Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 7. mgr. 12. gr. laga nr. 38/1990 — Lög um stjórn fiskveiða

Hæstiréttur birt 8. október 2009

39/2009

Íslenska ríkið (Sigurður Gísli Gíslason hrl) gegn Berghóli ehf (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl)

B hóf að gera út skip til veiða á skötusel í maí 2000. Sjávarútvegsráðherra gaf út 16. ágúst 2001 reglugerð nr. 631/2001 um aflamark fyrir fiskveiðiárið 2001-2002. Reglugerðinni var ætlað að koma í stað reglugerðar, sem sett hafði verið 5. júní sama ár, en með nýju reglugerðinni var gerð sú breyting að takmörkun á veiðum tók til nýrra tegunda, keilu, löngu og skötusels, sem ekki höfðu áður verið bundnar ákvæðum um leyfilegan heildarafla. Í ákvæði til bráðabirgða var kveðið á um það að fiskiskipum, sem höfðu veiðileyfi með almennu aflamarki og veiðireynslu á tímabilinu 1. júní 1998 til 31. maí 2001, skyldi úthlutað aflahlutdeild í þessum tegundum á grundvelli veiðireynslu. B gerði athugasemdir við kvótasetninguna við sjávarútvegsráðherra og taldi að taka hefði átt tillit til þeirra sem hefðu hafið sérstaka sókn í skötusel og í því skyni fjárfest í tækjum og búnaði til veiðanna. Þar sem það var ekki gert taldi B að ekki væri lengur grundvöllur fyrir útgerðinni og lagði hann því skipinu. Höfðaði hann mál og krafðist bóta vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna þess að ekki hefði verið tekið tillit til aflareynslu á tímabilinu 1. júní til 16. ágúst 2001 við ákvörðun á aflahlutdeild hans í skötusel fyrir næsta fiskveiðiár. Í 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/1990 um stjórn fiskveiða kom fram að þegar takmarka ætti leyfðan heildarafla í fyrsta sinn á tegund sjávardýra sem ekki hefði áður verið háð slíkri takmörkun skyldi úthluta aflahlutdeild á grundvelli þriggja síðustu veiðitímabila. Talið var að ákvæði í reglugerð nr. 631/2001 um lok viðmiðunartímabils veiðireynslu svo löngu fyrir útgáfudag hennar væri andstætt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/1990 er leitt hefði til tjóns fyrir B vegna veiðireynslu sem hann hefði aflað sér á umræddu tímabili. Var viðurkennd skaðabótaskylda Í og var krafa B tekin til greina.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. október 2008

E-7690/2007

Berghóll ehf (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Sigurður Gísli Gíslason hdl)

Stefnandi krafðist skaðabóta vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna þess að ekki hafði verið notað rétt viðmiðunartímabil við úthlutun aflaheimilda í skötusel fiskveiðiárin 2001/2002 og 2002/2003. Fallist var á kröfuna og dæmt að íslenska ríkið skyldi greiða stefnanda skaðabætur.

Hæstiréttur birt 8. maí 2008

2/2008

Ákæruvaldið (Ragnheiður Harðardóttir vararíkissaksóknari) gegn X (Grétar Haraldsson hrl)
Lykilorð: Aflamark. Skilasvik. Fjárnám.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

X var ákærður fyrir brot gegn 2. tölulið 1. mgr. 250. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa í nóvember 2002 selt aflamark skipsins Z í löngu og skötusel vegna fiskveiðiársins 2002/2003 til Þ ehf., þrátt fyrir að hann vissi að fjárnám hefði verið gert í hinu selda. X neitaði sök og hélt því fram að honum hefði verið heimilt að flytja aflamarkið. Í athugasemdum í greinargerð með 4. mgr. 3. gr. laga nr. 75/1997 um samningsveð kemur fram að ekki þurfi samþykki veðhafa þótt aflamark sé flutt milli skipa. Þá leitaði X heimildar F til flutningsins og var hún veitt. Í niðurstöðu Hæstaréttar sagði að þegar litið væri til þeirra reglna sem um aflamark gilda og eðli réttindanna yrði talið að sú háttsemi sem ákært var fyrir teldist ekki til skilasvika samkvæmt 2. tölulið 1. mgr. 250. gr. almennra hegningarlaga. Var X því sýknaður af kröfu ákæruvaldsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. desember 2007

S-1283/2007

Ákæruvaldið (Guðjón Magnússon fulltrúi) gegn Gunnbirni Ólafssyni (Ólafur Thoroddsen hdl)
Lykilorð: Skilasvik.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir skilasvik með því að selja, án samþykkis kröfuhafa, aflamark skips í tilteknum veiðitegundum sem veðréttur hafði stofnast í.