð M ekki reist á þessum ákvæðum og var hún því sýknuð af kröfum P. Hæstiréttur taldi að þegar ummælin í staflið e „en þeir peningar finnast hins vegar hvergi“sem S samdi og flutti að loknum inngangi fréttarinnar væru virt í samhengi við önnur ummæli í fréttinni yrðu þau ekki skilin á annan veg en þann að með þeim væri verið að bera P á brýn refsiverða háttsemi sem félli undir ákvæði almennra hegningarlaga. S hefði ekki sýnt fram á að þetta ætti við rök að styðjast og við vinnslu fréttarinnar leitaði hann ekki eftir upplýsingum frá P um efni hennar. Með þessu gætti hann ekki að þeirri skyldu sem fram kæmi í 2. gr. reglna Ríkisútvarpsins frá 1. maí 2008 og gæti ekki talist hafa verið í góðri trú um sannleiksgildi þeirra ummæla sem í fréttinni fólust. Þessi ummæli voru því ómerkt en ekki voru talin efni til að dæma S til refsiábyrgðar vegna flutnings þeirra eða til greiðslu kostnaðar af birtingu dómsins með vísan til þeirrar heimildar sem fram kæmi í 2. mgr. 241. gr. almennra hegningarlaga. Á hinn bóginn var S dæmdur til að greiða P 200.000 krónur í miskabætur.

Hæstiréttur birt 25. febrúar 2010

90/2010

Ákæruvaldið (Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari) gegn Andra Ólafssyni og Breka Logasyni (Einar Þór Sverrisson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákæruvaldið krafðist þess að A og B fréttamönnum yrði gerð réttarfarssekt fyrir að skýra opinberlega frá því sem gerðist í lokuðu þinghaldi án leyfis dómara. Talið var að samkvæmt 1. mgr. 222. gr. laga nr. 88/2008 ákveði dómari sektir samkvæmt reglum XXXV. kafla laganna af sjálfsdáðum. Ákveði hann að leggja á réttarfarssekt geri hann það með úrskurði sem sæti kæru til Hæstaréttar samkvæmt y. lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008. Ekki sé í lögum gert ráð fyrir að málsaðili geri kröfu um réttarfarssekt. Skorti því lagaskilyrði fyrir að hinn kærði úrskurður væri kveðinn upp. Var málinu því vísað frá Hæstarétti.

Héraðsdómur Reykjaness birt 12. febrúar 2010

S-1064/2009

Ákæruvaldið (Sigrún Elsa Kjartansdóttir saksóknari) gegn Andra Ólafssyni og Breka Logasyni (Einar Þór Sverrisson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Hafnað var kröfu ríkissaksóknara um að tveimur fréttamönnum yrði gerð réttarfarssekt

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. október 2009

E-12027/2008

málinu nr. E-12027/2008 Benjamín Þór Þorgrímsson (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hdl) gegn Jóhannesi Kristjáni Kristjánssyni Kristni Hrafnssyni, 365 miðlum ehf, til vara og Ara Edwald (Einar Þór Sverrisson hrl)

Stefnandi krafðist miskabóta vegna leynilegrar upptöku stefndu af samskiptum hans og annars manns, og síðar birtingar hennar í fréttaskýringaþætti Kompáss. Voru stefndu sýknaðir af kröfu stefnanda.

Hæstiréttur birt 11. júní 2009

577/2008

Ákæruvaldið (Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari) gegn Þórmundi Bergssyni (Sigurður G. Guðjónsson hrl)
Lykilorð: Happdrætti. Auglýsing.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Þ var ákærður fyrir brot gegn lögum um happdrætti nr. 38/2005 með því að hafa sem framkvæmdastjóri M keypt auglýsingapláss fyrir vefsíðuna www.betsson.com og þannig borið ábyrgð á birtingu auglýsinga vefsíðunnar, sem byði upp á þátttöku í veðmálum, pókerspili og öðru happdrætti, sem ekki hafði verið veitt leyfi fyrir samkvæmt lögum um happdrætti. Var háttsemin talin í ákæru varða við b. lið 1. mgr. 11. gr. laga um happdrætti, sbr. c-lið 26. gr. útvarpslaga nr. 53/2000. Í héraðsdómi sagði að ekkert væri fram komið um að með umræddum auglýsingum væri verið að kynna happdrættis- eða veðmálastarfsemi sem rekin væri hérlendis og var Þ þegar af þeirri ástæðu sýknaður. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms með vísan til forsendna.

Hæstiréttur birt 28. maí 2009

575/2008

Lucia Celeste Molina Sierra og Birnir Orri Pétursson (Dögg Pálsdóttir hrl) gegn Páli Magnússyni, Helga Seljan Jóhannssyni, Jóhönnu Vilhjálmsdóttur, Sigmari Guðmundssyni og Þórhalli Gunnarssyni (Kristján Þorbergsson hrl)

L og B höfðuðu mál til heimtu bóta vegna miska sem þau töldu sig hafa orðið fyrir vegna umfjöllunar P, H, J, S og Þ í dægurmálaþættinum Kastljósi og í fréttatímum útvarps og sjónvarps Ríkisútvarpsins um umsókn L um íslenskan ríkisborgararétt. Kjarni umfjöllunarinnar var hvort meðferð umsóknarinnar hefði verið óeðlileg og það helgast af tengslum L við þáverandi umhverfisráðherra. Var málatilbúnaður L og B reistur á því að umfjöllunin hefði falið í sér ólögmæta meingerð í þeirra garð. Taldi Hæstiréttur að ætla yrði fjölmiðlum svigrúm til umfjöllunar um málefni sem þetta, sem ætti erindi til almennings og væri hluti af þjóðfélagsumræðu. Viðleitni H, J, S og Þ til að sýna fram á að afgreiðsla umsóknar L væri tortryggileg og að valdi hefði verið misbeitt hefði ekki beinst að L og B heldur að þáverandi umhverfisráðherra og allsherjarnefnd Alþingis. Hins vegar var talið að umfjöllun H, J, S og Þ í Kastljósi og viðleitni þeirra til að sýna fram á að meðferð og afgreiðsla umsóknar L hefði verið óeðlileg hefði borið ofurliði vilja þeirra til að fara rétt með staðreyndir og til að leiðrétta rangfærslur og gera viðhlítandi grein fyrir lagagrundvelli málsins. Þótt fallast mætti á með L og B að P, H, J, S og Þ hefðu í ýmsum atriðum brotið þær skyldur sem á þeim hvíldu í starfi og ekki sýnt L og B þá tillitssemi sem ætlast hefði mátt til, þá hefði umfjöllunin um persónuleg atriði sem L og B vörðuðu verið svo samofin málefninu að útilokað hefði verið að greina þar skýrlega á milli. Yrðu einstaklingar að nokkru marki að þola að persónuleg málefni, er þá varða, kæmu í slíkum tilvikum til almennrar umfjöllunar. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu af kröfum L og B um miskabætur og að ekki væru skilyrði til að dæma refsingu vegna brota á 228. og 229. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. september 2008

S-340/2008

Ákæruvaldið (Arnþrúður Þórarinsdóttir fulltrúi) gegn A (Sigurður G. Guðjónsson hrl)
Lykilorð: Sýkna.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Forsvarsmaður fyrirtækis sýknaður af ákæru um brot gegn lögum um happdrætti með því að hafa keypt auglýsingapláss fyrir erlenda vefsíðu og þannig borið ábyrgð á birtingu auglýsinga vefsíðunnar, sem byði upp á þátttöku í veðmálum, pókerspili og öðru happdrætti sem ekki hafi verið veitt leyfi fyrir skv. lögum um happdrætti. Var talið að með tilgreindu refsiákv. b-liðs 1. mgr. 11. gr. laganna væri einungis lýst refsiverð sú háttsemi að auglýsa, kynna eða miðla upplýsingum um happdrætti sem rekið væri hérlendis án leyfis. Með umræddum auglýsingum hefði hins vegar verið vakin athygli á vefsíðu sem hýst væri erlendis og lægi ekkert fyrir um að þar hefði verið auglýst starfsemi af umræddu tagi sem rekin væri hérlendis án leyfis.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. júlí 2008

E-7167/2007

Lucia Celeste Molina Sierra Birnir Orri Pétursson (Dögg Pálsdóttir hrl) gegn Páli Magnússyni, Helga Seljan Jóhannssyni, Jóhönnu Vilhjálmsdóttur, Sigmari Guðmundssyni og Þórhalli Gunnarssyni (Hlynur Halldórsson hdl)

Stefndu voru sýknuð af refsi-og bótakröfum stefnenda út af umfjöllun í Kastljósi og fréttum RUV vegna umsóknar stefnanda um íslenskan ríkisborgararétt.

Hæstiréttur birt 25. október 2007

67/2007

Hrefna Kristmundsdóttir Júlíus Jón Þorsteinsson (Atli Gíslason hrl) og Elí Sigursteinn Þorsteinsson (Karl Ólafur Karlsson hdl) gegn Ríkisútvarpinu ohf (Kristján Þorbergsson hrl, Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hdl)

Árið 2002 sýndi R kvikmynd í sjónvarpi úr þáttaröð er framleidd var af félaginu H. Efni myndarinnar var sótt í þann atburð þegar Þ eiginmanni áfrýjanda HK og föður annarra áfrýjenda, var ráðinn bani á vinnustað sínum í Reykjavík. Áfrýjendur byggðu á því að eins og fjallað hefði verið um efnið í myndinni hefði verið vegið harkalega að friðhelgi einkalífs þeirra og kröfðust þau því miskabóta úr hendi R. Áfrýjendur höfðuðu málið upphaflega gegn R og B, sem var þá nýtt heiti á félaginu H, en fyrir aðalmeðferð máls í héraði var B tekið til gjaldþrotaskipta. Óumdeilt var í málinu að félagið H, sem var framleiðandi myndarinnar, réði efnistökum og framsetningu hennar og að nafns H var getið í lok myndarinnar. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að a. liður 26. gr. útvarpslaga verði ekki skýrður á annan veg en þann að félagið hefði verið flytjandi í merkingu ákvæðisins og réði þar engum úrslitum að það hefði ekki jafnframt lagt til þá tækni, sem þyrfti til að dreifa efninu til áhorfenda. Með vísan til meginreglu 26. gr., um að sá sem flytur sjálfur efni í eigin nafni beri ábyrgð á því, bar félagið H ábyrgð á myndinni. Ábyrgð stefnda gat því aðeins komið til að enginn annar væri fyrir hendi skv. a. til c. lið 26. gr., en 26. gr. útvarpslaga yrði ekki skýrð svo að ógjaldfærni eða andlát þess, sem ber ábyrgð samkvæmt a. lið greinarinnar gæti leitt til þess að ábyrgð, sem ekki var fyrir hendi í upphafi, yrði síðar lögð á útvarpsstjóra sbr. d. lið 26. gr. Að öllu virtu var R sýknaður af kröfum áfrýjenda vegna aðildarskorts.

Hæstiréttur birt 6. september 2005

294/2005

Hrefna Kristmundsdóttir Júlíus Jón Þorsteinsson og Elí Sigursteinn Þorsteinsson (Atli Gíslason hrl) gegn Ríkisútvarpinu (Kristján Þorbergsson hrl) og þrotabúi Brautarholts 8 ehf (Karl Axelsson hrl)

H, J og E höfðuðu mál til greiðslu miskabóta úr hendi R og B. Vísuðu þau til 1. mgr. 19. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála um heimild til aðilasamlags. Fallist var á að skilyrði aðilasamlags væru fyrir hendi í málinu til sóknar og varnar. H, J og E gáfu hins vegar þær skýringar á kröfugerð sinni fyrir dómi að um væri að ræða sameiginlega kröfu þeirra þriggja á hendur R og B. Talið var að til að neyta fyrrgreindrar heimildar til aðilasamlags hefði þeim H, J og E verið nauðsyn að gera hvert fyrir sig sérstaka kröfu og þar sem það hefði ekki verið gert væri krafa þeirra ódómtæk og var málinu vísað frá dómi af sjálfsdáðum.