Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

12 dómar fundust

Lagagrein: 3. mgr. 59. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Landsréttur birt 2. október 2020

546/2019

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn Helga Haraldssyni (Stefán Geir Þórisson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

H var sakfelldur fyrir að hafa ekið hópbifreið, sem var ekki í lögmæltu ástandi, of hratt miðað við aðstæður og of nálægt fólksbifreið sem fram undan var, en hópbifreiðinni var ekið á afturhorn fólksbifreiðarinnar og lenti í kjölfarið utan vegar og valt með þeim afleiðingum að tveir farþegar hópbifreiðarinnar létust og aðrir tveir hlutu alvarleg líkamsmeiðsl. Varðaði brot H við 215. og 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk nánar tilgreindra ákvæða umferðarlaga. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að H hefði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi og var refsing hans ákveðin fangelsi í sex mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var H sviptur ökurétti í tvö ár.

Landsréttur birt 20. apríl 2018

17/2018

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Huldu Björt Magnúsdóttur (Heimir Örn Herbertsson lögmaður) og X (Friðrik Árni Friðriksson Hirst lögmaður, 1. prófmál)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

H var sakfelld fyrir brot gegn 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og ýmsum ákvæðum umferðarlaga nr. 50/1987 með því að hafa ekið bifreið án nægilegrar aðgæslu og of hratt miðað við aðstæður þar sem vegur var háll. Missti H stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að hún lenti á bifreið sem kom úr gagnstæðri átt og slösuðust ökumaður og farþegi hennar. H og X, skráður eigandi bifreiðarinnar, voru sýknuð af brotum gegn 59. gr. umferðarlaga fyrir að hafa ekki gætt þess að bifreiðin væri í lögmæltu ástandi. Refsing H var ákveðin 150.000 króna sekt í ríkissjóð.

Hæstiréttur birt 1. júní 2017

636/2016

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Þorbjörgu Lilju Jónsdóttur og Stefáni Magnússyni (Heimir Örn Herbertsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Þ var sakfelld fyrir brot gegn 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og ýmsum ákvæðum umferðarlaga nr. 50/1987 með því hafa ekið bifreið í hálku og krapi án þess að gæta nægilegrar aðgæslu, of hratt miðað við aðstæður í afturdrifi og á slitnum hjólbörðum sem hvoru tveggja hafði slæm áhrif á aksturseiginleika bifreiðarinnar. Missti Þ stjórn á bifreiðinni og fór hún yfir á rangan vegarhelming með þeim afleiðingum að hún lenti á tveimur bifreiðum og slösuðust ökumaður og farþegi í þeim. Var refsing Þ ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Var hún auk þess svipt ökurétti í þrjá mánuði. Þá var S sakfelldur fyrir brot gegn 59. gr. laga nr. 50/1987 fyrir að hafa sem skráður eigandi bifreiðarinnar ekki gætt þess að bifreiðin væri í lögmæltu ástandi. Var S gert að greiða 20.000 króna sekt í ríkissjóð.

Hæstiréttur birt 16. febrúar 2017

102/2017

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (enginn) gegn X (Heimir Örn Herbertsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu X um að frestað yrði framkvæmd ökuréttarsviptingar sem henni hafði verið gerð. Þar sem heimild brast til kæru úrskurðarins var málinu vísað frá Hæstarétti.

Héraðsdómur Suðurlands birt 17. desember 2015

S-428/2015

Ákæruvaldið (Grímur Hergeirsson fulltrúi) gegn Þorbjörgu Lilju Jónsdóttur og Stefáni Magnússyni (Heimir Örn Herbertsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Þ var sakfelld fyrir umferðar- og hegningarlagabrot á Hellisheiði. Var refsing ákveðin í 30 daga fangelsi, en fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þ var svipt ökurétti. Í málinu var S einnig sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og dæmdur til sektargreiðslu.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 26. febrúar 2016

S-48/2015

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (Karl Ingi Vilbergsson lögreglustjóri) gegn Hálfdáni Helga Harðarsyni (Saga Ýrr Jónsdóttir hdl) og Karen Elísabetu S. Ingvadóttur (Kristján Óskar Ásvaldsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlögum.

Hæstiréttur birt 20. febrúar 2014

625/2013

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari) gegn Gunnari Júlíusi Helgasyni (Jóhannes Albert Sævarsson hrl) og Einari Birgi Kristjánssyni (Jón Jónsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

G var sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot með því að hafa ekið vörubifreið með vélavagn, án nægilegrar aðgæslu, en vagninn hentaði ekki til flutninga á þeim farmi sem hann flutti og var að auki bremsulítill eða bremsulaus, á mismunandi stórum dekkjum sem voru með mismunandi loftþrýstingi og hlaðinn 12,1 tonni af steinrörum. Leiddi þetta til þess að vagninn leitaði of mikið til vinstri yfir miðlínu vegarins sem ekinn var með þeim afleiðingum að hann lenti á flutningabifreið sem kom á móti og losnaði við það farmurinn af vagninum og fór að hluta inn í ökumannshús flutningabifreiðarinnar þar sem hann lenti á ökumanni hennar sem hlaut við það svo mikla áverka að hann lést nær samstundis. Þá var E sakfelldur fyrir hlutdeild í broti G með því að hafa, sem eigandi og stjórnandi fyrirtækis þess sem átti vagninn, ekki gengið úr skugga um hvernig dekk hefðu verið undir vagninum, en honum hefði verið kunnugt um að ekki hefðu öll dekk vagnsins verið af sömu stærð. Auk tilgreindra ákvæða umferðarlaga og reglugerðar nr. 671/2008 var háttsemi G talin varða við 215. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en háttsemi E við það ákvæði, sbr. 22. gr. laganna. Við ákvörðun refsingar var m.a. litið til þess að hvorki G né E hefði áður verið gerð refsing, G hefði haft hugann mjög við farminn allt fram að slysinu og hefðu hvorki G né E reynt að breiða yfir þátt sinn í málinu. Var refsing G ákveðin fangelsi í 4 mánuði og E fangelsi í 2 mánuði, en í báðum tilvikum var fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í 2 ár. Þá var G sviptur ökurétti í 6 mánuði.

Hæstiréttur birt 21. mars 2013

623/2012

Elmar Freyr Árnason (Kristján B. Thorlacius hrl) gegn Önnu Siggu Lúðvíksdóttur og Vátryggingafélagi Íslands hf (Einar Baldvin Axelsson hrl)

Viðurkennd var óskipt bótaskylda A og V hf. vegna umferðarslyss er leiddi til andláts föður E. Var E látinn bera helming tjóns síns sjálfur þar sem faðir hans hefði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi umrætt sinn, er hann ók bifhjóli sínu á ofsahraða í þéttbýli og var þannig meðvaldur að slysinu.

Héraðsdómur Vesturlands birt 19. apríl 2006

S-24/2006

Ákæruvaldið (Daði Jóhannesson fulltrúi) gegn Baldri Bergmann Heiðarssyni (Hilmar Ingimundarson hrl)
Lykilorð: Umferðarlagabrot.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur og honum gerð sektarrefsing fyrir brot gegn umferðar- og lögreglulögum.