Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 1. gr. laga nr. 45/1998 — Sveitarstjórnarlög

Hæstiréttur birt 16. nóvember 2017

862/2016

Reykjavíkurborg (Páll Arnór Pálsson hrl, Sonja María Hreiðarsdóttir lögmaður, 2. prófmál) gegn Kópavogsbæ, Grindavíkurbæ, Mosfellsbæ (Guðjón Ármannsson hrl) og til réttargæslu Seltjarnarnesbæ

R höfðaði mál á hendur nágrannasveitarfélögum sínum og gerði þá kröfu að nánar tilgreindu landsvæði yrði skipað innan staðarmarka sinna. K tók til varna í málinu og krafðist sýknu af kröfum R. Umrætt landsvæði hafði áður tilheyrt Seltjarnarneshreppi hinum forna, en hafði verið skipað innan staðarmarka K árið 1948 með ákvörðun félagsmálaráðuneytisins um að skipta Seltjarnarneshreppi upp í tvö sveitarfélög. Þá hafði landsvæðið verið úrskurðað þjóðlenda með úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 2/2004 sem staðfestur var að mestu með dómi Hæstaréttar í máli nr. 685/2008. Í dómi sínum rakti Hæstiréttur hvernig vöxtur sveitarfélagsins Reykjavíkur hefði þróast með þeim hætti að sveitarfélaginu hefðu verið lagðar til nærliggjandi jarðir og lögsagnarumdæmi þess stækkað með lögum á hverjum tíma. Í þeim lögum kæmi hvergi fram að lögsaga sveitarfélagsins hefði átt að vera víðtækari en þar greindi. Þá væri í þeim lögum hvergi að finna fyrirmæli um að staðarmörk sveitarfélagsins næðu til þess lands sem aðalkrafa R í málinu tæki til. Með því að R hefði ekki fært fram haldbær rök fyrir því að áðurgreind ákvörðun félagsmálaráðuneytisins hefði verið ólögmæt, lægi fyrir gild ákvörðun þess um að hið umþrætta land lægi innan staðarmarka K. Gætu önnur þau atvik og röksemdir sem R vísaði til ekki breytt þeirri niðurstöðu. Var K því sýknað af kröfum R.

Hæstiréttur birt 7. júní 2012

535/2011

Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl) gegn Brimborg ehf (Tómas Jónsson hrl, Hlynur Halldórsson hdl)

B ehf. höfðaði mál gegn sveitarfélaginu R og var fyrir Hæstarétti leyst úr kröfu B ehf. er laut að því að R greiddi því tiltekna fjárhæð gegn því að fyrirtækið skilaði lóð undir atvinnuhúsnæði sem R hafði úthlutað. Ekki var fallist á með B ehf. að samkvæmt skilmálum R hefði fyrirtækið átt einhliða rétt á að skila lóðinni gegn endurgreiðslu lóðagjalda. Þá var hvorki fallist á að slíkur réttur hefði verið til staðar á grundvelli venjuhelgaðrar framkvæmdar R né að bréf frá R til B ehf. hefði leitt af sér réttmætar væntingar B ehf. um að það gæti hvenær sem væri og án tillits til aðstæðna tekið einhliða ákvörðun um skil á lóðinni gegn endurgreiðslu lóðagjalda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. júlí 2011

E-5553/2010

Brimborg ehf (Tómas Jónsson hrl) gegn Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl)

Fallist var á kröfu stefnanda um að stefndu Reykjavíkurborg bæri að endurgreiða honum gjöld, sem hann hafði greitt borginni í tengslum við úthlutun á atvinnuhúsalóð, gegn því að stefnandi skilaði borginni lóðinni. Talið var stefnandi hafi haft réttmætar væntingar til þess að úthlutunin gengi til baka við einhliða yfirlýsingu hans um skil á lóðinni í samræmi við fyrri stjórnsýsluframkvæmd og að Reykjavíkurborg hafi borið að taka tillit til þess þegar afstaða var tekin til gildissviðs breyttrar framkvæmdar.

Hæstiréttur birt 14. apríl 2005

474/2004

Bláskógabyggð (Kristinn Hallgrímsson hrl) og íslenska ríkið (Óskar Thorarensen hrl) gegn Guðlaugi Hilmarssyni, Guðbjörgu Rós Haraldsdóttur, Gunnari Inga Guðlaugssyni, Kristmanni Hilmari, Guðlaugssyni (Karl Axelsson hrl) og Ástu Sóllilju Guðlaugsdóttur (Guðjón Ægir Sigurjónsson hdl)

X var dæmdur í sex mánaða fangelsi vegna brots á 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en með hliðsjón af persónulegum högum hans og atvikum öllum þótti rétt að skilorðsbinda refsinguna að fullu.